Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 41
27
Í Brákarhlíð hefur fjöldi fólks varið ævikvöldinu og eftir sitja margar góðar
minningar annarra íbúa, starfsmanna og aðstandenda. Meðfylgjandi eru
myndir sem finna má í albúmum heimilisins og í safni Skessuhorns.
Fólkið í Brákarhlíð
Kvenfélagskonur í Kvenfélagi Borgarness gáfu Brákarhlíð innrammaðar ljósmyndir af íslenskum fuglum.
Bessý og Margrét Guðmundsdóttir, fyrrum framkvæmdarstjórar heimilisins,
ásamt Margréti Sigurþórsdóttur.
Margrét Guðmunsdóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, og Sigrún Sím-
onardóttir, fyrrum stjórnarformað-
ur heimilisins, á vígsludegi hjúkr-
unarálmu.
Við veisluborð á basardegi. Núverandi og fyrrverandi starfsfólk Brákarhlíðar við laufabrauðsgerð í desember á síðasta ári.
Kvenfélagskonur í Borgarnesi hafa í gegnum árin komið
í heimsókn í Brákarhlíð í upphafi aðventu og hér eru þær
að gefa heimilinu Georg Jensen jólaóróa og fallega jóla-
sveina.
ér eru þær Halla og Jórunn að prófa
nýtt flutningshjálpartæki sem Fastus
gaf heimilinu í tilefni 40 ára afmæl-
is heimilisins.
Ólöfu Gunnarsdóttur þökkuð góð störf í Brákarhlíð
en hún starfaði í 36 ár á heimilinu.
Tertan frá Geirabakaríi lagðist vel í gesti sem voru viðstaddir þegar ný hjúkr-
unarálma heimilisins var vígð.
Mæðgurnar Guðmunda Jónsdóttir og Helga Björg Hann-
esdóttir fengu báðar starfsaldursviðurkenningar síðast-
liðinn vetur, Guðmunda fyrir 30 ára starf og Helga Björg
fyrir 5 ára starf.
Þrír vaskir karlar á basar 2010. Bogi, Þórður og Einar.