Morgunblaðið - 18.07.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2020
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
18. júlí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 140.42
Sterlingspund 176.06
Kanadadalur 103.78
Dönsk króna 21.491
Norsk króna 15.056
Sænsk króna 15.464
Svissn. franki 148.46
Japanskt jen 1.3105
SDR 194.81
Evra 160.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.7819
Hrávöruverð
Gull 1804.6 ($/únsa)
Ál 1651.0 ($/tonn) LME
Hráolía 43.71 ($/fatið) Brent
● Hækkun varð á
bréfum flestra fé-
laga í kauphöll Ís-
lands í gær. Mest
hækkuðu bréf
Festar eða um
2,95% í 199 millj-
óna króna við-
skiptum. Var loka-
gengi félagsins
139,5 krónur á
hvern hlut í lok
gærdagsins. Næst mesta hækkunin í
gær varð á bréfum Skeljungs, en þau
hækkuðu um 1,81% í 25 milljóna króna
viðskiptum. Gengi félagsins var í lok
dagsins 8,42 krónur á hlut. Þriðja
mesta hækkunin í gær varð á bréfum
Kviku banka, en þau hækkuðu um
1,58% í 49 milljóna króna viðskiptum.
Gengi félagsins í lok gærdagsins var
10,3 krónur hver hlutur.
Þrjú félög lækkuðu í verði í kauphöll-
inni í gær. Mest lækkuðu bréf Ice-
landair, eða um 3,19% í fjögurra millj-
óna króna viðskiptum. Gengi félagsins í
lok dags var 1,82 krónur. Næst mest
lækkaði gengi Sýnar, eða um 1,08% og
er gengi félagsins nú 22,85 krónur hver
hlutur. Þriðja mesta lækkunin varð svo
á bréfum Marels, eða 0,71%, í 91 millj-
ónar króna viðskiptum. Gengi félagsins
í lok dags í gær var 695 krónur á hlut.
Flest félög hækkuðu
í kauphöllinni í gær
Hækkun Festi
hækkaði í gær.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Veitingamaðurinn Sigmar Vil-
hjálmsson, sem rekur veitingastað-
ina Barion í Mosfellsbæ og á Granda,
sem og Hlöllabáta og Minigarðinn í
Skútuvogi, sem var opnaður fyrr í
þessum mánuði, vill stytta af-
greiðslutíma veit-
inga- og
skemmtistaða.
„Það er hægt
að bölsótast út í
kórónuveiruna út
af mörgu. En það
sem er jákvætt
við hana er þesssi
breyting á
skemmtana-
menningunni hér
á landi, þar sem
við erum farin að fara fyrr út að
skemmta okkur en áður,“ segir Sig-
mar í samtali við Morgunblaðið.
Þurfum að sæta færis
„Ég held að það sé ekki vitlaust
fyrir okkur sem samfélag að sæta nú
færis og stytta almennt afgreiðslu-
tíma skemmtistaða. Þannig gætu
leyfi sem gera ráð fyrir því að hægt
sé að hafa opið til klukkan fimm um
morguninn, færst til klukkan þrjú,
og þau leyfi sem gera ráð fyrir að
opið sé til klukkan þrjú, myndu gilda
til klukkan eitt í staðinn,“ segir Sig-
mar.
Samkomubann sem nú er í gildi á
Íslandi vegna kórónuveirunnar nær
meðal annars yfir veitinga- og
skemmtistaði. Samkvæmt yfirliti yf-
ir gildandi takmarkanir í samkomu-
banni, sem birt er á vefsíðunni
covid.is, er veitingastöðum,
skemmtistöðum, krám og spilasölum
heimilt í dag að hafa opið til kl. 23.
Rýmkaðist árið 2001
Eins og Sigmar bendir á þá var
skemmtistöðum leyft haustið 2001
að hafa opið lengur en til klukkan
þrjú á nóttunni en með lengingunni
fækkaði vandamálum í miðborginni
sem urðu af mikilli hópamyndun á
Lækjartorgi. Þar safnaðist fólk
gjarnan saman eftir að stöðunum var
lokað.
„Nú erum við að sjá svipuð tilvik.
Það er álag á lögreglunni eftir klukk-
an ellefu. Þá flytur fólk sig í heima-
hús og heldur áfram að skemmta sér
þar með tilheyrandi erfiðleikum.“
Sigmar segir að fátt gáfulegt ger-
ist hjá fólki í skemmtanalífinu eftir
klukkan þrjú á nóttunni. Flestir geti
verið sammála um það. „Hvergi í
heiminum tíðkast eins langur af-
greiðslutími og er í gildi á Íslandi.“
Sigmar telur að styttri afgreiðslu-
tími geti sparað samfélaginu pen-
inga, bæði í löggæslu, í bráðamót-
töku og á fleiri sviðum.
„Ég tel að þetta sé hagkvæmt að
því leyti að hagvöxtur getur aukist.
Ef fólk skemmtir sér ekki langt fram
undir morgun, þá vaknar það fyrr
daginn eftir skemmtanahald og er
virkara í samfélaginu þann daginn.
Þótt ég sé ekki mikið fyrir forsjár-
hyggju tel ég að þetta sé mjög verð-
ugt umræðuefni.“
Hann bætir við að fyrir veitinga-
menn geti þetta fyrirkomulag einnig
verið gott. „Með þessu minnkar álag
á starfsfólk. Almenningur kemur
fyrr inn á staðina og meiri þéttleiki
verður í aðsókn. Það gæti skilað sér í
auknu hagræði, sem aftur gefur færi
á verðlækkun á stöðunum.“
Hann segir að sú verðlækkun yrði
alltaf einstaklingsbundin eftir
rekstraraðilum, en aðgerðin myndi
augljóslega spara fé. „Til dæmis þarf
ekki tvöfalt vaktakerfi.“
Spurður hvort að hann hafi rætt
við kollega sína í veitingageiranum
um þetta mál segir Sigmar að flestir
sem hann hafi rætt við séu honum
sammála. „Ég tala nú ekki um leigu-
bílstjórana sem verða vitni að ýmsu
sem gerist eftir lokun skemmtistað-
anna. Ég held að flestir geti verið
sammála um kostina við styttingu af-
greiðslutímans. Við vorum neydd út í
að hafa styttri afgreiðslutíma út af
heimsfaraldri og svo reynast allir
vera bara sáttir. Ég held að það sé
dauðafæri á því núna að opna um-
ræðuna um þetta mál.“
Bransinn þjappi sér saman
En ætlar Sigmar að ganga á und-
an með góðu fordæmi og stytta af-
greiðslutíma sinna staða. „Maður á
aldrei að segja aldrei, en ég mun
aldrei fara fyrir rekstri veitinga-
staða sem eru með opið til klukkan
fimm á morgnana. Ég hef ekki áhuga
á slíkum rekstri. Við sem bransi
verðum núna að þjappa okkur á bak
við þessa kúltúrbreytingu og reyna
að örva hana. Það er miklu betra að
láta ballið byrja klukkan tíu en
klukkan hálftólf.“
Vill stytta afgreiðslutíma
skemmtistaða til 3 og 1
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Djamm Ef fólk byrjar fyrr að skemmta sér og hættir fyrr gæti það verið þjóðhagslega hagkvæmt, segir Sigmar.
Um afgreiðslutíma
og áfengisveitingar
» Heimilt er að hafa gisti- og
veitingastaði opna allan sólar-
hringinn. Áfengisveitingar eru
þó háðar tímamörkum í leyfum
borgarstjórnar / bæjarstjórna.
» Skal stöðunum lokað þegar
leyfðum veitingatíma áfengis
lýkur og allir gestir farnir innan
klukkustundar.
Þjóðhagslega hagkvæmt Verðlækkun Ekkert gott gerist eftir þrjú
Sigmar
Vilhjálmsson
N1 hefur fest kaup á Ísey-
skyrbörunum sem eru á bensín-
stöðvum fyrirtækisins við Ártúns-
höfða, í Borgartúni og í Fossvogi.
Rekstur Ísey-skyrbars er liður í
stefnu N1 að auka fjölbreytni og
hollustu í sölu matvæla og drykkja
og hefur verið vel tekið, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
félaginu. Segir Hinrik Örn Bjarna-
son, framkvæmdastjóri N1, að
vörumerkið sé sterkt og njóti vin-
sælda. „Við viljum efla þetta merki
og þá fjölbreytni sem þar er boðið
upp á og við hlökkum til frekari
þróunar og nýrra vara, þannig að
N1 verði áfram besti viðkomustað-
urinn fyrir þá sem eru á ferðinni og
vilja fá eitthvað hollt og gott,“ segir
Hinrik Örn. Vörurnar frá Ísey eru
m.a. afgreiddar í gegnum bílalúgu í
Fossvogi og þá segir í tilkynningu
að verið sé að skoða það að opna
fleiri staði á þjónustustöðvum N1.
N1 festir kaup á
Ísey-skyrbörum
Skoða opnun fleiri skyrbara
Skyrbar Kristinn Ingi Sigurjónsson
hjá Skyrboozt, Hinrik Örn og Jón
Viðar Stefánsson frá N1.