Morgunblaðið - 21.05.2020, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Rauðarárstígur 12-14 · 105 Reykjavík · sími 551 0400 · www.gallerifold.is
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Lífið í Borgarbyggð er aftur að
komast í eðlilegt horf og segir Þór-
dís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri
að íbúar og samfélagið í heild sinni
sé byrjað að taka við sér eftir væg-
ast sagt erfiða tíma. Tannhjól at-
vinnulífsins eru farin að snúast á ný
og greina má merki þess að fyrir-
tækin á svæðinu séu að sækja í sig
veðrið með hækkandi sól. „Það er
ánægjulegt að fyrirtæki í sveitarfé-
laginu sé að auglýsa eftir starfsfólki
en það er til að mynda vöntun á
starfskröftum hjá hótelunum og
veitingastöð-
unum auk þess að
verktakar hafa
auglýst laus
störf.“
Að sögn Þór-
dísar hefur
kórónuveiru-
faraldurinn vissu-
lega valdið fyr-
irtækjunum á
svæðinu tjóni líkt
og gerst hefur annars staðar á land-
inu. „Við getum reiknað með að það
séu krefjandi tímar framundan og
við erum að bregðast við með marg-
víslegum hætti til að minnka efna-
hagslegu áhrifin sem hafa orðið og
verða vegna kórónuveiru. Fyrr í
mánuðinum hélt sveitarfélagið fund
með fulltrúum fyrirtækja á svæðinu
til að ræða stöðuna og skoða hvaða
möguleikar séu fyrir hendi til að
veita aðstoð sem stuðli að sem bestri
viðspyrnu fyrir Borgarbyggð,“ segir
Þórdís. „Á þeim fundi kom fram að
það þyrfti að huga að ferðaþjónust-
unni og það er ánægjulegt að segja
frá því að fyrirtækin eru nú þegar
farin að snúa bökum saman, sam-
þætta þjónustu sína og bjóða ferða-
mönnum upp á hagstæða heild-
arpakka, og þannig snúa vörn í sókn.
Þó reikna megi með að bið verði eft-
ir fjölgun erlendra ferðamanna þá
er það okkar von að íslenskir ferða-
menn verði duglegir að heimsækja
Borgarbyggð enda svæði þar sem
margt er að sjá og gera og margar
óviðjafnanlegar náttúruperlur.“
Taki vinstri beygjuna
Þó Borgarbyggð sé nánast í tún-
fæti höfuðborgarsvæðisins, þá eiga
margir borgarbúar eftir að upp-
götva allt það sem svæðið hefur upp
á að bjóða. Þórdís segir að bara í
Borgarnesi, steinsnar frá þjóðvega-
sjoppunni vinsælu Hyrnunni, sé að
finna sælureiti og söfn sem allt of
margir vita ekki af, og í uppsveitum
Borgarfjarðar og Mýrum má finna
ótrúleg útivistar- og náttúrusvæði
sem gera fólk agndofa. „Allflestir
aka í gegnum Borgarnes án þess að
taka vinstri beygjuna og skoða það
sem að mínu mati er eitt fallegasta
bæjarstæði á landinu, með stöðum
eins og Bjössaróló, Skallagríms-
garði, virkilega góðum veitinga-
stöðum, Safnahúsinu og Landnáms-
setrinu með sínum merkilegu
sýningum. Síðan er líka hægt að
beygja til hægri við Hafnarfjallið og
njóta þess sem Borgarfjörður býður
upp á eins og til dæmis Hvanneyri,
Reykholtsdal og Norðurdalsána.“
Verður líf á svæðinu í sumar og
segir Þórdís að viðburðahaldarar í
Borgarbyggð ætli ekki að slá slöku
við. „Verið er að skipuleggja hátíðir
og listviðburði sumarsins í sveitarfé-
laginu og eru landsmenn hvattir til
þess að koma á hátíðir eins og Brák-
arhátíð, Hvanneyrahátíð, Reyk-
holtshátíð og listahátíðina Plan B, að
ógleymdri tónlistardagskrá í Skál-
holti.“
Kannski fjölgar íbúum
eftir faraldurinn
Þórdís er spennt fyrir framtíð
Borgarbyggðar en hún telur að það
það kunni vel að gerast að íbúum
fjölgi í kjölfar kórónuveirufaraldurs.
Þannig hafi faraldurinn minnt
marga á kosti þess að aftengjast lát-
um og lífsgæðakapphlaupi borgar-
lífsins og eiga í staðinn meiri gæða-
stundir með fjölskyldunni, eða njóta
útivistar í fagurri náttúru. Hún
minnir á að á mörgum vinnustöðum
hafi komið í ljós að óhætt er að veita
meira svigrúm fyrir fjarvinnu, og
upplagt fyrir þá sem vilja komast
nær náttúrunni og upplifa kosti þess
að búa í fámennu og samheldnu
samfélagi, að skoða möguleikann á
að setjast að á svæðum eins og
Borgarbyggð. „Það er mikil þjón-
usta í sveitarfélaginu og stutt að
sækja til höfuðborgarsvæðisins þá
þjónustu sem ekki er til staðar. Hús-
næðiskostnaðurinn er enn lægri en á
höfuðborgasvæðinu og mikil upp-
bygging í sjónmáli,“ segir Þórdís
sem ólst upp í Borgarnesi en fluttist
til Reykjavíkur þegar hún var ung-
lingur og bjó svo um langt skeið á
Vestfjörðum með fjölskyldu sinni.
„Það sem ég fann hvað greinilegast
þegar við fluttum frá höfuðborginni
var að allt í einu bættust tveir tímar
við sólarhringinn, því vegalengdir
urðu styttri og ekki sama þörf fyrir
að eyða drjúgum tíma daglega í
skutl og útréttingar. Svo er annar
og rólegri bragur á samfélaginu og
minna lífsgæðakapphlaup.“
Snúa bökum saman
● Fólkið í Borgarbyggð tekur vel á móti gestum sem
heimsækja þennan sælureit steinsnar frá Reykjavík
Þórdís Sif
Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Eggert
Fríðindi Börn fagna þjóðhátíðardreginum í Skallagrímsgarði á þessari
mynd úr safni. Kórónuveiran gæti leitt til að íbúum fjölgi á svæðinu.
Hótel Húsafell er gott dæmi um þá
uppbyggingu og þann metnað sem
einkennt hefur ferðaþjónustuna í
Borgarbyggð á undanförnum árum.
Hótelið tók á móti fyrstu gestunum
árið 2015 og hefur reksturinn geng-
ið mjög vel alla tíð síðan enda þykir
hótelið og veitingastaðurinn þar
bjóða upp á upplifun sem er í algjör-
um sérfloki.
Kristján Guðmundsson er sölu- og
markaðsstjóri hótelsins og segir
hann að við opnun hafi þegar verið
mikil vöntun á góðu hóteli á þessum
stað, enda liggi straumur ferða-
manna í gegnum svæðið. Margir
staldra þar við á leið sinni umhverfis
landið, en svo eru líka ófáir sem
gera sér gagngert ferð í Borg-
arbyggð til að skoða söfn og nátt-
úruundur eins og Hraunfossa, virða
fyrir sér hrikalega hella eða heim-
sækja Langjökul.
Hótel Húsafell stendur undir
nafni sem sælureitur þeirra sem
vilja njóta þess að vera til og skartar
m.a. góðri sundlaug, níu holu golf-
velli og úrvali fallegra göngu- og
hjólaleiða um nágrennnið en hægt
er að fá reiðhjól að láni hjá hótelinu.
Nýjasta viðbótin eru Giljaböðin sem
eigendur hótelsins hafa komið upp
steinsnar frá hótelinu. „Gestum er
ekið um fimm mínútna leið í átt að
Hraunfossum og
tekur svo við
stutt ganga niður
í gil þar sem er að
finna fallegan
foss og nátt-
úrulegar bað-
laugar,“ útskýrir
Kristján en búið
er að leggja slóða
niður að laug-
unum, koma þar
fyrir búningsklefum og gera snotra
hleðslu í kringum laugarnar svo að
mjög vel fer um þá sem þangað
koma.
Kristján segir að miðað við að-
stæður sé staðan þokkaleg í augna-
blikinu, og þótt reikna megi með
skorti á erlendum ferðamönnum
virðist Íslendingar ætla að vera dug-
legir að ferðast innanlands í sumar
og hafa sérstök sumartilboð hótels-
ins vakið lukku. „Við bjóðum upp á
fjóra mismunandi pakka sem spanna
allt frá gistingu í eina nótt yfir í
tveggja nátta dvöl með kvöldverði á
veitingastaðnum,“ segir Kristján en
hótelið var opnað á ný í gær, 20. maí,
eftir kórónuveirulokun. „Nú þegar
er uppselt fyrstu helgina og nokkuð
þétt bókað helgarnar þar á eftir, en
nóg af lausum herbergjum þegar
líður á sumarið.“ ai@mbl.is
Tilboðin hafa feng-
ið góð viðbrögð
Notalegt Nýju Giljaböðin umvefja gesti með hreinni íslenskri náttúru.
Kristján
Guðmundsson
● Hótelin í Borgarbyggð klár í sumarið