Morgunblaðið - 21.05.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Goðalandi,
Fljótshlíð, föstudaginn 12. júní 2020 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um breytingar á 27. gr. samþykkta félagsins.
3. Önnur mál.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir
aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skulu hafa borist
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir
aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.
Reykjavík, 19. maí 2020.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja
milljarði króna fram til ársins 2023 til
að styðja við nýsköpun og rannsóknir
á samfélagslegum áskorunum í gegn-
um Markáætlun á sviði vísinda, tækni
og nýsköpunar.
Forsætisráðherra, ferðamála-, iðn-
aðar- og nýsköpunarráðherra og
mennta- og menningarmálaráðherra
kynntu áætlunina í gær sem og
skýrslu um fjórðu iðnbyltinguna. Þá
ræddu ráðherrarnir einnig frekari
áherslur ríkisstjórnarinnar í nýsköp-
un og vísindum.
Aðdragandi áætlunarinnar er að ár-
ið 2018 átti vísinda- og tækniráð í víð-
tæku samráði við almenning, vísinda-
menn, þingmenn og aðra hagaðila um
þær brýnustu áskoranir sem íslenskt
samfélag stendur frammi fyrir til
næstu ára. Var lögð áhersla á þrennt;
loftslagsbreytingar, heilbrigðisvísindi
og fjórðu iðnbyltinguna.
Markáætlun á sviði vísinda, tækni
og nýsköpunar nær yfir stefnumót-
andi áætlanir þar sem um er að ræða
tímabundinn forgang á fjármagni.
Verkefni skulu unnin í nánu samstarfi
fyrirtækja, rannsóknarstofnana og
háskóla á einstökum sviðum eða þver-
faglegum fræðasviðum á grundvelli
vandaðra rannsóknaráætlana.
Tækifæri í fjórðu iðnbyltingunni
Ríkisstjórnin hefur einnig sam-
þykkt aðgerðaáætlun sem miðar að
því að nýta þau tækifæri sem fjórða
iðnbyltingin felur í sér til að bæta lífs-
kjör og auka velsæld. Aðgerðaáætlun-
in felur í sér 27 aðgerðir sem stjórn-
völd munu vinna að á komandi
misserum. Áætlunin er unnin af verk-
efnisstjórn sem forsætisráðherra skip-
aði í júlí 2019 og byggist á ítarlegri
greiningu á þeim tækifærum og áskor-
unum sem fjórða iðnbyltingin hefur í
för með sér fyrir íslenskt samfélag.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra að aðgerðirnar væru mis-
stórar og umfangsmiklar. „Ég sjálf er
sérstaklega hrifin af tillögunni um
mótun stefnu um gervigreind, hversu
langt við viljum ganga og hvaða sið-
ferðislegu álitaefnum við stöndum
frammi fyrir í því samhengi,“ sagði
Katrín.
Auk þeirra aðgerða sem kynntar
voru í gær hefur verið sett á lagg-
irnar þvervísindalegt rannsóknar-
setur Margrétar Danadrottningar og
Vigdísar Finnbogadóttur um hafið,
loftslag og samfélag.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála-, nýsköpunar- og
iðnaðarmálaráðherra, segir tillög-
urnar miða að því að ramma inn að-
gerðir sem snúa að fjórðu iðnbylting-
unni. „Fjórða iðnbyltingin er í
rauninni út um allt, alls staðar í
stjórnkerfinu, samfélaginu og veröld-
inni. Við erum svolítið að reyna að
ramma inn þær aðgerðir sem snúa að
því hvernig við búum okkur undir
fjórðu iðnbyltinguna. Hvernig búum
við menntakerfið undir það, hvernig
getum við nýtt gögn og búið til verð-
mæti úr þeim,“ segir Þórdís. „Við er-
um líka að segja að við áttum okkur
bæði á tækifærunum og hættunum
sem við blasa.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kynningarfundur í Hannesarholti Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í lýðheilsufræðum, Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður verkefnisstjórnarinnar, Magnús Tumi Guðmundsson, pró-
fessor í jarðeðlisfræði, og Tryggvi Þorgeirsson, formaður tækniþróunarsjóðs, tóku einnig þátt í kynningarfundi ríkisstjórnarinnar um aðgerðir og áherslur í nýsköpun og vísindum.
„Fjórða iðnbyltingin er út um allt“
Ráðherrar kynntu áherslur í nýsköpun og vísindum 27 aðgerða áætlun um 4. iðnbyltingu kynnt
Kynning Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að hún sé sérstaklega
hrifin af tillögu verkefnisstjórnar um mótun stefnu varðandi gervigreind.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?