Morgunblaðið - 21.05.2020, Side 37
Óskum eftir kennurum
Grunnskóli Snæfellsbæjar er þriggja starfstöðva grunnskóli með um 240 nemendur.
Starfstöðvar hans eru í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsu. Nánari upplýsingar um skólann
eru á heimasíðu hans, á slóðinni http://www.gsnb.is/
Auglýst er eftir:
Kennara í hönnun og smíði, í 100% starf.
Kennara í heimilisfræði, í 50% starf.
100% tímabundna stöðu umsjónarkennara á unglingastigi, meðal kennslugreina
íslenska og samfélagsfræðigreinar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf.
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar.
• Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi.
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Snæfellsbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um.
Umsóknir sendist fyrir 30. maí 2020 til skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ennisbraut 11,
355 Snæfellsbæ eða á netfangið hilmara@gsnb.is. Í þeim skulu koma fram upplýsingar um
menntun, réttindi og starfsreynslu.
Frekari upplýsingar veitir Hilmar Már Arason í síma 894 9903 eða hilmara@gsnb.is.
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí
2020. Frekari upplýsingar er að finna á
heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic
Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking
an individual for the position of Security
Guard. The closing date for this postion is
May 24, 2020. Application instructions
and further information can be found on the
Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun
· Reynsla af starfi í leikskóla
kopavogur.is
Kópavogsbær auglýsir starf skipulagsstjóra laust til umsóknar. Skipulagsstjóri stýrir skipulags- og
byggingardeild bæjarins en þar starfar 14 manna samhentur hópur. Hann hefur umsjón með þróun á
sviði skipulagsmála í bænum og ber ábyrgð á að meðferð skiplagsmála sé í samræmi við samþykkta
stefnumótun, gildar skipulagsáætlanir og að farið sé eftir lögum og reglugerðum. Hann er ráðgjafi
bæjarstjórnar í skipulagsmálum.
Helstu verkefni
· Daglegur rekstur skipulags- og byggingardeildar.
· Vinnur skipulagsáætlanir (aðal-, deili- og hverfisskipulags) og skipulags- og byggingarskilmála.
· Umsjón og eftirlit með gerð umhverfismats áætlana.
· Útgáfa framkvæmdaleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingarerindi.
· Umsjón með grenndarkynningu deiliskipulagsbreytinga og byggingarleyfa.
· Auglýsir skipulagslýsingar og skipulagsbreytingar lögum samkvæmt.
· Undirbúningur funda skipulagsnefndar og umhverfis- og samgöngunefndar.
· Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila.
· Þátttaka í samráðshópum um skipulags- og byggingarmál.
· Situr í fagráði svæðisskipulagsnefndar SSH.
· Umsagnir vegna kærumála og álitaefna í samstarfi við lögfræðideild.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Meistarapróf á háskólastigi sem nýtist í starfi.
· Löggiltur skipulagsfræðingur eða sambærileg menntun sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
· Leiðtogahæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum.
· Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu.
· Lausnamiðuð hugsun og færni í framsetningu efnis.
· Þekking á teikniforritum og öðrum forritum tengdum skipulagsvinnu.
· Þekking á skjalavistunarkerfum er kostur.
· Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri umhverfissviðs
(steingr@kopavogur.is).
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Skipulagsstjóri
Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is
1
ATVINNA
í boði hjá Kópavogsbæ
Sjá nánar á kopavogur.is