Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 42
Auðun Georg Ólafsson
Rósa Margrét Tryggvadóttir
Morgunþáttur stöðvarinnar, Ísland vaknar, með þau
Ásgeir Pál, Jón Axel og Borgnesinginn Kristínu Sif,
hefst stundvíslega kl. 6 að morgni. Auðun Georg miðl-
ar fréttum frá því helsta sem er að gerast í sveitarfé-
laginu og Síðdegisþáttur K100 með þeim Loga Berg-
mann og Sigga Gunnars fjallar um fjölbreytt
mannlíf og það sem gerir Borgarbyggð að
áhugaverðum stað til að heimsækja, starfa á og
búa.
Skemmtilegur viðburður verður í boði á
föstudaginn í tilefni af útsendingu K100, en þá
ætlar Helo.is að bjóða upp á útsýnisflug með
þyrlu. Sex farþegar komast í hverri ferð. Flog-
ið verður frá Borgarnesflugvelli frá
klukkan 16:00 og kostar 10 þúsund
krónur á mann.
Skemmtilegasta bæjarstæðið
„Það er alltaf gaman að koma
aftur í Borgarnes sem mér finnst
vera fallegasta bæjarstæði á land-
inu og svo er svo skemmtilegt fólk þar,“
segir Borgnesingurinn Kristín Sif í sam-
tali við Morgunblaðið og K100.is.
Fjöldi gesta frá Borgarbyggð
Hún staðfestir að fjöldi skemmtilegra
gesta frá Borgarbyggð muni koma
fram í þáttunum en meðal þeirra sem
mæta í Ísland vaknar eru uppi-
standarinn Iddi Biddi, Orri Sveinn
Jónsson trúbador og Guðrún
Daníelsdóttir athafnakona sem
Kristín segir að sé ein skemmti-
legasta kona landsins.
K100 í Borgarbyggð
Útvarpsstöðin K100 ætlar að kynnast
landinu betur í sumar og kynna þá
stórkostlegu staði sem eru í boði fyrir
landsmenn innanlands í sumar. Fyrsti
áfangastaður stöðvarinnar verður
Borgarbyggð. Öll dagskrá og fréttir
stöðvarinnar verða í beinni útsendingu
frá Borgarnesi á föstudaginn, 22. maí.
Morgunblaðið/Eggert
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Tímapantanir á
opticalstudio.is
og í síma 511 5800
SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK
Sjónmælingar
eru okkar fag
Karítas E. Kristjánsdóttir hafði
heppnina með sér að þessu sinni í
Pallapartíleik K100 í vikunni en hún
vann allt fyrir pallapartíið, vinning
að andvirði 100.000 króna í leiknum.
Hún var hæstánægð og sagði í
samtali við K100.is að vinningurinn
kæmi sér einstaklega vel fyrir fjöl-
skylduna en hún ætlar að slá upp af-
mælispartíi og grilli á pallinum í til-
efni af 16 ára afmæli sonarins á
sunnudaginn, 24. maí.
„Þá fá allir að njóta,“ segir Kar-
ítas. „Maður er bara ennþá eiginlega
í losti. Þetta er ekkert smá flott,“
segir hún. „Maður er bara orðlaus
yfir öllum þessum vinningum. Hvað
þetta var mikið. Maður þurfti bara
smátíma að melta þetta allt,“ bætir
hún við og hlær.
Fjölmargir tóku þátt í leiknum
sem fór fram á Facebook-síðu K100
en dreginn verður út nýr vinnings-
hafi alla föstudaga út maí og júní.
Hægt er að taka þátt í pallapartí-
leiknum á Facebook-síðunni til að
eiga möguleika á að vinna allt fyrir
pallapartíið á morgun með því að
deila því í athugasemd hvað planið
er um helgina og merkja þann sem
þú myndir vilja deila glaðningnum
með.
Heppin Heiðar Austmann afhenti Karítas allt fyrir pallapartíið í vikunni.
Fullkomið í afmælis-
veislu sonarins
Kristín Sif er
sjálf uppalin í
Borgarnesi.
Fegurð Borgarnes er fjölmennasti þéttbýliskjarninn í
Borgarbyggð og á sér merka sögu en öll dagskrá K100
verður í beinni útsendingu frá bænum á morgun.