Morgunblaðið - 21.05.2020, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Frjals &
otamin
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
´
´
Nýr ilmur
Ýmsar rannsóknir
og kannanir hafa sýnt
okkur að of mörgum
nemendum líður ekki
vel í skóla og of marg-
ir nemendur telja
skólanámið gagnslítið.
Við getum verið sam-
mála um að það skipt-
ir miklu máli að öllum
nemendum líði vel í
skóla. Það er algjör forsenda þess
að námsárangur verði góður. Hvað
er þá til ráða?
Vellíðan nemenda,
hugmyndavinna
Látum skólana í fullu sjálfstæði
sínu ákveða hvaða breytingar þeir
gera til að bæta líðan nemenda og
árangur. Föllum ekki í þá gryfju að
láta einhvern „stóra bróður“ ákveða
hvað gert er. Venjulega fylgja slík-
um vinnubrögðum skýrslu- og
greinargerðir sem lenda iðulega í
möppum uppi í hillum og eru aldrei
lesnar. Ein leið er að skólarnir efni
til víðtækrar hugmyndasamkeppni
meðal nemenda, forráðamanna og
skólamanna. Margar góðar hug-
myndir er að finna innan skólanna.
Nám þarf að vera fjölbreytt til að
höfða til breiðs hóps nemenda.
Samvinna skólastiga,
fjölbreytt nám
Til að auka fjölbreytileika í námi
kemur til greina að skipuleggja
margs konar samstarf á milli
grunn- og framhaldsskóla sem
bjóða upp á verk- og listnám. Tvær
til þrjár kennsluvikur í framhalds-
skólunum gætu verið hluti af nám-
inu t.d. í 10. bekk. Kennslan yrði í
höndum kennara framhaldsskól-
anna og nemendur framhaldsskól-
anna gætu verið til aðstoðar í
kennslustundum. Þá mætti hugsa
sér að í efstu bekkjum grunnskól-
ans færi fram tónlistarkennsla þar
sem þekktir hljóðfæraleikarar yrðu
fengnir til að kenna nemendum á
hljóðfæri sem njóta vinsælda meðal
ungs fólks. Fjölmargar aðrar gagn-
legar hugmyndir eru þegar tiltækar
til að bæta líðan ungs fólks og efla
Eftir Þorstein Þor-
steinsson og Gunn-
laug Sigurðsson
Þorsteinn Þorsteinsson
» Á næstu vikum og
misserum er sér-
staklega mikil þörf á að
sinna vel þeim hluta
nemendahópsins sem
hefur staðið höllum fæti.
Þorsteinn er fv. skólameistari Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ og Gunn-
laugur er fv. skólastjóri Garða-
skóla.
thorsteinn2212@gmail.com
Gunnlaugur Sigurðsson
Sóknarfæri í skólamálum
þátttöku þeirra í list- og verk-
greinum.
Náms- og starfsráðgjafar
Við marga skóla eru starfandi
náms- og starfsráðgjafar sem vinna
frábært starf við að leiðbeina nem-
endum og styðja þá. Stjórnendur
skóla, kennarar og annað starfsfólk
nýtur einnig fagmennsku náms- og
starfsráðgjafa í vinnu sinni með
nemendum. Skólastjóri á Stór-
Reykjavíkursvæðinu sagði fyrir
mörgum árum að aldrei hefði einn
starfsmaður hjálpað jafn mörgum
nemendum og nýráðinn náms-
ráðgjafi. Nú þegar venjulegt skóla-
hald hefur legið niðri í nokkrar vik-
ur hefur vanlíðan margra nemenda
aukist. Skólar hafa eflaust gert ým-
islegt til að hjálpa nemendum sín-
um. Á næstu vikum og misserum er
sérstaklega mikil þörf á að sinna vel
þeim hluta nemendahópsins sem
hefur staðið höllum fæti. Með mark-
vissum aðgerðum má ef til vill
draga úr brottfalli nemenda í fram-
haldsskólum sem hefur verið of
mikið undanfarin ár.
Þá má það vera okk-
ur og öðrum furðuefni,
að á Íslandi, einu Evr-
ópulanda, skyldu ráð
heilbrigðisyfirvalda
gera okkur kleift að
komast undan áfalli
vegna COVID-19-
faraldursins. Það er
sérlega þýðingarmikið
að íslensk stjórnvöld,
sem fengu upplýsingar
um faraldurinn þegar í janúar, hófu
strax undirbúning að viðbrögðum,
sem grípa varð til seint í febrúar þeg-
ar fyrstu sýkingarnar
voru greindar. Þá gerði
starfsemi Íslenskrar
erfðagreiningar það
kleift að skima veru-
legan hluta þjóðarinnar
um útbreiðslu veir-
unnar, sem var rakin af
sérstöku starfsliði. Þró-
un faraldursins var, að
þjóðinni virtist, fyr-
irsjáanleg af sótt-
varnalækni og allur
nauðsynlegur undirbún-
ingur á bráðamóttökum
og sjúkrahúsum stóðst raunina með
miklu álagi á starfsliðið. Þetta vekur
að sjálfsögðu verðskuldaða athygli
erlendis. Mér var það mikil ánægja
að sjá viðtal á CNN-sjónvarpsstöð-
inni við Katrínu Jakobsdóttur for-
sætisráðherra í þætti sem sinnir
þjóðarleiðtogum og fjallaði um þenn-
an stórmerkilega árangur okkar sem
óaðfinnanlegur var.
Covid-faraldurinn hefur vonandi
raskað þeirri trú Evrópubúa, að með
friði og velsæld, þar með góðri heilsu-
gæslu, geti ríkin hvert og eitt komist
undan alvarlegum skakkaföllum af
mannfalli vegna einhverrar óþekktrar
sýkingar. Svo er þó ekki vegna þeirr-
ar gjörbreytingar í samfélagi þjóð-
anna, sem tilkomin er vegna
tækniþróunar heimsvæðingarinnar.
Slík er orðin samtenging allra landa
heimskringlunnar, að veira sem á
upptök í Wuhan í Kína hefur á
skömmum tíma náð útbreiðslu til allra
heimsins horna. En þegar mest kall-
aði á brast vilji til sameiginlegs átaks
á þeim vettvangi þjóða, sem þetta
varðar, Alþjóðaheilbrigðisstofnun
Sameinuðu þjóðanna – World Health
Organisation - WHO. Líta verður um
öxl til sögu alþjóðasamstarfs frá
stríðslokum ef reyna skal um skilning
á aðgerðaleysi þegar fjöldi mannslífa
liggur við.
Sameinuðu þjóðirnar voru stofn-
aðar eftir seinni heimsstyrjöldina til
að tryggja frið og velferð mannkyns.
Ísland, nýorðið frjálst og fullvalda,
varð þátttakandi. Stofnskrá SÞ kvað á
um víðtækar skuldbindingar sam-
vinnu í ýmsum sérstofnunum, en fyrst
og fremst gæslu friðar, og þar skyldi
Öryggisráðið gegna lykilhlutverki. En
vonir um friðsamlega sambúð urðu að
engu við andstöðu Sovétríkjanna og
allt SÞ-kerfið var undirlagt af þeim
pólitísku deilum sem áttu heima á alls-
herjarþingunum í New York.
Þá var það var árið 1949, að íslensk
stjórnvöld taka þá sögulegu ákvörðun
að standa með öðrum lýðræðisríkjum
um stofnun varnarsamvinnu í NATO.
Sovétríkin brugðust öllum fyr-
irheitum en tóku til við hervæðingu
með kjarnavopnum í Varsjár-
bandalaginu og áróðri um heimsbylt-
ingu sem tryggja skyldi alræði öreig-
anna. Það er búið en annað tekið við.
Samstarfið innan NATO hefur líka
breyst með árunum. Sem dæmi má
nefna, að aukið tvíhliða varnarsam-
starf NATO og Noregs hófst fyrir
nokkrum árum og hefur þróast síðan.
Norski flugherinn er búinn nýjustu
bandarísku orrustuþotunum og hið
sama á við um Finna. Þeir eins og Sví-
ar standa utan en nærri NATO, m.a.
vegna þátttöku í sameiginlegum verk-
efnum, eins og eftirlitsflugi banda-
lagsins við Ísland. Þetta nána sam-
starf, og t.d. mannvirkjagerð
Atlantshafsbandalagsins í Noregi, er
mér vitanlega talið eðlilegt hags-
munamál og að sjálfsögðu hafið yfir
gagnrýni.
En deila á fortíðarnótum um hugs-
anlegar ráðstafanir mannvirkjasjóðs
NATO hér á landi er séríslenskt eft-
irmál liðins tíma, það leyfir undirrit-
aður sér að segja sem fyrrverandi
fastafulltrúi Íslands í NATO, síðast í
kalda stríðinu og árum þar á eftir. Þá-
verandi framkvæmdastjóri banda-
lagsins lagði til 2009 í ræðu á NATO-
ráðstefnu í Reykjavík, að umræðu um
öfluga leitar- og björgunarstarfsemi á
norðurslóðum, sem rætt var um að
yrði hér, skyldi skotið til NATO
Russia Council. En það var þá.
Eftir Einar
Benediktsson
Einar Benediktsson
» Slík er orðin sam-
tenging allra landa
heimskringlunnar, að
veira sem á upptök í
Wuhan í Kína hefur á
skömmum tíma breiðst
út til allra heimsins
horna.
Höfundur er fyrrverandi
sendiherra.
Covid og alþjóðavæðingin