Morgunblaðið - 03.12.2020, Síða 16
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Eflaust hefur minkurinn, sem á dög-
unum sást stökkva frá borði drag-
nótabátsins Aðalbjargar RE 5 í
Reykjavíkurhöfn, verið í ætisleit.
Hvort honum varð ágengt liggur
ekki fyrir, en Aðalbjörgin lá við tré-
bryggjuna fyrir neðan Slysavarna-
félagshúsið vestur á Granda og
skeytti minkurinn lítt um umferðina
við höfnina. Áður en hann stökk í
land spókaði hann sig á lunningunni
í leit að góðum lendingarstað. Stefán
Einarsson útgerðarmaður segir að
hann hafi áður fengið mink um borð í
Aðalbjörgina og dýrið sé ekki lengi
að finna ef einhvers staðar liggi
kolablað á dekkinu.
Alltaf annað slagið fréttist af mink
á þessum slóðum og virðist vera nóg
æti fyrir minkinn, bæði fugl og fisk-
ur í og við höfnina. Í grjótvörninni
við sjóinn, meðfram Skúlagötu,
Grandagarði, Örfirisey og Fiskislóð,
er auðvelt fyrir minkinn að fela sig
og segir Guðmundur Björnsson,
rekstrarstjóri meindýravarna hjá
Reykjavíkurborg, að erfitt sé að eiga
við minkinn þar. Þegar hann fari á
stjá fréttist hins vegar oft af honum
og ekki séu nema 2-3 vikur síðan
hann náði mink á Grandagarði.
Guðmundur segir að minkurinn
fylgi ám, vötnum og sjó í borgarl-
andinu eins og annars staðar. Hann
segir að talsvert hafi verið af honum
innan borgarmarkanna síðustu ár og
tvö síðustu ár hafi á annað hundrað
minkar veiðst á svæðinu. Aðspurður
segir hann að í fyrra hafi einn mink-
ur verið veiddur við Tjörnina, en þá
hafði minkur ekki náðst þar í mörg
ár.
Laumufarþegi í þrjár vikur
Guðmundur hefur nokkrum sinn-
um frétt af minkum um borð í bátum
og rifjar upp að fyrir nokkrum árum
hafi minkur farið sem laumufarþegi í
túr með skuttogara. Áhöfnin varð
vör við dýrið, en það var ekki fyrr en
í land var komið eftir þriggja vikna
túr að Guðmundur var kallaður til og
náði minknum.
Sækja í æti við sjóinn
Minkar sjást
oft á Grandagarði
Ljósmynd/Pétur Ólafsson
Tilþrif Eftir heimsókn um borð undirbjó minkurinn stökkið í land vandlega.
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
TRYLLTIR
TAKE AWAY
TILBOÐSPAKKAR
TILBOÐSPAKKI – FYRIR TVO
Önd & Vaffla –Hægeldað andalæri, karamelluseruð epli,
belgísk vaffla, maltsósa
Íslenskt landslag – Lambatartar, sýrður rauðlaukur, reyktur
rjómaostur, graslauks-mayo, ediksnjór
Tígrisrækjusalat – Tígrisrækjur, epli, romain salat, parmesan-
kex, dillfroða, piparrótarkrem
Lax – Kolagrillaður lax, beykisveppir, reykt soð
Kolagrilluð nautalund – Sellerírótar-purée, reyktir sveppir,
karamelluseraður laukur, bernaisesósa
7.900 kr.
3.950 kr. á mann
Bættu við ljúffengum eftirrétti á 890 kr.
AFMÆLISPAKKI
Panta þarf afmælispakka fyrir kl. 16 samdægurs
og hann er eingöngu í boði fyrir tvo eða fleiri
Bleikja á vöfflu – Grafin bleikja með reyktum rjómaosti
Önd á vöfflu – Andaconfit rillet, karamelluseruð epli, maltsósa
Tígrisrækjusalat – Tígrisrækjur, epli, romain salat, parmesan-
kex, dillfroða, piparrótarkrem
Íslenskt landslag – Lambatartar, sýrður rauðlaukur, reyktur
rjómaostur, dillolía, ediksnjór
Kolagrilluð nautalund – Sellerírótar-purée, reyktir sveppir,
karamelluseraður laukur, bernaisesósa
Súkkulaði afmæliskaka í eftirrétt ( 6-8 manna)
Kakan er með súkkulaðimús og hindberj
og hjúpuð súkkulaðiganache
5.500 kr. á mann
Tekið er við pöntunum í síma 551 0011
og með góðum fyrirvara á apotek@apotekrestaurant.is
um
Þingvallanefnd fékk fyrr á þessu ári
tveggja milljóna króna styrk úr húsa-
friðunasjóði sem verður notaður til að
teikna upp gamla húsið á Kárastöð-
um og tryggja að ekki verði foktjón af
því, að því er fram kemur í fundar-
gerð nefndarinnar. Sótt hefur verið
um styrk í húsafriðunarsjóð fyrir árið
2021 til að hægt sé að vinna að frekari
úttekt á húsinu, ástandi og mögulegu
notagildi þess. Húsið var byggt 1925
og friðlýst af forsætisráðherra 2014.
Einar Á.E. Sæmundsen þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum segir að húsið sé
innan þjóðgarðsins og eftir að ríkis-
sjóður eignaðist húsið fyrir nokkrum
árum hafi það komið í hlut þjóðgarðs-
ins að fylgjast með því. Hann segir að
húsið sé illa farið og ekki hafi verið
búið í því í fjölda ára. Taka þurfi af-
stöðu til þess á faglegum grunni fyrr
en síðar hvað gera eigi við húsið og
hafi ýmsar hugmyndir komið fram
um nýtingu þess. Þingvallanefnd hafi
enga afstöðu tekið til hússins á Kára-
stöðum, að sögn Einars.
Á heimasíðu Minjastofnunar kem-
ur fram að gamla íbúðarhúsið á Kára-
stöðum hafi varðveislugildi sem mjög
gott dæmi um steinsteypt sveitahús í
burstastíl eftir Jóhann Fr. Kristjáns-
son húsameistara. Það standi á áber-
andi stað og blasi við helstu aðkomu-
leið að þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Sveitaheimili og gistihús
„Í grein sem birtist í Samvinnunni
1925 er fjallað um uppdrátt af Kára-
staðahúsinu og það nefnt sem fyrir-
mynd framtíðarbygginga á Þingvöll-
um í þjóðlegum anda, Þingvalla-
bæjarins og Hótels Valhallar. Húsið
var teiknað og byggt sem sveitaheim-
ili og gistihús og þjónaði lengi sem
slíkt auk þess að vera samkomu-
staður sveitarinnar. Kárastaðahúsið
er eitt örfárra gistihúsa þessarar
gerðar sem varðveist hafa,“ segir á
heimasíðu Minjastofnunar.
aij@mbl.is
Taka þarf faglega afstöðu
til hússins á Kárastöðum
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Kárastaðir Gamla húsið var byggt 1925 og er illa farið, myndin er frá 2013.
Byggt 1925 og friðlýst 2014 Úttekt gerð á húsinu
Umhverfisstofnun hefur veitt Ísa-
fjarðarbæ leyfi til að setja upp jóla-
markað við fossinn Dynjanda í Arn-
arfirði fyrir jólin á næsta ári.
Bærinn og samstarfsaðilar höfðu
upphaflega hug á að halda slíkan
markað nú fyrir jólin en vegna
fjöldatakmarkana og óvissu með
framhaldið var ákveðið að fresta því
til næstu jóla.
Dynjandi er skammt sunnan við
ný Dýrafjarðargöng og tilheyrir Ísa-
fjarðarbæ. Þar eru bílastæði og
þjónustuhús. Dynjandi og hans nán-
asta umhverfi er náttúruvætti.
Tinna Ólafsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Ísafjarðarbæjar, segir að sú
hugmynd hafi komið upp hjá Vest-
fjarðastofu, upplýsingastofu ferða-
mála, og Vesturferðum að bjóða
Vestfirðingum af suðursvæði og
norðursvæði að hittast þarna á jóla-
markaði. Þar gæti fólk komið með
afurðir beint frá býli, handverk og
aðrar vörur til að selja.
Leyfi veitt
Tekur hún fram að málið sé enn á
hugmyndastigi og óskað verði eftir
samstarfi við fleiri sveitarfélög og
aðra aðila, bæði af norðursvæði og
suðursvæði. Vonandi verði hægt að
halda þetta á aðventunni á næsta ári.
Umhverfisstofnun hefur umsjón
með friðlýstum svæðum og veitti
leyfi fyrir jólamarkaðnum með skil-
yrðum um að ekki yrði neinu raskað
og gengið vel um. helgi@mbl.is
Sala við Dynjanda að ári
Stefnt að jólamarkaði við Dýrafjarðargöngin á næsta ári
Morgunblaðið/RAX
Foss Dynjandi og umhverfi hans er
friðlýst sem náttúruvætti.