Morgunblaðið - 03.12.2020, Page 2

Morgunblaðið - 03.12.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 www.salka.is Leiðarvísir að jákvæðum samskiptum Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Dreifing á bréfum og pökkum hefur gengið ágætlega hjá Póstinum þrátt fyrir mikla fjölgun sendinga og tak- markanir vegna sóttvarna. „Það er mikið magn í kerfinu. Svo koma stórir kúfar, sprengjur, eftir mikla verslunardaga eins og að undan- förnu,“ segir Brynjar Smári Rúnars- son, forstöðumaður þjónustu- upplifunar hjá Póstinum. Hann er að vísa til svarts föstudags og net- mánudags en mörgum sendingum þarf að koma til skila eftir slíka daga og vikur. Hann tekur fram að veðrið þessa dagana tefji eitthvað sendingar út á land. Þá hafi fjöldatakmarkanir á póstmiðstöðinni og annars staðar í vinnslu fyrirtækisins áhrif. Póstleggja þarf sendingar fyrir 18. desember ef tryggt á að vera að þær berist viðtakendum innanlands fyrir jól. Færri flutningsleiðir Það hefur áhrif á sendingar pakka og bréfa til annarra landa að flutn- ingsleiðir eru ekki eins opnar og venjulega, vegna kórónuveirufarald- ursins. Mun minna er flogið og flogið beint til færri landa. Þá verða stund- um truflanir á vinnslu sendinga í þeim löndum þar sem faraldurinn er skæðastur á hverjum tíma. 7. desember er síðasti skiladagur fyrir bréf og pakka sem eiga að fara til landa í Evrópu, ef tryggt á að vera að sendingar berist til viðtak- enda fyrir jól. Brynjar hvetur þó fólk til að bíða ekki eftir þessum degi heldur póstleggja bréf og pakka sem allra fyrst. Það eigi einnig við um sendingar innanlands. Einnig að skrá sendingar í tölvunni hjá sér áð- ur en farið er með þær á pósthús því fjöldatakmarkanir séu á pósthúsum vegna faraldursins. 27. nóvember var síðasti skiladagur sendinga til landa utan Evrópu. Álag á þjónustuveri Erfitt hefur verið að ná í þjón- ustuver Póstsins að undanförnu, hvort heldur er í gegnum síma eða netspjall. Brynjar segir að það helgist af miklu álagi. Fyrirspurnum fjölgi í takt við fjölgun sendinga. Þá hafi hnökrar verið á símkerfinu en það sé komið í lag. Viðurkennir hann að stundum sé löng bið, þrátt fyrir að starfsmönnum hafi verið fjölgað. Dreifing pakka gengur ágætlega  Kúfar hjá Póstinum þessa dagana  Fólk hvatt til að póstleggja sem fyrst Morgunblaðið/Árni Sæberg Pósturinn Starfsfólk í póstmiðstöðinni hefur meira en nóg að gera. „Við ætlum að hækka hitann í landanum með bingóveislu í kvöld, ekki veitir af,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, út- varpsmaður og bingóstjóri á K100. Sjötti bingóþáttur K100 með Sigga Gunnars og Evu Ruzu hefst klukkan 19 í kvöld. Þátturinn verður sendur út í beinu streymi á mbl.is og á rás 9 í sjón- varpi Símans. Tónlistarmaðurinn vinsæli Auður verður með að þessu sinni. Í síðustu bingóveislu gengu yfir 900 vinningar út og engin ástæða til að ætla að það verði færri í kvöld enda vinsældir bingósins sívaxandi. Gjafabréf í þyrluflug og Sam- sung-snjallúr eru meðal aðalvinninga í kvöld og fjölmargir aukavinningar í boði. Þátttakendur eru hvattir til að vera með á twitter undir #mblbingó. Bingóveisla hækkar hitann  Þyrluflug og snjallúr frá Samsung meðal vinninga í kvöld  Hvetja þátttakendur til að vera með á twitter Bingó Hægt verður að tísta orðum fyrir stafinn N á spjaldinu í kvöld. Tónlistarkonan María Magnúsdóttir eða MIMRA hélt tónleika í búðarglugga þar sem áður var að finna minjagripaverslun á Laugavegi í gær. Framtakið Talið í tónum, sem styrkt er af Mið- borgarsjóði, er eins konar tónleikajóladagatal. Til stendur að halda gluggatónleika á hverjum degi á Laugavegi 32 fram að jólum. MIMRA seg- ir þetta hafa verið skemmtilegt enda tónlistar- menn farið að þyrsta í að spila fyrir fólk. Morgunblaðið/Eggert Gluggatónleikar í tómri minjagripaverslun á Laugavegi Bakvörðurinn Anan Aurora Waage, sem sökuð var um að hafa villt á sér heimildir þar sem hún starfaði sem bakvörður á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík í byrjun apríl, ætlar í skaðabótamál við fjölmiðla og íslenska ríkið. Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa ekki út ákæru í máli Önnu, sem var handtekin 10. apríl sökuð um að hafa framvísað fölsuðum gögnum og misfarið með lyf. Í yfirlýsingu frá lögmanni henn- ar, Jóni Bjarna Kristjánssyni, kem- ur fram að umfjöllun fjölmiðla hafi verið henni óvægin sem og athuga- semdir netverja. Enn fremur segir að hún hafi ver- ið hreinsuð af öllum sakaráburði frá því á vormánuðum og nú taki við að endurheimta mannorð og æru. „Þá liggur fyrir að mikil vinna er fram undan við að sækja bætur og ómerkja rangindi og ærumeiðingar sem fjölmiðlar og netverjar hafa viðhaft um hana. Þá mun hún jafn- framt höfða mál á hendur íslenska ríkinu fyrir handtöku hennar sem var algerlega tilefnislaus og fór fram á óþarflega niðurlægjandi og meiðandi hátt,“ segir í yfirlýsing- unni. Anna fer í skaða- bótamál  Verður ekki ákærð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.