Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 29
15
Starfsemi Brákarhlíðar er skipt upp í tvö meginsvið; hjúkrun-arsvið og þjónustusvið. Undir
hjúkrunarsvið fellur öll fagleg um-
önnun, samskipti við lækna, vistun-
armatsnefnd, umsjón með lyfjamál-
um og starfsmannamál í aðhlynn-
ingu. Þjónustusvið heldur utan um
starfsmannamál og innkaup í eld-
húsi, ræstingu, húsvörslu, iðju- og
vinnustofu og annað tilfallandi.
Í Brákarhlíð eru fimm heimili
sem hvert ber sitt nafn, þau
eru Tjörn, Dalur, Hvammur,
Efri-Lækur og Neðri-Lækur.
Hvammur og Dalur eru í
nýbyggingunni sem tekin var
í notkun árið 2012. Á báðum
heimilunum eru 13 herbergi sem
eru nær eingöngu hjúkrunarrými.
Þar er eldhús og opið rými með
sjónvarpi í setustofu. Bæði heimilin
eru jafn stór með eins skipulagi.
Þriðja hemilið í nýju byggingunni
er Tjörn sem er á neðstu hæð. Þar
eru níu herbergi auk tækjarýma.
Á öllum heimilum í
nýbyggingunni eru herbergin jafn
stór, 36 fermetrar, með jafn stóru
eldhúsi.
Í eldri álmu Brákarhlíðar
eru tvö heimili, Efri-Lækur
og Neðri-Lækur. Þar eru nær
eingöngu dvalarrými. Öll
herbergin voru gerð upp og
stækkuð svo þau eru svipuð
að stærð og herbergin í nýju
byggingunni. Eins og á hinum
heimilunum er einnig eldhús
og setuaðstaða á Efri-Læk og
Neðri-Læk. Starfsfólk á heimilum
Brákarhlíðar sinnir öllum íbúum
á sínu heimili auk þess að sjá um
öll almenn verk heimilisins að
undanskildum ræstingum.
Ýmis verkefni eru í gangi
auk hefðbundins heimilislífs.
„Við erum með samning við
sjúkraþjálfara sem halda utan
um reglubundna þjálfun auk
starfsmanna heimilisins. Verkefnið
„Væntumþykja í verki“ var sett á
fyrir frumkvæði sjúkraþjálfaranna
Hildar Aðalbjargar Ingadóttur og
Halldóru Jónasdóttur. Er þar að
finna æfingar fyrir heimilismenn
sem aðstandendur og aðrir geta
haldið utan um með sínum ástvin.
Æfingarnar eru þannig upp
settar að mismunandi æfingar eru
settar saman út frá heilsufari og
getu hvers og eins. Dagdvöl er
alla jafna starfrækt á heimilinu
virka daga þó sú starfsemi liggi
niðri nú í augnablikinu sökum
heimsfaraldurs. Er þar að um að
ræða rými fyrir fimm einstaklinga,“
segir Björn Bjarki Þorsteinsson
framkvæmdarstjóri Brákarhlíðar. Á
jarðhæð heimilisins eru starfræktar
annars vegar fótsnyrtistofa og og
hins vegar hárgreiðslustofa. Er sú
starfsemi óháð rekstri Brákarhlíðar
en heimilismenn geta sótt þjónustu
þangað.
arg
Óskar Þór Óskarsson hefur í gegnum árin verið dugleg-ur að skrásetja sögu Brák-
arhlíðar í formi myndbandsupp-
taka og ljósmynda. Þegar heimil-
ið var stækkað á sínum tíma kom
hann þar annað slagið og mynd-
aði ferlið. Í samvinnu við Guðlaugu
Andrésdóttur, sem á þeim tíma sá
um félagsstarf aldraðra í Brákar-
hlíð, setti Óskar saman skemmtileg
myndbönd sem sýnd voru á skjá-
varpa í félagsstarfinu hjá íbúum
heimilisins. „Við vorum með ágætis
skjávarpa og græjur til að varpa upp
myndböndum fyrir heimilisfólk
og aðra gesti sem gjarnan komu til
að sjá myndböndin,“ segir Óskar.
Samstarfið stóð yfir í um 15 ár þar
sem Óskar sýndi reglulega mynd-
bönd úr lífi íbúa Brákarhlíðar. „Svo
komu þessi nýju persónuverndar-
lög og maður þorir ekki að láta sjá
sig þarna með myndavél eftir það,“
segir Óskar.
En af hverju hefur hann varið
öllum þessum tíma í þetta verkefni?
„Einfaldlega því mér þykir það
skemmtilegt. Mér þykir vænt um
þetta heimili og þar hef ég átt
marga góða vini sem ég heimsæki
reglulega. Þetta hefur kannski
bara verið mín leið til að gefa til
baka,“ svarar Óskar. „Ég hef í
gegnum árin haft gaman að því að
mynda ýmislegt fyrir mig sjálfan
og langaði að leyfa öðrum að njóta
þess með mér sem gætu kannski
haft ánægju af,“ bætir Óskar við.
arg
Á árshátíð starfsmanna Brákarhlíðar eru veittar viðurkenningar
fyrir starfsaldur.
Myndræn skrásetning
í Brákarhlíð
Óskar Þór Óskarsson.
Margir voru saman komnir úti við fyrstu skóflustunguna að stækkun heimilisins.
Blíðskapaveður þegar fyrsta skóflustungan var tekin að stækkun heimilisins.
Frá forsetaheimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar í Brákar-
hlíð.
Starfsemi
og skipulag
Hvammur og Dalur eru í nýbyggingunni sem tekin var í notkun 2012. Ljósm. mm.
Til hamingju með 50 árin!
Garðaþjónustan
Sigur-Garðar
Hs: 435-1435 Vs: 892-7663 Hvanneyri – stofnað 1978
Jörvi hf. Bifreiðaþjónusta
Harðar ehf.