Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 55
MIÐVIKUDAGUR 28. oKtÓBER 2020 27
„Sumir hlutir fást ekki keyptir úti
í búð, ekki einu sinni í nýjustu vef-
verslunum. Þar á meðal eru hreysti
og heilsa.“ Þannig hefjast skilaboð
frá Íþrótta- og Ólympíusambandi
Íslands á samfélagsmiðlum, und-
ir yfirskriftinni #verumhraust. ÍSÍ
hvetur alla landsmenn til að sýna
frumkvæði og sköpunargleði við
að efla líkamlega og andlega heilsu
sína, nú á tímum kyrrsetu og tíma-
bundinna takmarkana. Hreyfingu
má stunda á ýmsum stöðum og með
ýmsum hætti, utan dyra og innan.
Þar má nefna göngutúra, útihlaup,
styrktaræfingar, stafagöngur, fjalla-
ferðir, línuskauta, hjólreiðar, sjó-
sund, heimajóga eða þolfimi, svo
aðeins fáein dæmi séu tekin. „Þeg-
ar takmörkunum á íþróttastarfsemi
hefur verið aflétt hvetjum við lands-
menn svo til að prófa hinar ýmsu
greinar skipulagðrar íþróttastarf-
semi, en innan ÍSÍ eru 33 sérsam-
bönd og þar eru stundaðar yfir 50
viðurkenndar íþróttagreinar,“ segir
í tilkynningu frá sambandinu.
Hvatningarátakinu er hrundið af
stað vegna heimsfaraldurs kórón-
uveirunnar og heilbrigðisyfirvöld
hafa lagt ríka áherslu á að þjóðin
stundi almenna hreyfingu, því gott
heilsufar skiptir máli í baráttunni
við smitsjúkdóma. „En átakið hef-
ur ekki síður það langtímamarkmið
að markviss hreyfing verði hluti af
daglegu lífi sem allra, allra flestra,“
segir í tilkynningunni. „Það má
bæta heilsuna með því að þora,
nenna og vilja. Athugaðu mögu-
leikana í kringum þig, taktu tillit til
eigin þarfa og getu og njóttu þess
að beita kröftum, fimi og seiglu.
Vellíðanin sem fylgir er óviðjafnan-
leg og betri heilsa eykur lífsgæði.“
kgk
Knattspyrnufélag ÍA hefur samið
við tvo unga og efnilega markverði,
þá Loga Má Hjaltested og Árna
Marinó Einarsson. Báðir eru þeir
að skrifa undir sína fyrstu samninga
við Skagaliðið.
Logi Már er fæddur árið 2005 og
kemur inn í meistaraflokk í gegnum
yngri flokka starf ÍA. Hann samdi
við félagið til ársloka 2023.
Árni Marinó er fæddur árið 2002,
en hann gekk til liðs við ÍA árið
2018. Hann hefur leikið með 2.
flokki ÍA og meistaraflokki Skalla-
gríms.
kgk/ Ljósm. KFÍA.
Skallagrímskonan Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir hefur verið valin
í landslið kvenna sem tekur þátt í
undankeppni EM á næstunni. Ís-
land leikur í A-riðli undankeppn-
innar sem spilaður verður í Her-
aklion á eyjunni Krít á Grikklandi
8.-15. nóvember næskomandi. Sig-
rún Sjöfn er reynslumesta lands-
liðskonan í hópnum og á að baki 53
landsleiki. Íslenska liðið flýgur út
laugardaginn 7. nóvember en leik-
dagar verða 12. og 14. nóvember,
Leikirnir í undankeppninni hjá
öllum liðum í nóvember áttu að
vera heima og að heiman en hefur
nú verið breytt fyrir alla riðla í ein-
angraða leikstaði, svipað og NBA
deildin gerði vestanhafs þegar
tímabilið var klárað í Disney World
í Flórída.
glh/ Ljósm. Skallagrímur.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir spilar með
Skallagrími í Domino’s deild kvenna.
Sigrún Sjöfn
í landsliðs-
hópnumHægt er að stunda hreyfingu á ýmsum stöðum og með ýmsum hætti.
Ljósm. úr safni/ arg.
Landsmenn hvattir til að huga að heilsunni
Samið við tvo
markverði
Hettupeysur
fáð� verðtilboð fyrir þin� hóp
www.smaprent.is • smaprent@smaprent.is • sími 666-5110
Ef verslað er fyrir 10.000 kr eða meira
er enginn sendingarkostnaður!
www.smaprent.is
900 kr/stk
Verð áður 1.290 kr/stk
1.290 kr/stk
1.500 kr/stk
Verð áður 2.990 kr/stk
990 kr/stk
400 kr/stk
Verð áður 1.990 kr/stk
1.990 kr/stk 1.490 kr/stk
Elís�
w
w
w
.s
m
ap
re
n
t.
is
TI
LB
O
Ð
SH
O
R
N
Við sendum út
um alLt LAND!