Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2020, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 03.06.2020, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 201914 Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn Stefán Viðar Ólason fæddist á Ísa- firði 1992 og bjó í Bolungarvík. Hann fluttist átta ára gamall til Grundarfjarðar þegar útgerð Guð- mundar Runólfssonar hf. keypti bátinn Heiðrúnu ÍS, en faðir Stef- áns, Óli Fjalar Ólason, var skip- stjóri á þeim báti sem síðar fékk nafnið Ingimundur SH. Stefán ólst upp í mikilli nálægð við sjóinn og sjómannslífið, en faðir hans var sjó- maður alla tíð. Eldri bróðir Stefáns, Samúel Karl, fékk að fara á sjó með föður þeirra þegar hann var sjö ára gamall og Stefán vildi að sjálfsögðu að það sama gengi yfir hann. „Ég var rúmlega óþolandi þangað til að ég fékk að fara með,“ segir Stefán er hann rifjar þetta upp. „Sammi bróðir er átta árum eldri og ég ætl- aði sko ekki að vera minni maður en hann,“ bætir hann við. Ætlaði að verða eins og pabbi „Ég fékk að fara á sjó með pabba þegar ég var sjö ára gamall og þá kom ég fyrst til Grundarfjarðar þeg- ar báturinn landaði þar í eitt skipt- ið,“ segir hann. „Ég fór einu sinni til tvisvar á ári á sjó með pabba þeg- ar ég var gutti þangað til að ég fékk loksins pláss hjá honum sem háseti. Það var á Helga SH en pabbi var þá stýrimaður þar. Á tímabili vor- um við þrír þar um borð; ég, pabbi og Sammi bróðir,“ bætir hann við. Stefán fékk snemma að kynnast sjó- mennskunni enda er hún honum í blóð borin. „Ég ætlaði alltaf að verða sjómaður frá því að ég man eftir mér. Ég ætlaði alltaf að verða eins og pabbi sem var mín helsta fyrirmynd í lífinu.“ Leysti af samhliða námi Það lá því alltaf fyrir að sjórinn yrði starfsvettvangur framtíðarinn- ar og árið 2012 fór Stefán í Stýri- mannaskólann. „Ég tók alla lausa- túra sem ég fékk og vann svo í fisk- vinnslu með skólanum þess á milli. Ég hef alltaf unnið við sjávarútveg frá því að ég fór á vinnumarkaðinn en ég leysti mikið af á Helga SH og Hring SH hérna í Grundarfirði samhliða náminu.“ Skólagangan í Stýrimannaskólanum hófst þó ekki með glæsibrag, en Stefán átti við nokkra námsörðugleika að stríða. „Ég var með mikinn athyglisbrest og gekk illa í skóla. Það var ekki fyrr en ég leitaði mér aðstoðar og fékk lyf árið 2013 að allt varð miklu léttara og einkunnirnar hækkuðu,“ segir Stefán. Stefán Viðar Ólason í Grundarfirði: „Ég var rúmlega óþolandi þar til ég fékk að fara á sjó“ Gallinn hefði ekki gert mikið gagn Hann segist hafa prófað ýmislegt á sjó. „Ég hef verið á nánast öllum veiðarfærum nema snurvoð,“ seg- ir Stefán en hann hefur einnig ver- ið á strandveiðum frá norðurfirði þaðan sem hann á ættir að rekja. „Það er líklega sá tími sem var hvað skemmtilegastur þegar ég og Sammi bróðir vorum á strandveið- um frá norðurfirði á Hafsól ST-42 sem er bátur í eigu fjölskyldunnar.“ Þetta var sumarið 2010 og fiskuðu þeir bræður nokkuð vel þrátt fyrir að vera ekkert sérstaklega vel bún- ir. „Ég man þegar við vorum að út- búa okkur fyrir strandveiðarnar og það eina sem vantaði í bátinn til að fá leyfi var björgunargalli. Þetta var á þeim tíma að margir voru að hefja strandveiðar og voru í sömu sporum og við bræður. Við Sammi fórum í Viking Life saving equip- ment til að versla okkur flotbún- ing en þá var nánast allt uppselt hjá þeim og eina sem þeir áttu var galli af minnstu stærð. Við bræður erum hins vegar frekar stórir um okkur og sterklega vaxnir og það var ekki fræðilegur möguleiki fyrir hvor- ugan okkar að troða okkur í galla af þessari stærð. Við létum þó slag standa og versluðum einn galla af minnstu gerð til að fá leyfið, en það er alveg á hreinu að hann hefði ekki gert neitt gagn fyrir hvorugan okk- ar í neyðartilfelli, því að hvorugur okkar komst í hann,“ rifjar Stefán upp og hlær. Stefnir á full réttindi Árið 2016 bjó Stefán í Bolungar- vík og réri á Sirrý ÍS. „Faðir minn veikist alvarlega árið 2016 og ég tók strax þá ákvörðun að flytja heim til Grundarfjarðar til að vera hjá for- eldrum mínum,“ segir Stefán. Hann réði sig þá á Hamar SH á línuveið- ar en eftir sjómannaverkfallið 2017 skipti hann um vettvang. „Ég fæ þá pláss á Farsæli SH sem 2. stýri- maður og leysi þá af sem stýrimað- ur þegar þurfti,“ segir Stefán. „Fað- ir minn fellur svo frá í febrúar 2018 eftir stutta baráttu við krabbamein og var það mikið áfall fyrir okkur, en hann var aðeins 53 ára þegar hann dó,“ segir Stefán. „Hann var minn helsti stuðningsmaður í lífinu og því var missirinn mikill,“ bætir hann við. Stefán stefnir á að klára skip- stjórnarréttindin sín á næstunni. „Ég er með réttindi á 45 metra skip en á eftir nokkrar einingar í við- bót til að fá réttindi á ótakmark- aða stærð fiskiskipa,“ segir hann, en stefnir ótrauður á að ljúka náminu í fjarnámi samhliða sjómennskunni. Annað kemur ekki til greina. tfk Á landleið með fullfermi mánudaginn 25. maí síðastliðinn. Grundarfjörður í baksýn. Stefán fyrir framan Farsæl SH þar sem hann er 2. stýrimaður. Stefán Viðar stýrir Hafsól ST-42 að bryggju á Norðurfirði sumarið 2010. Hér eru þeir bræður Stefán Viðar og Samúel Karl að ganga frá eftir góðan dag á strandveiðum sumarið 2010. Stebbi við vinnu um borð í Farsæli SH. SK ES SU H O R N 2 01 6 Akraneskaupstaður sendir sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni dagsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.