Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. oKtÓBER 2020 11 Epoxy gólfefni fyrir fiskvinnsluna Vörumóttökuna Verkstæðið Lagerinn Bílageymsluna Matvælaiðnað Epoxy gólfefni fyrir fiskvinnsluna Vörumóttökuna Verkstæðið Lagerinn Bílageymsluna Matvælaiðnað EPOXY GÓLFEFNI EPOXY GÓLFEFNI EPOXY GÓLFEFNI EPOXY GÓLFEFNI EPOXY GÓLFEFNI Lögreglan á Vesturlandi hefur til rannsóknar alvarlega líkams- árás sem framin var í Borgarnesi á mánudaginn í liðinni viku. Voru bæði meintur árásamaður og þol- andi fluttir á sjúkrahús. Maður- inn sem varð fyrir árásinni er á sex- tugsaldri og hlaut talsverða áverka sem og meintur árásarmaður. Voru þeir því báðir fluttir á sjúkrahús, en þurftu þó ekki á gjörgæslumeðferð að halda. Haft var eftir Jóni S. Ólasyni, yfirlögregluþjóni hjá Lögreglunni á Vesturlandi í Morgunblaðinu í liðinni viku, að rannsókn málsins hafi verið á afar viðkvæmu stigi og að ekki verði veittar frekari upplýs- ingar um málið að svo stöddu, enda rannsókn þess í gangi. kgk Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í gær grein fyrir stöðunni sem kom- in er upp í Skagafirði vegna stað- festrar riðuveiki í tröllaskagahólfi. Í síðustu viku greindist riðuveiki á bænum Stóru-Ökrum 1. Fé þaðan hafði verið að Grænumýri og Syðri- Hofdölum í Blönduhlíð og að Hofi í Hjaltadal. Starfmenn Matvæla- stofnunar hafa undanfarna daga kortlagt frekari útbreiðslu veikinn- ar og unnið að sýnatöku. Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að sterk- ur grunur er um að riðuveiki sé til staðar í sauðfé á þremur búum en endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir. Ekki hefur greinst riðuveiki á þessu svæði í tröllaskagahólfi frá árinu 2000. „Þessar fréttir eru mikið reiðars- lag,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra. „Ég hef gefið út skýr fyrir- mæli til ráðuneytisins og Matvæla- stofnunar um að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að styðja við bændur á svæðinu í gegnum þetta áfall,“ segir ráðherra. Heildarfjöldi gripa sem skera þarf niður liggur ekki fyrir en sterk- ar vísbendingar eru um að hann verði umtalsverður. Í ljósi þess hef- ur Matvælastofnun óskað eftir að Umhverfisstofnun liðsinni stofn- uninni um lausnir við förgun. Þá liggur fyrir að kostnaður ráðuneyt- isins vegna málsins mun verða tölu- verður en ríkið mun greiða bætur og kostnað vegna riðuveikinnar til eigenda búfjár þar sem niðurskurð- ur er nauðsynlegur. mm Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til: viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær. sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í byggð. Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2020. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á heimasíðu safnsins www.borgarsogusafn.is). Suðurgötu 39,101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is husafridunarsjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2021 Riðuveiki rædd í ríkisstjórn Alvarleg líkamsárás í Borgarnesi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.