Skessuhorn - 03.06.2020, Blaðsíða 50
MIÐVIKUDAGUR 3. júnÍ 202050
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Ólafsvík 2020
Bifreiðaskoðun verður við
Fiskiðjuna Bylgjuna, Bankastræti 1
Miðvikudaginn 3. júní
Fimmtudaginn 4. júní
ATH. Allar stærðir ökutækja skoðaðar
Upplýsingar í síma 863-0710
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
EB flutningar
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Akraness
Ein ferð á dag
Allir almennir vöruflutningar
Get sótt pakka í búðir
Símanúmer 788-8865
ebflutningar@gmail.com
Laust starf sálfræðings á
skóla- og frístundasviði
Skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar auglýsir laust til umsóknar 85% starf sálfræðings við
skólaþjónustu skóla- og frístundasviðs.
Skólaþjónusta skóla- og frístundasviðs starfar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008, lögum
um grunnskóla nr. 91/2008 og reglugerð nr. 584/2010. Starfsmenn skólaþjónustu eru sálfræðingar,
talmeinafræðingur og iðjuþjálfi. Sálfræðingur vinnur í þverfaglegu teymi skólaþjónustunnar ásamt
samstarfi við kennara í leik- og grunnskólum, sérkennara, almenns starfsfólk, þroskaþjálfa og
iðjuþjálfa. Starfsstöð sálfræðingsins er í Brekkubæjarskóla og eru laun í samræmi við kjarasamning
Sálfræðingafélags Íslands og launanefndar sveitarfélaga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veitir starfsfólki leik- og grunnskóla stuðning við að efla skóla m.a. með fræðslu og ráðgjöf vegna •
kennslu og umönnunar nemenda, sérkennslu, starfshátta skóla, nýbreytni- og þróunarstarf og
starfsumhverfis.
Veitir ráðgjöf og fræðslu/námskeið til foreldra.•
Sinnir athugunum, greiningu og ráðgjöf vegna nemenda.•
Sinnir einnig eftirfylgd og mati á árangri í samstarfi við starfsfólk og •
foreldra.
Er þátttakandi í barnateymi Akraness í samstarfi við •
Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Tekur þátt í stefnumótunarvinnu sem tengist málaflokknum og •
felur meðal annars í sér að móta þjónustuna í samræmi við reglur
á hverjum tíma.
Hæfniskröfur
Sálfræðimenntun og leyfi til að starfa sem slíkur hér á landi með •
leyfi landlæknis.
Reynsla af greiningu og ráðgjöf á þroska- og hegðunarvanda •
barna og ungmenna skilyrði.
Þekking og reynsla af starfi sálfræðings skólaþjónustu er kostur.•
Réttindi til námskeiðshalds vegna hegðunar og líðan barna er •
kostur.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.•
Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða.•
Færni og sveigjanleiki í samskiptum.•
Faglegur metnaður.•
Góð íslensku- og tölvukunnátta.•
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgerður
Janusdóttir í tölvupósti á netfangið skoliogfristund@akranes.is eða í síma 433-1000.
Nánari upplýsingar um starfið ásamt umsóknareyðublaði má finna á heimasíðu Akraneskaupstaðar,
www.akranes.is/lausstorf.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Árið 1999 stofnuðu „gamlir“
Grundfirðingar félagið Eyrbyggj-
ar, hollvinasamtök Grundarfjarðar.
Félagið setti sér metnaðarfull mark-
mið, meðal annars að styðja við
menningarstarfsemi, safna og koma
á framfæri örnefnum í Eyrarsveit,
safna saman lýsingum á fiskimið-
um eins og þau urðu til hjá gömlum
sjómönnum, safna saman söguleg-
um fróðleik sem tengdist svæði og
samfélagi, sem og sögum frá „yngri“
Grundfirðingum.
Eyrbyggjar gáfu síðan út tíu bæk-
ur, sem fengu heitið „Fólkið, fjöllin,
fjörðurinn“. Félagið lét einnig gera
fjögur veggspjöld sem sýna fjalla-
hringinn við Grundarfjörð, Kolg-
rafafjörð og Lárvaðal þar sem til-
greind eru örnefni svæðisins. „Við
töldum mikilvægt að koma þessu
á framfæri við yngra fólkið þannig
að örnefni gleymdust ekki. Einnig
fengum við hóp staðkunnugra Eyr-
sveitunga til að færa örnefni inn á
loftmyndir. Þessi gögn fóru síðan
til Örnefnastofnunar en við höfum
ekki haft fjármagn til að láta prenta
kortin og gefa þau út,“ sagði Gísli
Karel Halldórsson, fyrsti formað-
ur Eyrbyggja og stjórnarmaður til
margra ára.
„Mikilvægt er að þessi gögn verði
öllum áhugasömum aðgengileg.
nokkrar fyrri bækur Eyrbyggja eru
nú ekki lengur fáanlegar. Eyrbyggjar
ákváðu því að koma útgefnum bók-
um sínum á tölvutækt form og hafa
nú afhent Grundarfjarðarbæ allar
bækurnar á tölvutæku formi. Efnið
hefur nú verið sett inn á nýjan bæj-
arvef Grundarfjarðarbæjar, þann-
ig að bækurnar verði aðgengilegar
öllum áhugasömum,“ segir Björg
Ágústsdóttir bæjarstjóri. mm/bá
„Skemmtilegur áfangi verður hjá
okkur í Tónlistarskólanum á Akra-
nesi í dag, miðvikudaginn 3. júní,“
segir jónína Erna Arnardóttir skól-
stjóri. „Þá verða haldnir tvennir
framhaldsprófstónleikar þar sem
Hrefna Berg Pétursdóttir fiðlu-
leikari og Hafdís Guðmundardótt-
ir söngkona flytja fjölbreytta dag-
skrá. Allir eru velkomnir á tón-
leikana og það er enginn aðgangs-
eyrir. Tónleikar Hrefnu hefjast
kl. 18:00 í Tónbergi og tónleikar
Hafdísar hefjast kl. 20:00 en þeir
verða í Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Meðleikarar á tónleikunum verða
Hrönn Hrafnsdóttir og Zsuzs-
anna Budai á píanó og einnig leikur
Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðlu-
leikari á tónleikum Hrefnu.“
Skólinn hefur ekki áður útskrifað
tvo framhaldsnema í einu og einnig
er þetta í fyrsta sinn sem fiðluleik-
ari lýkur framhaldsprófi við skól-
ann, segir jónína Erna.
mm
Sögur frá Grundarfirði nú
aðgengilegar á vefnum
Meðfylgjandi mynd var tekin fimmtudaginn 28. maí síðastliðinn þegar Gísli Karel Halldórsson, fulltrúi Eyrbyggja, afhenti
bæjarráði og bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar gögnin til að gera þau aðgengileg öllum án kostnaðar. Ljósm. aðsend.
Tvennir framhaldsprófstón-
leikar frá TOSKA í dag