Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 39
25
Kveðja frá SBK
Til hamingju með afmælið
Brákarhlíð!
Fyrir rúmum 50 árum hóf
Samband borgfirskra kvenna (SBK)
söfnun fyrir dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi. 31. janúar 1971 opnaði
svo dvalarheimilið (DAB) og fagnar
því 50 ára starfsafmæli í janúar nk.
Kvenfélögin hafa í gegnum árin
verið dyggir stuðningsmenn, gefið
veglegar gjafir og skipt á milli
sín heimsóknum yfir veturinn.
Þá er oft glatt á hjalla, komið
með bakkelsi, sungið og ýmislegt
skemmtilegt brallað.
Í ár höfum við þurft að
stíga til hliðar og höfum ekki
haldið upptekinni hefð vegna
heimsfaraldursins sem nú skekur
heimsbyggðina. Þá er gott að hafa
afburða starfsfólk sem hlúir vel að
skjólstæðingum sínum og ættingja
sem annast ástfólk sitt.
Við óskum Brákarhlíð til
hamingju með afmælið og
velfarnaðar á komandi árum.
Með vinsemd og virðingu,
Edda Soffía Karlsdóttir, formaður
SBK
Kveðja frá Borgarbyggð
Hjúkrunar- og dvalarheimilið
Brákarhlíð stendur nú á merkum
tímamótum en 50 ár eru liðin frá
því að fyrsti áfangi heimilisins var
tekinn í notkun. Á svona stundu er
gott að líta til baka, skoða söguna
og fagna því sem vel er gert.
Brákarhlíð hefur verið og mun um
ókomna tíð verða fastur punktur
í okkar samfélagi þar sem mörg
okkar eiga eflaust eftir að eyða
okkar ævikvöldum. Þar er unnið
mikilvægt og faglegt starf auk
þess sem þjónustan og aðbúnaður
fyrir heimilismenn er eins og best
verður á kosið sem við getum verð
stolt af.
Borgarbyggð hefur verið einn
af bakhjörlum Brákarhlíðar frá
upphafi og hefur verið þess heiðurs
aðnjótandi að fá að styðja við
starfsemi Brákarhlíðar. Það er
markmið og vilji sveitarfélagsins
að halda áfram að byggja upp
samvinnu á þessum góða grunni
og vonumst við til að uppbygging
Brákarhlíðar haldi áfram.
Að endingu vil ég fyrir hönd
Borgarbyggðar óska starfsfólki og
heimilisfólki á Brákarhlíð innilega
til hamingju með stórafmælið
og velfarnaðar í störfum sínum í
framtíðinni.
Þórdís Sif Sigurðardóttir,
sveitarstjóri Borgarbyggðar
Kveðja úr Eyja- og
Miklaholtshreppi
Það eru alltaf mikil tímamót að ná
50 ára aldri og ljóst að Brákarhlíð
ber aldurinn vel. Margir úr
okkar samfélagi hafa átt þar loka
áfangann í sínu lífi umvafið góðu
atlæti af því frábæra starfsfólki
sem unnið hefur í Brákarhlíð alla
tíð. Á undanförnum árum hefur
mikil uppbygging átt sér stað og
margar breytingar og ljóst að það
er búið að búa svo um hnútana að
enn betur fer umþá sem þar dvelja
í framtíðinni. Það er því bjart
framundan hjá afmælisbarninu
og góð tilfinning fyrir íbúa okkar
samfálaga að hafa aðgang að slíkum
stað til að vera í síðustu ár ævinnar.
Hlýhugur fylgja góðum kveðjum í
okkar samfélagi til Brákarhlíðar á
þessum tímamótum.
Eggert Kjartansson oddviti Eyja- og
Miklaholtshrepps
Kveðja úr Skorradal
Brákarhlíð heldur nú upp á 50 ára
afmæli, sem eru merk tímamót.
Stofnun eins og Brákarhlíð er
ekki byggð upp úr engu, því
margar hendur hafa lagt mikið
að mörkum. Undirbúningur að
stofnun Dvalarheimilis aldraðra í
Borgarfirði, sem seinna fékk nafnið
Brákarhlíð, hófst mun fyrr en
fyrir 50 árum. Því fyrir þann tíma
höfðu áhugasamir og framsýnir
aðilar, unnið að undirbúningi þessa
verkefnis og fyrir það skal þakkað.
Starfsemi Brákarhlíðar hefur verið
til fyrirmyndar og margir hafa notið
góðrar umönnunar þar, á efri árum
æfi sinnar. Það má þakka góðu
starfsfólki og stjórnendum og því
senda Skorrdælingar hlýjar kveðjur
á 50 ára afmælinu, til allra sem
komið hafa að þessari góðu stofnun.
Árni Hjörleifsson oddviti
Bakhjarlar Brákarhlíðar
senda kveðjur
Árni Hjörleifsson, oddviti Skorradals-
hrepps.
Edda Soffía Karlsdóttir, formaður SBK. Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Borgarbyggðar.
Eggert Kjartansson, oddviti Eyja- og
Miklaholtshrepps.
kosningarnar. Auk hans komu
ný inn Ingunn Alexandersdóttir,
Þór Þorsteinsson og Guðsteinn
Einarsson. Fyrir voru Sæunn
Oddsdóttir og Jón G.
Guðbjörnsson. Seinna drukkum
við Magnús svo kaffið (eða var
ekkert kaffi?) með Siv ráðherra
en ekkert vannst með þeirri
ferð. Hins vegar mætti ætla að
stjórnvöld hafi þá verið komin
með 2007-fílinginn. Búið var að
skara rýmisviðmið fyrir hvern
heimilismann á hjúkrunarheimili
upp í 75 m2 þar af um helmingur
sem einkarými. Ekki er vitað hvort
einhver ráðherra hafi kvittað upp
á þessa stefnumörkun en síðar var
dregið í land ofan í 65 m2 sem er
ærið pláss. En það var of seint fyrir
Brákarhlíð. Herbergjum fækkaði
um tvö á hvorri hæð án þess að
byggingin minnkaði.
Nýr framkvæmdastjóri
2007
Snemma árs 2007 sagði
Margrét Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri DAB til 30
ára, starfi sínu lausu. Margrét átti
að baki langan og farsælan feril
í sínum störfum fyrir heimilið.
Starfið var auglýst og bárust
nokkrar umsóknir. Björn Bjarki
Þorsteinsson úr Borgarnesi
var valinn úr hópi vel hæfra
umsækjanda og hefur staðið
vaktina síðan. Er hann þriðji í röð
farsælla framkvæmdastjóra DAB/
Brákarhlíðar. Það er mikið lán
svo mikilvægri stofnun. Einnig
hefur ríkt almennur stöðugleiki
alla tíð í starfsmannahaldi DAB/
Brákarhlíðar sem er ómetanlegt og
segir margt.
Hér hefur verið dregin saman
í stórum dráttum 35 ár af sögu
DAB/Brákarhlíðar og aðdraganda
hennar, en látið staðar numið um
sinn. Talsvert er ósagt, eitthvað
missagt eða misskilið en vonandi
ekkert alveg ósatt. Víðar í blaðinu
er meiri fróðleik að finna.
Ábendingar um hvað eina sem áfátt
er eru vel þegnar.
Jón G. Guðbjörnsson, formaður
stjórnar Brákarhlíðar, hjúkrunar- og
dvalarheimilis.
Helztu heimildir og þakkir:
Afmælisrit SBK vegna 40 og 55 ára afmæla
sambandsins. Fundargerðir sýslufunda Mýra-
og Borgarfjarðarsýslna, skrifleg frásögn
Ásgeirs Péturssonar fyrrum stjórnarformanns
DAB af framkvæmdum og undirbúningi
þeirra. Einnig Margrét Guðmundsdóttir,
Guðmundur Ingi Waage, Halldór Bjarnason,
Davíð Pétursson og Svanur Guðmundsson.
Ennfremur þakkir til Jóhönnu Skúladóttur
skjalavarðar fyrir aðstoð og Birni Bjarka
Þorsteinssyni fyrir samvinnuna. Ljósmyndir
úr afmæliriti SBK og frá Safnahúsi
Borgarfjarðar.
Falleg vetrarmynd. Listaverk eftir Hallstein Sveinsson prýddi aðkomuna.