Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 19
5
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
FASTUS ÓSKAR
BRÁKARHLÍÐ
TIL HAMINGU MEÐ
50 ÁRA AFMÆLIÐ!
Þökkum ánægjulegt og farsælt
samstarf í gegnum tíðina.
Í Brákarhlíð hefur síðustu tíu ár verið unnið eftir Eden hug-myndafræðinni. Heimilið mun
brátt fá alþjóðlega viðurkenningu
sem slíkt. „Við kynntumst Eden
hugmyndafræðinni fyrst árið 2010
og höfum verið að vinna í anda
hennar síðan þá. Hugmyndafræðin
byggir fyrst og fremst á virðingu fyr-
ir einstaklingnum, að hann geti lif-
að lífinu með reisn. Hér vinnum við
á heimili fólks en það dvelur ekki á
okkar vinnustað,“ útskýrir Jórunn
María Ólafsdóttir, hjúkrunarforstjóri
í Brákarhlíð.
Stuðla að
sjálsákvörðunarrétti íbúa
„Eden hugmyndafræðin fókusar
á að útrýma plágunum þremur;
einmanaleika, vanmáttarkennd og
leiða með áherslu á líf sem vert
er að lifa. Þetta snýst í raun fyrst
og fremst um að breyta viðhorfi
og menningu hjá starfsfólki,
aðstandendum og samfélaginu öllu.
Við erum að koma hingað inn á
heimili fólks en þau eru ekki stödd
á okkar vinnustað og það erum við
sem eigum að taka tillit til þeirra en
ekki öfugt,“ segir Jórunn og bætir
við að hugmyndafræðin gangi einnig
út á að halda sjálfsvirðingu sinni og
stuðla að sjálfsákvörðunarrétti íbúa.
„Það eiga allir að geta haft eitthvað
um sitt að segja. Það er ótrúlega
gott að vera á hóteli í smá tíma og
fá fulla þjónustu en það er ekki gott
til lengdar. Það er okkur mikilvægt
að hafa hlutverk, þó það sé bara að
stafla diskum, rétta vatnskönnuna
eða eitthvað slíkt. Allir þurfa að fá
að taka þátt í heimilislífinu en ekki
bara vera þiggjendur,“ segir Jórunn.
Þá segir hún það fara eftir getu
hvers og eins hvaða hlutverki hann
gegnir. „Vissulega geta ekki allir
gert allt en allir geta samt eitthvað,
hvort sem er að stafla diskum, veita
öðrum félagsskap eða í raun bara
hvað sem er. Það er okkur mikilvægt
að hafa hlutverk, og eiga innihaldsrík
samskipti,“ segir hún.
Einmanaleiki og einvera
ekki það sama
Einmanaleiki getur verið erfiður
fyrir marga, sérstaklega á efri árum
og þess vegna er lögð áhersla í Eden
hugmyndafræðinni á að stuðla að
samskiptum. „Öll samskipti eru
mikilvæg, hvort sem er á milli íbúa,
við starfsfólk, ástvini eða aðra. Við
leggjum okkur fram við að stuðla
að innihaldsríkum samskiptum,“
segir Jórunn en tekur fram að
einmanaleiki og einvera sé ekki sami
hluturinn. „Þetta snýst ekki um að
hafa standandi partí öllum stundum
heldur að fólk upplifi sig sem hluta
af heild. Það er misjafnt hvað
hentar hverjum og einum og erum
við því með fjölbreytta nálgun. Til
dæmis er hægt að fara í söngstundir
með Vigni húsverði, hópastarf
með Aldísi, jóga, morgunleikfimi,
upplestur úr Skessuhorni og margt
margt fleira. Svo er sest saman við
borðið í hádegis- og kvöldmat og
rætt saman eins og gert er á flestum
heimilum,“ útskýrir hún. „Við tölum
ekki um deildir og sjúklinga eins
og þekktist áður, heldur heimili og
íbúa. Heimilin í Brákrarhlíð eru
ólík, eins og önnur heimili, hvert
og eitt hefur sinn brag. Á einu
heimilinu er til að mynda alltaf
hlustað á fréttirnar á slaginu og
þögn á meðan. En á öðru heimili
er frekar hlustað á tónlist en fréttir.
Það er alveg allur gangur á þessu og
svo breytist heimilisbragurinn með
heimilismeðlimum,“ segir Jórunn.
Viðurkenning fyrir heimilið
„Þetta er ánægjulegt og fróðlegt
ferðalag sem við erum rétt að
byrja á,“ segir Jórunn en bætir
við að hún sjái þó mörg stór og
lítil skref hafa verið tekin síðasta
áratug. „Árið 2010 hættum við
með starfsmannafatnað. Þá höfðu
starfsmenn lengst af verið í hvítum
sloppum en núna eru allir í sínum
fötum. Þetta eykur heimilislegan
brag en fólki líður ekki eins og
þetta sé heimili þegar fólk um allt
er í hvítum sloppum,“ segir hún.
Eden hugmyndafræðin er ekki
bundin við formlegar reglur eða
ramma. „Þetta snýst í raun ekki
um að heimilið þurfi að vera með
einum eða öðrum hætti heldur
snýst þetta um hugarfar og viðhorf
til heimilisins og íbúanna,“ segir
Jórunn. En af hverju skiptir þá
máli að verða formlega Eden
heimili? „Þetta er fyrst og fremst
viðurkenning fyrir okkar starf og á
því sem við erum að gera, eiginlega
eins og klapp á bakið. Það er alltaf
gott að fá slíka viðurkenningu og
það hvetur okkur áfram, heldur
okkur við efnið, rammar inn það
starf sem við erum að vinna og
leiðir okkur áfram veginn,“ svarar
Jórunn.
Covid andstæðan við Eden
Hvernig hefur gengið að vinna
eftir Eden hugmyndafræðinni á
tímum kórónuveirufaraldursins?
„Það má segja að Covid sé alveg
andstæðan við Eden,“ svarar
Jórunn. „Eden hugmyndafræðin
snýst um samskipti, að gefa af sér
og nærveru en núna erum við að
leggja áherslu á fjarlægð og skertari
samskipti. Ég er þó ánægð hversu
vel okkur hefur gengið að finna
nýjar leiðir og ég held að það
hjálpi til hversu margir starfsmenn
héðan hafa sótt námskeið í Eden
hugmyndafræðinni,“ segir Jórunn.
„Þó þetta sé hjúkrunarheimili er
þetta samt heimili og hér eru alla
jafna allir velkomnir svo það er
mikil svipting fyrir íbúa að loka
heimilinu svona. En starfsfólkið
hefur staðið sig mjög vel að gera
það sem hægt er til að gera dagana
sem besta, og gera aðstæðurnar eins
heimilislegar og góðar fyrir íbúana
og hægt er,“ segir Jórunn.
arg
Brákarhlíð fullgilt Eden heimili
Jórunn María
Ólafsdóttir.