Skessuhorn - 03.06.2020, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 3. júnÍ 2020 7
FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF
26 íbúðir af 37 seldar
Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað
miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann
Dalbraut 1, Akranesi.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar
án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél
í eldhúsinnréttingu.
Sýningaríbúð tilbúin á 1. hæð.
2ja-3ja herbergja íbúðirnar eru frá 93 fm til 96 fm,
möguleiki að bæta við öðru svefnherbergi. Sérmerkt
bílastæði. Sérgeymsla í kjallara.
Verð 39,0 millj. (ein íbúð eftir).
3ja herbergja íbúðirnar 105 fm til 107 fm. Íbúðunum
fylgir stæði í bílakjallara og sérgeymslu í kjallara.
Verð frá 46,6 millj. til 50,9 millj.
4ra herbergja íbúðirnar eru frá 126 fm til 128 fm.
Íbúðunum fylgir stæði í bílskýli og sérgeymslu í kjallara.
Verð frá 56,4 millj. til 59,4 millj.
Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandnum
HTH.
Innihurðir og flísar frá Parka.
Heimilistæki frá Ormsson.
Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast
beðið um að hafa samband í síma 898-9396 eða
á hakon@valfell.is og panta tíma til skoðunar,
sýningaríbúð á 1. hæð hússins.
Stillholt 21 – Akranesi
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Opinn ársfundur Brákarhlíðar
Ársfundur Brákarhlíðar verður haldinn
fimmtudaginn 4. júní n.k. kl.16:00 í sam-
komusal heimilisins.
Dagskrá:
Ársfundarstörf samkvæmt skipulagsskrá
heimilisins.
Allir velkomnir!
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Átta opinber störf færast á Sauðár-
krók á næstunni með breytingum á
sviði brunavarna, en þær heyra und-
ir Húsnæðis- og mannvirkjastofn-
un (HMS) eftir sameiningu Íbúðal-
ánasjóðs og Mannvirkjastofnunar
um síðustu áramót. Sú eining sem
sinnir skipulagningu brunaeftirlits
verður þar með hluti af starfsstöð
HMS á Sauðárkróki. Fyrir starfa
þar um tuttugu manns við úthlut-
un húsnæðisbóta, í þjónustuveri
og bakvinnslu fyrir húsnæðissvið
HMS. Fjölgun þeirra sem sinna
brunamálum er ein af þeim aðgerð-
um sem Ásmundur Einar Daða-
son, félags- og barnamálaráðherra,
leggur áherslu á til að að efla um-
gjörð brunamála og brunavarna á
Íslandi. Um er að ræða bæði stjórn-
unarstörf og störf sérfræðinga og
verða nokkur þeirra auglýst laus til
umsóknar á næstunni.
Með þessu kveðst ráðherrann
vera að bregðast við ábendingum í
nýrri skýrslu um málaflokkinn sem
gerð verður opinber á næstunni. Í
skýrslunni, sem unnin var af starfs-
hópi skipuðum af stjórn HMS,
kemur m.a. fram að nauðsynlegt
sé að efla og stækka slökkviliðin á
landsbyggðinni. Einnig þurfi að
uppfæra regluverk brunamála og
gefa út leiðbeiningar um eftirfylgd
reglugerða. Þá þurfi heilt yfir að
efla stjórnsýslu málaflokksins.
Í skýrslu starfshópsins kem-
ur m.a. fram að staða brunamála
á Íslandi sé nokkuð góð í saman-
burði við nágrannalöndin. Tjón af
völdum eldsvoða sé minna hér á
landi, hvort sem litið sé til manns-
lífa eða eigna. Þó telja skýrsluhöf-
undar það áhyggjuefni að síðustu
ár hafi tjón vegna bruna verið að
aukast og brýnt sé að finna leiðir til
að stöðva þá þróun. nauðsynlegt
sé að stórefla brunaeftirlit og gerð
brunavarnaráætlana. Vilja skýrslu-
höfundar koma í veg fyrir að tjón
vegna eldsvoða aukist enn frekar
hér á landi vegna stærri, flóknari
og dýrari bygginga sem reistar hafa
verið á síðustu árum. mm
Ráðherra er hér eftir fund í liðinni viku ásamt starfsfólki HMS og Slökkviliði Skagafjarðar.
Nauðsynlegt að efla og stækka
slökkvilið á landsbyggðinni
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is