Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 54
MIÐVIKUDAGUR 28. oKtÓBER 202026
Hvaða vikudagur er bestur
og af hverju?
Spurning
vikunnar
(Spurt í síma)
Ketilbjörn Benediktsson
„Föstudagur, því þá er að koma
helgi og svona.“
Eyjólfur M. Eyjólfsson
„Mánudagur því þá er maður
svo úthvíldur og sprækur eftir
helgarfríið og föstudagur því þá
er maður fullur tilhlökkunar því
það er að koma helgarfrí.“
Bragi Þór Svavarsson
„Ég held að miðvikudagur sé
bestur því þá sést í báða enda.“
Guðfinna Þorgeirsdóttir
„Föstudagur, af því þá er frí
framundan.“
Körfuknattleikssamband Ís-
lands hefur gefið út leiðbeining-
ar um endurræsingu keppnistíma-
bils Domino‘s og 1. deilda eft-
ir stopp vegna sóttvarnarráðstaf-
ana yfirvalda. Nefnast leiðbeining-
arnar „Aftur á parketið“. Leiðbein-
ingarnar eru unnar í samvinnu við
heilbrigðisteymi KKÍ og fræðasam-
félagið, en meðal annars er byggt
á endurræsingar leiðbeiningum
FIBA. „Aftur á parketið er hugsað
sem eins konar leiðarvísir eða leið-
beiningar til þeirra félaga sem þurfa
að koma afreksíþróttamönnum sín-
um aftur í gang eftir það æfinga-
stopp sem hefur verið á höfuðborg-
arsvæðinu síðustu vikurnar. Það er
von þeirra er að þessari vinnu koma
að þessar leiðbeiningar geti liðsinnt
aðildarfélögum KKÍ við að skipu-
leggja sína leið aftur á parketið,“
segir í tilkynningu.
Stjórn KKÍ ákvað á fundi sínum
22. október sl. breytingar á fyrir-
komulagi bikarkeppni karla. Um-
ræddar breytingar ná ekki yfir bik-
arkeppni kvenna þar sem konurnar
fara beint í 16 liða úrslit. Ákvörðun
stjórnar snýr að því að ógilda þann
bikardrátt er fram fór 1. október
sl. og leika sérstaka undankeppni
1. deildarliða að 16 liða úrslitum
bikarkeppni KKÍ, en öll tólf lið
Domino’s deildar karla fara beint
í 16 liða úrslit keppninnar. Þetta
þýðir að lið úr 2. og 3. deild karla
taka ekki þátt í bikarkeppninni
þetta tímabilið. „Það stefnir í þétt-
ara leikjaprógram í Domino’s og 1.
deildum karla og kvenna eftir þær
samkomutakmarkanir sem verið
hafa í gildi síðustu vikur, en við það
fækkar mögulegum leikdögum bik-
arkeppninnar. Stjórn KKÍ tók því
þá erfiðu ákvörðun að gera þessar
breytingar á bikarkeppninni sem
gilda aðeins þetta tímabilið og eiga
aðeins við um bikarkeppni karla.“
Nánar á vef KKÍ. mm
Ungmennafélag Grundarfjarð-
ar vinnur þessa dagana að því að
koma á fót rafíþróttadeild. Bæjar-
ráð Grundarfjarðarbæjar samþykkti
síðastliðinn fimmtudag að verja 1,5
milljón króna til endurbóta á kjall-
ara Grundargötu 30, þar sem Arion
banki var áður til húsa, svo ung-
mennafélagið geti staðið þar fyr-
ir rafíþróttastarfi. „Hugmyndin er
að stofna rafíþróttadeild í samstarfi
við Grundarfjarðarbæ, sem ætlar að
hjálpa okkur með húsnæði,“ segir
Sigríður G. Arnardóttir, formaður
UMFG, í samtali við Skessuhorn.
„Þetta er allt í vinnslu þessa dag-
ana en núna fara hjólin að snúast
aðeins meira þegar búið er að sam-
þykkja endurbætur á húsinu. Stefn-
an er sett á að í byrjun janúar verði
húsnæðið klárt með öllum tækjum
og tólum sem þarf til að stunda raf-
íþróttir,“ bætir Sirrý við.
Rafíþróttir hafa verið í tölu-
verðum vexti bæði hérlendis sem
og erlendis undanfarin ár. Skipu-
lagt starf rafíþróttadeilda er til að
mynda þegar hafið hjá allnokkrum
íþróttafélögum hér á landi og Raf-
íþróttasamtök Íslands voru stofnuð
árið 2018, með það að markmiði að
vekja athygli á og styðja við þróun
greinarinnar hérlendis. Sirrý segir
að stjórn UMFG hafi velt því fyrir
sér um hríð að koma á fót rafíþrótta-
deild í Grundarfirði. „Ástæðan fyrir
því að við erum að starta rafíþrótta-
deild er til að koma til móts við
fjölbreytileika iðkenda. Við höfum
tekið eftir því að þegar iðkendur
ná ákveðnum aldri eiga þeir til að
detta úr hefðbundnu íþróttastarfi,“
segir hún. „okkur datt einnig í hug
að með rafíþróttum gætum við ef til
vill náð til þeirra sem hefðbundið
íþróttastarf hentar ekki. Auk þess
er Fjölbrautaskóli Snæfellinga hér
í Grundarfirði og vonandi verður
þetta til þess að við náum til fleiri
krakka á aldrinum 16 til 20 ára,“
segir Sirrý að endingu.
kgk
Minningarsjóður Lovísu Hrund-
ar afhenti á föstudag tveggja millj-
óna króna styrk til Brautarinnar,
bindindisfélags ökumanna, vegna
endurnýjunar á Veltibílnum. Fé-
lagið hefur undanfarin 25 ár not-
að Veltibílinn til að vekja athygli
landsmanna á mikilvægi bílbelta
og hafa 362 þúsund manns far-
ið hring í bílnum á þeim tíma,
að því er fram kemur í tilkynn-
ingu á vef Brautarinnar. Baráttan
fyrir umferðaröryggi hefur verið
hornsteinn í starfsemi félagsins frá
stofnun þess árið 1953. Fram kem-
ur í tilkynningunni að Veltibíllinn
hafi verið það tæki sem best hafi
nýst til að koma á almennri bíl-
beltanotkun landsmanna.
„Við erum gríðarlega þakk-
lát fyrir stuðning Minningarsjóðs
Lovísu Hrundar við endurnýj-
un á Veltibílnum. Félagið bygg-
ir á sjálfboðaliðum og án stuðn-
ings sem þessa væri einfaldlega
ekki hægt að keyra svona öflugt
forvarnarverkefni sem Veltibíll-
inn er,“ segir Páll H. Halldórsson,
stjórnarformaður Brautarinnar, í
tilkynningunni.
Það var Jóhannes Kr. Kristjáns-
son, formaður stjórnar Minning-
arsjóðs Lovísu Hrundar, sem af-
henti forsvarsmönnum Brautar-
innar styrkinn á föstudag. Hann
segir verkefni Brautarinnar mik-
ilvæg í baráttunni gegn ölvunar-
akstri og fyrir umferðaröryggi al-
mennt. „Stjórn Minningarsjóðs
Lovísu Hrundar hefur mikla trú á
forvarnarverkefnum Brautarinnar
gegn ölvunarakstri og fannst mik-
ilvægt að styðja sérstaklega endur-
nýjun á Veltibílnum sem þúsundir
barna um allt land hafa farið í og
prófað,“ segir Jóhannes og óskar
Brautinni velfarnaðar í fornvarn-
arstarfi sínu í framtíðinni.
kgk
Keppt í rafíþróttum. Ljósm. Unsplash.com.
Rafíþróttadeild í pípunum hjá UMFG
Endurræsa körfuboltatímabilið
Páll H. Halldórsson og Einar Guðmundsson, stjórnarmenn í Brautinni, taka við styrknum úr hendi Jóhannesar Kr. Kristjáns-
sonar, formanns stjórnar Minningarsjóðs Lovísu Hrundar. Ljósm. Brautin/ Guðmundur Karl Einarsson.
Styrkir endurnýjun Veltibílsins