Morgunblaðið - 18.07.2020, Side 40
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Stjarnan er eina taplausa liðið og
með fæst töpuð stig í Pepsi Max-
deild karla eftir sannfærandi sigur á
HK í gærkvöld, 4:1, þar sem Guðjón
Baldvinsson skoraði tvö markanna.
Garðbæingar eiga að sjálfsögðu
inni frestuðu leikina þrjá en þeir eru
þegar komnir með 10 stig, aðeins
tveimur minna en topplið Fylkis og
KR.
„Vissulega sást það á leik Stjörnu-
liðsins að þeir voru að koma úr smá
fríi og það var ekki alveg sami taktur
í liðinu og í 4:1-sigrinum gegn Fjölni
sem dæmi en það er augljóst mál að
Garðbæingar eru mjög vel samæfðir
fyrir þetta tímabil og allir leikmenn
liðsins eru með hlutverk sín á
hreinu,“ skrifaði Bjarni Helgason
m.a. um leikinn á mbl.is.
HK er hins vegar án sigurs í fimm
leikjum í röð og er greinilega að
dragast niður í erfiða botnbaráttu.
Stóri munurinn á liðinu frá því í fyrra
er að ein besta vörn deildarinnar sem
fékk á sig 29 mörk í 22 leikjum í fyrra
er orðin sú lakasta það sem af er
þessu tímabili. Í gærkvöld fékk liðið
á sig fjögur mörk í þriðja sinn í síð-
ustu fimm leikjum. HK hefur þegar
fengið á sig 19 mörk í fyrstu sjö leikj-
unum. Í fyrra fékk liðið ekki á sig 19.
markið fyrr en í sautjándu umferð
deildarinnar.
Guðjón Baldvinsson skoraði sitt
60. mark í efstu deild hér á landi þeg-
ar hann gerði annað mark sitt og
fjórða mark Stjörnunnar í leiknum.
Hann er orðinn þriðji markahæsti
leikmaður Stjörnunnar í deildinni
með 33 mörk, fór upp fyrir Garðar
Jóhannsson, en Guðjón gerði áður 27
mörk fyrir KR.
Hörður Árnason skoraði sitt
fyrsta mark fyrir HK í efstu deild
þegar hann jafnaði, 1:1. Hann hafði
áður gert eitt mark í deildinni á ferl-
inum, fyrir Stjörnuna gegn KR árið
2012. Hann á leikjamet HK í deild-
inni, 47 leiki, og er fjórði leikjahæst-
ur hjá Stjörnunni í deildinni með 128
leiki.
Daníel Laxdal, leikjahæsti
Stjörnumaðurinn í deildinni frá upp-
hafi, skoraði sitt fyrsta mark í þrjú ár
þegar hann kom liðinu í 2:1.
Ívar Örn Jónsson kom inn á hjá
HK og lék sinn hundraðasta leik í
efstu deild.
Toppslagur í Árbænum
Í upphafi Íslandsmótsins sáu ef-
laust ekki margir fyrir að þegar
kæmi að viðureign Fylkis og KR í
Árbænum síðdegis á morgun yrði
þar um að ræða uppgjör tveggja
efstu liða deildarinnar.
En sigurganga Fylkismanna að
undanförnu hefur verið mögnuð, þeir
eru efstir eftir fjóra sigurleiki í röð
og taka á móti Íslandsmeisturum KR
sem hafa unnið fjóra af fimm leikjum
sínum og voru sannfærandi í öðrum
toppslag síðasta mánudag þegar þeir
lögðu Breiðablik að velli, 3:1.
Tvö líkleg mætast í Kópavogi
Í Kópavogi er annar stórleikur
annað kvöld þegar Breiðablik fær
Val í heimsókn. Blikarnir hafa hikst-
að eftir góða byrjun og aðeins fengið
tvö stig í síðustu þremur leikjum.
Valsmenn hafa verið sveiflukenndir
og unnið þrjá sannfærandi útisigra
en aðeins fengið eitt stig í þremur
heimaleikjum. Þetta eru tvö þeirra
liða sem eru líkleg til að berjast á
toppnum þegar líður á tímabilið og
stigin sem eru í boði á Kópavogsvelli
eru því dýrmæt.
Blikar sakna Viktors Karls Ein-
arssonar sem hefur leikið mjög vel
með þeim en hann tekur út eins leiks
bann vegna fjögurra gulra spjalda.
Skora Skagamenn í Fossvogi?
Þriðji innbyrðis leikur liða sem
voru í efstu sex sætum deildarinnar
fyrir þessa umferð fer fram í Foss-
vogi annað kvöld þegar Víkingar fá
hina marksæknu Skagamenn í heim-
sókn. ÍA hefur skorað 15 mörk í
fyrstu sex umferðunum, flest mörk
allra liða í deildinni.
Dofri Snorrason leikur ekki
með Víkingum en hann er í banni
vegna fjögurra gulra spjalda. Fyr-
irliðinn Sölvi Geir Ottesen getur
leikið á ný eftir að hafa afplánað
tveggja leikja bann.
Eiður og Logi í Grafarvogi
Fyrirfram hefði viðureign Fjölnis
og FH ekki verið sú áhugaverðasta í
sjöundu umferð. En það breyttist allt
í vikunni. Eiður Smári Guðjohnsen
kemur í fyrsta skipti að leik á Ís-
landsmóti frá því hann lék með KR
hluta tímabilsins 1998 en Eiður og
Logi Ólafsson tóku við liði FH af
Ólafi H. Kristjánssyni á miðvikudag-
inn.
Eiður Smári kom síðast við sögu
á Íslandsmótinu fyrir 22 árum, 30.
júlí 1998, þegar hann lék með KR í
2:0-sigri á Fram í Vesturbænum.
Meðal andstæðinga Eiðs í þeim
leik var Ásmundur Arnarsson, þá-
verandi leikmaður Fram, sem er
hans fyrsti andstæðingur sem þjálf-
ari Fjölnis.
Logi stýrir FH í fyrsta skipti frá
22. september 2001 þegar Hafn-
arfjarðarliðið vann Fylki 2:0 í Ár-
bænum undir hans stjórn.
Botnslagur á Akureyri
Síðast en ekki síst er beinharður
botnslagur á Akureyri í dag þar sem
Arnar Grétarsson stýrir KA í fyrsta
skipti og liðið reynir að knýja fram
sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar
Grótta kemur í heimsókn. Þar er allt
undir enda verður annað liðanna í
fallsæti að umferðinni lokinni, hugs-
anlega bæði.
Ívar Örn Árnason varnarmaður
KA er í banni vegna fjögurra gulra
Stjarnan er með bestu
stöðuna eftir stórsigur
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sextíu Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna í gærkvöld, það seinna var hans sextugasta mark í
deildinni, og hér reyna Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK og Ásgeir Börkur Ásgeirsson að stöðva hann.
Tíu stig og eina taplausa liðið í deildinni HK stefnir í erfiða botnbaráttu
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2020
Pepsi Max-deild karla
Stjarnan – HK .......................................... 4:1
Staðan:
Fylkir 6 4 0 2 11:6 12
KR 5 4 0 1 8:5 12
Breiðablik 6 3 2 1 13:9 11
ÍA 6 3 1 2 15:8 10
Valur 6 3 1 2 13:6 10
Stjarnan 4 3 1 0 10:3 10
Víkingur R. 6 2 2 2 8:9 8
FH 5 2 1 2 10:12 7
HK 7 1 2 4 12:19 5
Grótta 6 1 1 4 7:16 4
KA 5 0 3 2 5:10 3
Fjölnir 6 0 2 4 5:14 2
Lengjudeild karla
Grindavík – Fram..................................... 1:1
Þróttur R. – Keflavík ............................... 0:4
Víkingur Ó. – Afturelding........................ 1:3
Staðan:
Keflavík 6 4 1 1 20:8 13
ÍBV 5 4 1 0 11:4 13
Fram 6 4 1 1 11:8 13
Leiknir R. 5 3 1 1 12:8 10
Afturelding 6 3 0 3 16:9 9
Þór 5 3 0 2 8:6 9
Grindavík 6 2 3 1 11:10 9
Vestri 5 2 1 2 4:5 7
Leiknir F. 5 2 0 3 5:10 6
Víkingur Ó. 6 2 0 4 6:12 6
Þróttur R. 6 0 0 6 1:12 0
Magni 5 0 0 5 2:15 0
2. deild karla
Þróttur V. – Selfoss .................................. 1:0
Fjarðabyggð – Dalvík/Reynir ................. 1:0
ÍR – Njarðvík............................................ 1:1
KF – Haukar............................................. 0:3
Kári – Víðir ............................................... 5:0
Staðan:
Kórdrengir 5 4 1 0 11:1 13
Haukar 6 4 0 2 13:8 12
Fjarðabyggð 6 3 2 1 14:6 11
Þróttur V. 6 3 2 1 7:5 11
Selfoss 6 3 1 2 9:8 10
Njarðvík 6 3 1 2 8:8 10
Kári 6 2 2 2 12:8 8
ÍR 6 2 1 3 9:10 7
KF 6 2 0 4 8:11 6
Víðir 6 2 0 4 4:18 6
Dalvík/Reynir 6 1 1 4 8:14 4
Völsungur 5 0 1 4 7:13 1
3. deild karla
Vængir Júpíters – Reynir S .................... 1:1
Álftanes – Augnablik ............................... 1:3
Staðan:
Reynir S. 6 4 2 0 14:9 14
KV 5 4 0 1 14:6 12
Tindastóll 5 3 1 1 11:10 10
KFG 5 3 0 2 13:11 9
Elliði 5 2 2 1 11:6 8
Augnablik 6 2 2 2 11:10 8
Sindri 5 2 1 2 11:11 7
Ægir 5 2 0 3 10:12 6
Álftanes 6 1 2 3 6:9 5
Vængir Júpiters 6 1 2 3 5:11 5
Einherji 5 1 1 3 8:14 4
Höttur/Huginn 5 0 1 4 7:12 1
Lengjudeild kvenna
Völsungur – Afturelding.......................... 0:3
Staðan:
Keflavík 5 4 1 0 17:2 13
Tindastóll 5 4 1 0 9:2 13
Haukar 5 2 2 1 8:7 8
Grótta 5 2 2 1 5:4 8
Afturelding 5 2 1 2 6:4 7
ÍA 5 1 3 1 9:7 6
Víkingur R. 5 1 1 3 6:10 4
Augnablik 4 1 1 2 3:7 4
Fjölnir 5 1 0 4 3:9 3
Völsungur 4 0 0 4 0:14 0
England
West Ham – Watford ............................... 3:1
Staða neðstu liða:
Crystal Palace 36 11 9 16 30:47 42
West Ham 36 10 7 19 47:60 37
Brighton 36 8 13 15 37:53 37
Watford 36 8 10 18 34:57 34
Bournemouth 36 8 7 21 37:62 31
Aston Villa 36 8 7 21 39:66 31
Norwich 36 5 6 25 26:68 21
B-deild:
Huddersfield – WBA................................ 2:1
Staða efstu liða:
Leeds 44 26 9 9 70:34 87
WBA 45 22 16 7 75:43 82
Brentford 44 24 9 11 79:35 81
Fulham 44 22 11 11 58:44 77
Nottingham F. 44 18 16 10 57:45 70
Cardiff 44 17 16 11 62:57 67
Millwall 44 16 17 11 50:46 65
Swansea 44 16 16 12 57:52 64
Ítalía
B-deild:
Spezia – Venezia...................................... 0:1
Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á hjá
Spezia á 90. mínútu.
Danmörk
Midtjylland – Nordsjælland ................... 6:3
Mikael Anderson lék í 83 mínútur með
Midtjylland sem hefur þegar tryggt sér
danska meistaratitilinn.
Staðan:
Midtjylland 34 26 3 5 59:26 81
Köbenhavn 33 19 5 9 53:37 62
AGF 33 18 6 9 53:37 60
Bröndby 33 15 7 11 54:40 52
AaB 33 14 6 13 51:42 48
Nordsjælland 34 13 7 14 57:51 46
Liðin fjögur sem hafa unnið ensku
bikarkeppnina í knattspyrnu und-
anfarin fjögur ár mætast í undan-
úrslitunum um helgina. Arsenal,
sem vann 2017, mætir í dag Man-
chester City, sem vann 2019, og á
morgun leikur Manchester United,
sem vann 2016, við Chelsea, sem
vann keppnina 2018.
Þá eru þetta fjögur af sigursæl-
ustu liðunum en Arsenal hefur
þrettán sinnum orðið bikarmeist-
ari, oftast allra, Manchester United
12 sinnum, Chelsea átta sinnum og
Manchester City sex sinnum.
Söguleg undan-
úrslit í bikar
AFP
Bikarinn Arsenal og Manchester
City mætast í undanúrslitum í dag.
Leeds United er komið í ensku úr-
valsdeildina í knattspyrnu eftir sex-
tán ára fjarveru en það komst á
hreint í gærkvöld þegar keppinaut-
arnir í WBA töpuðu fyrir Hudd-
ersfield, 2:1. Þar með er það bara
Brentford sem getur náð Leeds en
tvö efstu liðin fara upp og næstu
fjögur fara í umspil.
West Ham nánast gulltryggði
sæti sitt í úrvalsdeildinni með því
að sigra Watford 3:1. Michail Ant-
onio, Tomás Soucek og Declan Rice
skoruðu fyrir West Ham en Troy
Deeney svaraði fyrir Watford.
AFP
Fagnað Mikið gekk á í Leeds í gær-
kvöld þegar úrslitin lágu fyrir.
Leeds upp eftir
sextán ára bið
STJARNAN – HK 4:1
1:0 Sölvi Snær Guðbjargarson 11.
1:1 Hörður Árnason 34.
2:1 Daníel Laxdal 45.
3:1 Guðjón Baldvinsson 55.
4:1 Guðjón Baldvinsson 61.
MM
Guðjón Baldvinsson (Stjörnunni)
M
Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjörn.)
Daníel Laxdal (Stjörnunni)
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni)
Arnþór Ari Atlason (HK)
Atli Arnarson (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson – X. (Arnar Ingi Ingvars-
son 62.)
Áhorfendur: 878.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og grein um leikinn – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.