Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 48
MIÐVIKUDAGUR 28. oKtÓBER 202020
Kristín Ósk Halldórsdóttir kjóla-
klæðskeri flytur brátt verslunina
Krósk og vinnustofu sína að
Kirkjubraut 54 á Akranesi. Hún
hefur undanfarin ár haft vinnustofu
sína og litla verslun að Smiðjuvöll-
um 8. Þess utan var hún með versl-
un í félagi við aðra við Laugaveg í
Reykjavík þangað til síðastliðið vor.
„Vefverslunin var orðin svo stór að
ég fór að velta því fyrir mér í vor
hvort það væri þörf fyrir að vera
með verslun í Reykjavík. Mig lang-
aði helst bara að vera á Akranesi,“
segir Kristín Ósk. „Það er búið að
vera mjög fínt að gera, bæði hérna
á Skaganum og svo í vefverslun-
inni, svo ég ákvað að í staðinn fyr-
ir að fara aftur í bæinn myndi ég
bara stækka við mig hérna,“ seg-
ir hún og bætir því við að hún hafi
heillast af rýminu á Kirkjubraut-
inni. „Þetta er flott staðsetning og
stærðin hentar mér mjög vel eins
og rýmið er núna,“ segir Kristín
Ósk. „Nú næ ég að sýna vörurnar
mínar betur í stærra sýningarrými,
það er skemmtilegra að taka á móti
fólki í stærra og betra rými,“ bætir
hún við, en Kristín stefnir að því að
verða flutt á nýjan stað um miðjan
nóvembermánuð.
KrÓsk er verslun með kvenföt þar
sem kjólar, peysur og fylgihlutir
eru í aðalhlutverki. Í sinni hönnun
leggur Kristín Ósk áherslu á góð-
ar og klæðilega sniðnar flíkur úr
góðum efnum. „Ég teikna mynstr-
in sjálf og læt prjóna þau fyrir mig.
Flestir kjólarnir eru handlitaðir,
þannig að hver hefur sín sérkenni,
enginn er nákvæmlega eins,“ seg-
ir hún. „Maður reynir að skapa
sér svona smá sérstöðu en fyrst og
fremst eru þetta góðar flíkur og ég
legg áherslu á að nota helst nátt-
úruleg efni, þannig að ég nota mik-
ið ull og viskós, þar sem ég sjálf
kann betur við að klæðast náttúru-
legum efnum en gerviefnum,“ bæt-
ir hún við.
Frá því Kristín Ósk útskrifað-
ist sem kjólaklæðskeri árið 2012
tók hún þegar til við að hanna og
þróa vörulínu fyrir KrÓsk. „Fyrst
stækkaði þetta hægt og rólega en
ég er búin að vera alfarið í þessu í
nokkur ár, ætli það séu ekki síðustu
fjögur eða fimm ár, í meira en fullu
starfi,“ segir hún. „Þetta er mjög
skemmilegt og skapandi starf, sem
er auðvitað aðalástæðan fyrir því að
maður er í þessu. Það er mjög gott
að hafa gaman af vinnunni,“ segir
Kristín Ósk að endingu.
Áhugasömum er bent á að fylgj-
ast má með Krístínu Ósk og skoða
vörurnar hennar á vefsíðunni www.
krosk.is.
kgk/ Ljósm. gbh.
Eyrnaband og vettlingar eftir Kristínu Ósk.
KrÓsk flytur að
Kirkjubraut á Akranesi
Kristín Ósk Halldórsdóttir. Ljósm. Karen Rut Finnbogadóttir.
Kjólar eftir Kristínu Ósk.
Flestir kjólarnir eru handlitaðir og því eru engir tveir nákvæmlega
eins.