Morgunblaðið - 21.05.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Bergþór Ólason alþingismaðurvakti athygli á því á Alþingi í
gær að meirihlutinn í borgarstjórn
hygðist, þrátt fyrir sáttmála um
samgöngur á höfuðborgarsvæðinu,
standa í vegi fyrir því að nokkur ný
mislæg gatnamót
yrðu gerð í Reykja-
vík. Þetta hefði
komið fram á fundi
umhverfis- og sam-
göngunefndar
þingsins, en þar er
Bergþór formaður.
Hann tók sér-staklega dæmi
af gatnamótum Bú-
staðavegar og
Reykjanesbrautar í
þessu sambandi,
sem eru hluti af
sáttmálanum, og
sagði engan hafa
haft hugmyndaflug í að ætla að
framkvæmdir á þessum gatnamót-
um ættu ekki að fela í sér mislæg
gatnamót. Spurði hann fjármála-
ráðherra út í hvort það gæti verið
að samþykkt hefði verið að leggja
120 milljarða króna í samgöngu-
sáttmálann þó að vilji Vegagerð-
arinnar yrði að engu hafður.
Athygli vekur að í svari fjár-málaráðherra kom annars
vegar fram að ríkisvaldið hefði
ýmsa sterka fyrirvara hvað sátt-
málann snerti og að engu fé yrði út-
hlutað án vilja þess. Hins vegar
sagði ráðherra að það hefði komið
fram varðandi umrædd gatnamót í
undirbúningsviðræðum vegna sam-
göngusáttmálans „að það væru til
útfærðar hugmyndir að þessum
gatnamótum og þar hefði verið um
að ræða mislæg gatnamót“.
Bergþór fagnaði þessu svarienda gefur það vonir um að
ríkisvaldið muni mögulega standa
með almenningi gagnvart aðför
borgarinnar að helsta ferðamáta
hans, fjölskyldubílnum.
Bergþór
Ólason
Veit vonandi á gott
STAKSTEINAR
Bjarni
Benediktsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Fim. 10–18
Föstudaga. 10–17
Laugardaga. 11–15
Vaktafyrirkomulagi við umönnun
íbúa á hjúkrunarheimilinu Drop-
laugarstöðum við Snorrabraut verð-
ur breytt 1. september næstkom-
andi. Í því skyni hefur núverandi
vaktakerfi verið sagt upp.
Breytingin tekur til alls starfs-
fólks við umönnun. Jórunn Frí-
mannsdóttir Jensen, forstöðumaður
Droplaugarstaða, segir að engum
starfsmanni verði sagt upp og
starfshlutfall ekki minnkað. Hún
segir að markmið breytinganna sé
að koma á sanngjarnari skiptingu á
vöktun. Dæmi séu um að starfsfólk
hafi fengið sérstakt samkomulag
um vaktir og vilji ekki breyta neinu.
Jórunn var í gær að fara yfir
breytingarnar með starfsfólki og
sagðist hún ekki verða vör við ann-
að en að það sýndi þeim skilning.
Taldi hún ekki útilokað að einhverj-
ir starfsmenn hefðu óttast um sinn
hag áður en málið var skýrt fyrir
þeim.
81 íbúi á heimilinu
Droplaugarstaðir eru í eigu
Reykjavíkurborgar. Þar er 81 íbúi,
allir í einbýli og með sér baði. Þar
eru fjórar hjúkrunardeildir sem
hverri er skipt niður í þrjár 8 til 10
manna einingar með sér setustofu
og borðstofu. helgi@mbl.is
Vaktafyrirkomulagi sagt upp
Breytingar verða í haust á vöktum við
umönnun á Droplaugarstöðum
Morgunblaðið/Golli
Droplaugarstaðir Forstöðumaður-
inn kynnir nýtt vaktakerfi.
Útgerðarfyrirtækið Brim hf. hagn-
aðist um 429 þúsund evrur, eða 67
milljónir króna, á fyrsta fjórðungi
þessa árs, sem er umtalsverð breyt-
ing frá sama tíma í fyrra, þegar félag-
ið hagnaðist um 615 milljónir króna,
eða rúmlega 3,9 milljónir evra. Nem-
ur minnkunin milli ára 90%.
Eignir Brims námu í lok fjórðungs-
ins 704 milljónum evra, eða 110,5
milljörðum króna, og jukust þær lít-
illega milli ára, eða um hátt í fjórar
milljónir evra.
Eigið fé félagsins nemur núna 306
milljónum evra, eða 48 milljörðum
króna. Það dróst saman um 3,5% milli
ára, en það var 317 milljónir evra í lok
fyrsta ársfjórðungs 2019. Eiginfjár-
hlutfall félagsins er 44%.
Rekstrartekjur Brims hf. á fyrsta
fjórðungi ársins 2020 námu 74,4 millj-
ónum evra, eða 11,7 milljörðum
króna, samanborið við 58 milljónir
evra árið áður, eða rúmlega níu millj-
örðum króna.
Kristján Þ. Davíðsson, stjórnar-
formaður Brims hf., segir í tilkynn-
ingu sem félagið sendi til kauphallar
að afkoma Brims á fyrsta ársfjórð-
ungi 2020 hafi markast nokkuð af erf-
iðu tíðarfari og þar með gæftum í
upphafi árs með nokkuð lakari afla og
þar með afkomu, einkum í veiðum og
vinnslu uppsjávarafla. Einnig hafi
loðnubrestur annað árið í röð valdið
nokkru um afkomu fjórðungsins.
Í tilkynningunni segir Kristján
jafnframt að félagið njóti nú góðs af
fjárfestingum undanfarinna missera,
bæði í Ögurvík og sölufélögum í Asíu.
„Þrátt fyrir að verð sjávarafurða hafi
almennt verið tiltölulega gott í upp-
hafi árs eru horfur á mörkuðum
óvissar vegna áhrifa heimsfaraldurs-
ins á neyslumynstur, sölu og flutn-
inga,“ segir Kristján að endingu í til-
kynningunni.
Hagnaður Brims
67 milljónir króna
Fjórðungurinn
markast af erfiðu
tíðarfari
Morgunblaðið/Hari
Sjávarútvegur Eignir Brims hf.
nema 110,5 milljörðum króna.