Morgunblaðið - 21.05.2020, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
50 ára Aðalsteinn ólst
upp á Fáskrúðsfirði en
býr í Reykjavík. Hann
er matreiðslumeistari
frá Hótel Sögu og er
matreiðslumaður hjá
Advania. Aðalsteinn
situr í stjórn Þríþraut-
arsambands Íslands.
Maki: Linda Þorvaldsdóttir, f. 1972,
myndmenntakennari í Flataskóla í
Garðabæ.
Börn: Þorvaldur, f. 2000, og Una, f.
2002.
Foreldrar: Friðrik Stefánsson, f. 1924, d.
2008, skipstjóri, og Elín Aðalheiður Þor-
steinsdóttir, f. 1931, d. 2018, húsmóðir.
Þau voru búsett á Fáskrúðsfirði og í
Reykjavík.
Aðalsteinn
Friðriksson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú verður að leggja þitt af mörkum
ef þú vilt hlutdeild í árangri og umbun. Þú
ert ekkert á þeim skónum að fara að skipta
um húsnæði.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt full ástæða sé til að gera sér
glaðan dag þarftu líka að muna að það er
gott í hófi. Sinnuleysi fer í taugarnar á þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst þú búa við eitthvert
mótlæti þessa dagana. Minntu þig á að þú
getur ekki gert öllum til geðs og að það
skiptir máli að þú haldir sjálfsvirðingu þinni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ætlar að skoða fjármál þín
næstu daga. Varastu alla áhættu í þeim
efnum. Makinn er í góðum tengslum við líð-
an þeirra sem eru í kringum hann.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert einbeitt/ur og tilbúin/n. Þú
hefðir gott af því að skella þér á námskeið í
heilun eða núvitund. Allt gengur upp hjá þér
þessa dagana.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að þiggja hjálp samstarfs-
manna þinna. Þú hefur ekki alltaf rétt fyrir
þér þótt þig langi til þess. Mundu að þakka
fyrir það sem þú átt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt þú eigir bágt með að skilja hug-
myndir vinar þíns er engin ástæða til þess
að leggja vináttuna á ís. Ekki líta of lengi um
öxl því það er framtíðin sem skiptir máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það þýðir ekkert að berja höfð-
inu við steininn og ætla að breyta hlutum
sem eru löngu liðin tíð. Með réttum við-
brögðum getur þú komist hjá skaðabótum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur löngun til þess að
kaupa eitthvað sem þú getur státað af. Lífið
er ekki alltaf skemmtilegt en reyndu að líta
á björtu hliðarnar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þeir erfiðleikar, sem þér finnst
þú vera að glíma við, eru meiri í huga þér en
í raunveruleikanum. Haltu þínu striki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver vandræði koma upp í
vinnunni og þú þarft að leggja þig alla/n
fram til þess að ná sáttum. Forðastu að
vanrækja sjálfa/n þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú umgengst fólk sem veit virkilega
hvað það er að gera. Valdabaráttan er alls-
ráðandi og tilfinningarnar sem krauma eru
ekki allar góðar.
Fjölskylda
Eiginmaður Vilhelmínu var Vern-
harður Kristjánsson, f. 19.9. 1912, d.
29.7. 1985, rannsóknarlögreglumaður
og síðan þingvörður á Alþingi. Þau
gengu í hjónaband 10.2. 1957 og
bjuggu í Kópavogi. Vilhelmína bjó
síðan í Garðabæ eftir lát Vernharðs.
hún hafði mikla réttlætiskennd og
löngun til að hjálpa þeim sem minna
mega sín. Vilhelmína var ættfræði-
grúskari og gerði tvö hefti bæði um
sína ætt og ætt eiginmanns síns.
Hún er einnig náttúruunnandi og
hafði gaman af því að ferðast. Vil-
helmína dvelur nú á Hjúkrunar-
heimilinu Eirarholti í Reykjavík.
V
ilhelmína Bergþóra Þor-
valdsdóttir fæddist 21.
maí 1930 á Akureyri og
ólst þar upp. Hún var
mikil sundkona og
námsmanneskja og vann ritgerða-
samkeppni sem Herald Tribune stóð
fyrir 1949. Í verðlaun var ferð til
Bandaríkjanna en hún fékk Akur-
eyrarveikina og komst ekki.
Vilhelmína lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1950
og síðan BA-prófi í ensku, dönsku og
uppeldisfræði við HÍ 1954. Hún
stundaði enskunám við University of
London 1952 og sótti enskukennara-
námskeið í Hastings 1981. Þá kynnti
Vilhelmína sér störf kvenlögregl-
unnar í ýmsum borgum í Banda-
ríkjunum veturinn 1953- 54.
Vilhelmína stundaði ýmis störf
með námi. Hún var þingskrifari á
Alþingi veturna 1950-51 og 1951-52.
Þá var hún fyrsta lögreglukonan í
Reykjavík eftir að stofnuð var sér-
stök kvenlögregludeild innan lög-
reglunnar en hún starfaði þar 1954-
57.
Vilhelmína stundaði skrifstofu-
störf hjá rannsóknarstofu Fiski-
félags Íslands og síðar Rannsókn-
arstofnun fiskiðnaðarins 1957-70 og
var í hálfu starfi 1973-75 en hún var
ritari rektors Tækniskóla Íslands
1970-72. Hún var um árabil gjald-
keri og bókari Ferskfiskseftirlits
ríkisins og Félags íslenskra fisk-
framleiðenda. Vilhelmína starfaði
sem kennari við Þingholtsskóla í
Kópavogi frá 1972-93. Frá 1994-96
starfaði hún sem kennari við Steins-
staðaskóla í Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði.
Vilhelmína sat í stjórn Kvenfélags
Kópavogs 1970-74 og í stjórn Kven-
félagssambands Kópavogs 1973-75.
Hún sat í tómstundaráði Kópavogs-
kaupstaðar 1972-75 og í stjórn
Kópavogsdeildar Rauða krossins í
mörg ár, meðal annars sem gjald-
keri.
Vilhelmína er listræn og átti til að
kasta fram vísum. Hún gerði mikið
af því að vefa og mála og svo prjón-
aði hún fyrir Rauða krossinn. Hún
var lengi heimsóknarvinur hjá
Kópavogsdeild Rauða krossins, en
Foreldrar Vernharðs voru hjónin
Kristján Þorkelsson, f. 27.10. 1861, d.
10.1. 1934, bóndi og hreppstjóri í Álfs-
nesi á Kjalarnesi og síðar í Víðinesi,
og Sigríður Þorláksdóttir, f. 12.10.
1871, d. 23.7. 1945, húsfreyja.
Dætur Vilhelmínu og Vernharðs
eru 1) Elísabet Vernharðsdóttir, f.
26.3. 1958, iðjuþjálfi og starfar nú
Vilhelmína Þorvaldsdóttir kennari – 90 ára
Fjölskyldan Vilhelmína með dætrum sínum og barnabörnum í Ísafjarðardjúpi 2009.
Fyrsta lögreglukonan í Reykjavík
Hjónin Venni og Villa á góðri stundu á 7. áratugnum. Í Reynisfjöru Vilhelmína 78 ára gömul.
30 ára Hrund er
Reykvíkingur, ólst
upp í Grafarvogi og
býr í Bryggjuhverf-
inu. Hún er með BS-
gráðu í iðnaðarverk-
fræði frá Háskóla Ís-
lands og er
verkefnastjóri hjá Kviku banka en er í
fæðingarorlofi.
Maki: Davíð Stefánsson, f. 1991, forrit-
ari hjá Íslandsbanka.
Dóttir: Ónefnd Davíðsdóttir, f. 2020.
Foreldrar: Bergljót Þorsteinsdóttir, f.
1955, hjúkrunarfræðingur hjá Skóla-
heilsugæslu, búsett í Reykjavík, og
Ólafur Oddsson, f. 1951, verkefnastjóri
hjá Skógrækt ríkisins, búsettur á
Stekkjarflöt í Kjós.
Hrund
Ólafsdóttir
vfs.is
Notaðu CAMO
MARK
skrúfustykkið
þegar þú smíð
ar pallinn
og engir skrú
fuhausar verð
a sýnilegir.
Fáanlegir fyr
ir 83-127 eða
133-146 mmb
orð.
Verð aðeins 14
.900kr.
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Úrval af vinklu
m
og súluskóm í
pallasmíðina
SMAN
SNILLD Í
PALLASMÍÐI
Pallaskrúfur
60mm, 350 stk:
14.900 kr.
60mm, 700 stk:
26.900 kr.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Ónefnd Davíðsdóttir fædd-
ist 5. apríl 2020. Hún vó 3.195 g og var
50 cm. Foreldrar hennar eru Hrund
Ólafsdóttir og Davíð Stefánsson.
Nýr borgari