Skessuhorn - 28.10.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 28. oKtÓBER 202010
Spólað á hafnar-
svæði
AKRANES: Að kvöldi síðast-
liðins miðvikudags barst Neyð-
arlínu tilkynning um glæfraakst-
ur við Akratorg á Akranesi. Þeg-
ar lögregla kom á staðinn höfðu
ökumennirnir fært sig niður
á hafnarsvæði Akraneshafnar.
Sögðust hafa fengið ábendingu
um að það svæði hentaði bet-
ur fyrir glæfraakstur. Lögregla
benti ökumönnum á að hafn-
arsvæðið hentaði ekki á neinn
hátt betur til glæfraaksturs frek-
ar en nokkurt annað svæði. Enn
fremur var ökumönnunum bent
á hina miklu hættu sem getur
stafað af slíkum akstri sem getur
hæglega endað með skelfilegum
hætti lendi bifreiðar í sjónum.
-frg
Akstur undir
áhrifum
BORGARFJ: Lögregla stöðv-
aði för ökumanns í Borgar-
firði að kvöldi laugardagsins 24.
október. Við nánari athugun
reyndist ökumaður vera und-
ir áhrifum áfengis. Ökumaður
var handtekinn og síðan fékk
mál hans hefðbundna með-
ferð. Þá stöðvaði lögregla einn-
ig för ökumanns á Akrafjalls-
vegi. Ökumaður svaraði jákvætt
fyrir amfetamíni við fíkniefna-
próf. Mál hans fékk á sama hátt
hefðbundna meðferð þar sem
í framhaldi er m.a. tekin blóð-
prufa. Að sögn lögreglunnar á
Vesturlandi eru ökumenn hand-
teknir vegna ölvunar- og fíkni-
efnaaksturs nánast í hverri viku,
heyrir til undantekninga ef svo
er ekki. -frg
Þakplötur fuku í
Ólafsvík
SNÆFELLSBÆR: Um kl.
19:00 á sunnudag barst Neyð-
arlínu tilkynning um fjúk-
andi þakplötur við Lindarholt
í Ólafsvík. Ekki er kunnugt um
frekara tjón af völdum fljúgandi
þakplatna. -frg
Útafakstur við
Hvanneyri
BORGARFJ: Ökumaður ók
bifreið sinni út af Hvanneyr-
arvegi um kl. 22 á laugardags-
kvöld. Að sögn ökumanns hafði
sími hans hringt og hann nauð-
synlega þurft að svara símanum.
Við það missir hann stjórn á bif-
reiðinni og ekur út af. Enginn
slasaðist við útafaksturinn en
ökumaður var handtekinn grun-
aður um ölvun og að vera undir
áhrifum fíkniefna við aksturinn.
-frg
Reyndu að aka
á börn
AKRANES: Lögreglu barst
á laugardag tilkynning um að
ökumaður Ford pallbifreiðar
hefði reynt að aka á börn á
Akranesi á föstudagskvöld-
ið. Börnin hefðu náð að forða
sér frá bifreiðinni og yfirgefið
vettvanginn. Stuttu síðar þeg-
ar sömu börn voru stödd í stræ-
tóbiðskýli bar að sömu bifreið
með sömu aðilum. Í þetta sinn
hentu þeir flugeldum að börn-
unum. Enginn slasaðist við að-
farirnar. Málið er til rannsóknar
lögreglunnar. -frg
Ofsaakstur með
krana
AKRANES: Neyðarlínu barst
tilkynning á mánudag um
ofsaakstur hvítrar Volkswagen
pallbifreiðar á hafnarsvæðinu
á Akranesi. Bíllinn var með
krana á pallinum. Bifreiðin
fannst ekki þrátt fyrir eftir-
grennslan lögreglu . -frg
Kú hljóp á
bifreið
HVALFJ.SV: Aðfararnótt
þriðjudags barst Neyðarlínu
tilkynning um að kú hefði
hlaupið á bifreið og horfið
síðan út í myrkrið. Atvikið átti
sér stað á Akrafjallsvegi. tals-
vert tjón varð á bifreiðinni en
engin slys á fólki. Kýrin fannst
ekki þrátt fyrir leit og ekki
hafði náðst í eigendur hennar
þegar blaðið fór í prentun.
-frg
Ekið of hratt
við skóla
AKRANES: Á þriðjudag var
myndavélabifreið lögreglunn-
ar lagt á móts við Brekkurbæj-
arskóla við Vesturgötu á Akra-
nesi. Alls óku 34 bílar framhjá
og voru fjórir bílar myndaðir.
Sá sem hraðast ók var á 45 km/
klst. hraða en hámarkshraði
á þessum kafla er 30 km/klst.
Að sögn lögreglu er nokkuð
um að bæjarbúar óski eftir að
myndavélabíll verði til eftirlits
í tilteknum götum bæjarins og
er oftast orðið við þeim beiðn-
um ef mögulegt er. -frg
Menningarhátíðin Rökkurdagar
í Grundarfirði hófst á mánudag-
inn og lýkur á sunnudag. Í ljósi að-
stæðna er hátíðin með breyttu sniði
í ár en Grundfirðingar gera það
besta úr aðstæðum og hafa nú birst
veglega dagskrá á heimasíðu bæjar-
ins. Þar eru íbúar hvattir til að vera
duglegir með myndavélina á með-
an Rökkurdögum stendur og birta
myndir á samfélagsmiðlum undir
myllumerkinu #rökkur2020.
Börnin á Leikskólanum Sól-
völlum hafa sett upp listasýningu í
gluggum Kjörbúðarinnar, grunn-
skólakrakkar fara í kærleiksgöngu
og skilja eftir kærleiksorð við hús
bæjarins. Íbúar eru hvattir til að
lýsa upp skammdegið með hvítum
seríum og einnig að setja upp eig-
in útfærslu af hjörtum í glugga húsa
sinna. Þá er fólk hvatt til að ganga á
Gráborg með sínu nánasta fólki og
taka skemmtilegar myndir þar og
birta á samfélagsmiðlum. Verðlaun
verða veitt fyrir frumlegustu eða
skemmtilegustu myndina. Líkams-
ræktin í Grundarfirði bauð í gær í
Þríhyrningnum upp á heilsueflingu
fyrir 60 ára og eldri og þá sem búa
við örorku. Hrekkjavakan verður
haldin hátíðleg með búningadegi
í leik- og grunnskólanum föstu-
daginn 30. október og daginn eft-
ir munu börn ganga í hús til þeirra
sem vilja, og fá nammi. Hægt er að
skrá sitt heimili á Facebook síðunni
Hrekkjavaka Grundarfirði 2020.
Ef veðrið leyfir verður kirkjukór-
inn með söngstund fyrir utan dval-
ar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól.
Þá verður einnig boðið upp á rökk-
ursund í sundlauginni og vasaljósa-
göngu ef veðrið stendur ekki í vegi
fyrir því. Líkamsræktin í Grund-
arfirði ætlar að bjóða upp á Rökk-
urbyrjendaspinning fimmtudag-
inn 29. október og Rökkurspinn-
ing föstudaginn 30. október en tak-
mörkuð pláss eru í boði og því mik-
ilvægt að skrá sig á Facebook síðu
Líkamsræktarinnar í Grundarfirði.
Að lokum verður rafræn söngstund
þar sem bæjarbúar syngja íslensk
lög á upptöku sem sett verður á
netið. arg
Lista- og menningarhátíðin Vöku-
dagar er haldin á hverju ári en hún
var fyrst haldin 2002. Í ár stend-
ur hátíðin frá 29. október til 8.
nóvember. tilgangur hátíðarinn-
ar er ekki síst að efla menningarlíf-
ið í bænum og lífga um leið upp á
skammdegið. Umfang hátíðarinnar
hefur aukist ár frá ári og hefur hún
notið vaxandi vinsælda meðal bæj-
arbúa. Reyndar hefur hróður henn-
ar borist langt út fyrir bæjarmörkin
enda sækir fólk úr nágrannasveitar-
félögum og jafnvel víðar að hátíð-
ina. Dagskrá hennar og viðburð-
ir hafa sömuleiðis orðið viðameiri
með hverju árinu og einnig hefur
þátttaka fyrirtækja og stofnana auk-
ist jafnt og þétt. Þannig hafa Vöku-
dagar öðlast sinn fasta sess í bæjar-
lífinu.
Í samtali við Skessuhorn segir
Ella María Gunnarsdóttir, forstöðu-
maður menningar- og safnamála
hjá Akraneskaupstað, að hátíðin sé
óvenjuleg í ár vegna CoVID-19
en aðstandendur séu að gera sitt ít-
rasta til þess að bæjarbúar njóti há-
tíðarinnar sem allra best. Það sé þó
ljóst að dagskráin geti breyst með
afar litlum fyrirvara vegna ástands-
ins og leggur Ella María áherslu á
að fólk fylgist vel með viðburða-
dagatali Akraneskaupstaðar, skaga-
lif.is en þar er að finna nýjustu upp-
lýsingar um viðburði hátíðarinnar.
Þá upplýsir Ella María að bæjarbú-
ar megi eiga von á því að víða verði
kveikt á ljósum í bænum þegar há-
tíðin gengur í garð.
Dagskrá Vökudaga 2020 tek-
ur mið af fjöldatakmörkunum og
öðrum fyrirmælum sóttvarnaryfir-
valda. Hér fyrir neðan er stiklað á
stóru í dagskránni.
Myndlistarsýningar
Aldís Petra og Gróa Dagmar sýna
málverk í gluggum verslunarinn-
ar Nínu. Silja Sif sýnir málverk í
gluggum Bílvers. Málverkasýn-
ing Jóhönnu L. Jónsdóttur, Fant-
asía, fer fram á Fésbókarsíðunni
Hanna málverk. Myndlistarsýn-
ingin Strand by Jaclyn Poucel
Árnason verður í Gallerý Bjarni
Þórs. Zentangle, listsýning Borg-
hildar Jósúadóttur og Steinunnar
Guðmundsdóttur, verður á Bóka-
safni Akraness. Leirbakaríið býð-
ur upp á sýninguna Áfram með
smjörið.
Ljósmyndasýningar
Kaffibolli á Kóvidtímum, ljós-
myndasýning Helgu Ólafar oli-
versdóttur verður í gluggum
tónlistarskóla Akraness. Svona
er Akranes, útiljósmyndasýning
Friðþjófs Helgasonar, verður við
Langasand. Ljósmyndasýning
starfsbrautar FVA verður í glugg-
um Bókasafns Akraness.
Tónleikar og upp-
lestur
Sigurbjörg Þrastardóttir stýr-
ir upplestri rithöfunda úr nýj-
um bókum í streymi. Jazzkvartett
Halla Guðmunds heldur tónleika
í Vinaminni. Valgerður Jónsdótt-
ir lítur við með gítarinn og spilar
ljúfa tóna fyrir gesti í Café Kaju.
Annað sem má nefna er tísku-
hönnuðurinn Kristín Ósk Hall-
dórsdóttir sem sýnir hluta af
vörum sínum á Bókasafninu.
Þessi upptalning er ekki tæm-
andi og er áhugasömum bent á
viðburðadagatal Akraneskaup-
staðar og auglýsingu hér í blaðinu
varðandi nánari upplýsingar um
viðburði og tímasetningar.
frg
Vökudagar hefjast á Akranesi
í þessari viku
Meðfylgjandi mynd tók Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari í gærmorgun þegar þær Ágústa og Rut frá Líkamsræktinni mættu út til að stýra æfingum. Við fyrstu sýn er
engu líkara en að Donald Trump sjálfur hafi leitt leikfimina, en skýringin var hins vegar sú að þær Ágústa og Rut mættu með forláta grímur þar sem hrekkjavakan er nú á
næsta leiti.
Rökkurdagar standa nú yfir í Grundarfirði