Skessuhorn - 03.06.2020, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2019 31
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Síðastliðinn föstudag var skrif-
að undir kaupsamning þar sem út-
gerðarfélagið Brim hf. selur hópi
fjárfesta allt hlutafé í norðanfiski
ehf. Fyrirtækið hefur starfsstöð
sína við Vesturgötu 5 á Akranesi og
eru starfsmenn um þrjátíu talsins.
norðanfiskur sérhæfir sig í fram-
leiðslu, sölu og dreifingu á úrvals
sjávarfangi til veitingahúsa á innan-
landsmarkaði ásamt sölu neytenda-
pakkninga í verslunum um allt land.
Kaupandi fyrirtækisins er nýtt eign-
arhaldsfélag í eigu tíu aðila sem all-
ir eiga rætur á Akranesi auk fram-
kvæmdastjóra norðanfisks, Sigur-
jóns Gísla jónssonar, sem áfram
mun stýra fyrirtækinu. Formaður
stjórnar verður Inga Ósk jónsdóttir
en hún og eiginmaður hennar Gísli
Runólfsson eru stærstu hluthafar
í eignarhaldsfélaginu sem kaupir.
Auk framangreindra hluthafa koma
að nýju eignarhaldsfélagi: Bifreiða-
stöð ÞÞÞ, Eignarhaldsfélag VGj í
eigu hjónanna Eiríks Vignissonar
og Ólafar Ólafsdóttur, hjónin Karen
jónsdóttir og Kristján Baldvinsson,
Gestur Breiðfjörð Gestsson auk
fjögurra jafnaldra úr árgangi 1971,
þeirrra Sævars Freys Þráinssonar,
Harðar Svavarssonar, jóns G Ottós-
sonar og HH verktaks sem er í eigu
Hannesar Birgissonar og Hjartar
Lúðvíkssonar.
„Það er öflugur hópur sem er að
kaupa félagið norðanfisk ehf. Við
erum að veðja á þá framtíðarsýn
sem Sigurjón Gísli jónsson fram-
kvæmdastjóri hefur mótað fyrir fyr-
irtækið. norðanfiskur er traust og
gott félag. Við teljum afar mikil-
vægt að norðanfiskur verði áfram
á Akranesi og við sjáum vissulega
tækifæri til sóknar,“ sagði Inga Ósk
jónsdóttir, formaður stjórnar, sem
nú tekur við búsforráðum í norð-
anfiski af Brimi. Kristján Þ. Davíðs-
son stjórnarformaður Brims hf. gat
þess við undirritun samningsins að
norðanfiskur ætti langa og farsæla
sögu á Akranesi og fagnaði hann
því að hópur heimafólks tæki nú við
og ætlaði að tryggja rekstur áfram á
sama stað.
Fram kom við undirritun samn-
ingsins að ráðgjafar í söluferlinu
hafi verið Sævar Freyr Þráinsson
bæjarstjóri, KPMG og Örn Gunn-
arsson hjá Lex lögmannsstofu. Ís-
lensk verðbréf var auk þess ráð-
gjafi og stýrði söluferlinu fyrir hönd
Brims. Kaupsamningur um norð-
anfisk er undirritaður með fyrirvara
um áreiðanleikakönnun. Komi ekk-
ert út úr slíkri könnun er gert ráð
fyrir að gengið verði formlega frá
viðskiptunum á næstu vikum. mm
Hópur fjárfesta á Akranesi hefur keypt Norðanfisk
Fulltrúar kaupenda, seljenda og ráðgjafa við söluferlir stilltu sér upp að undirritun lokinni. Á borðinu fyrir framan má sjá hluta af framleiðsluvörum Norðanfisks.
Óskum sjómönnum til
hamingju með daginn
einangrun – umbúðir