Morgunblaðið - 03.12.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is – Erum við símann kl. 12-17 virka daga
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
ERNA
GULL- OG SILFURSMIÐJAHönnuður
Ragnhildur Sif Reynisdóttir
Verð kr. 21.500
Hönnuður
Ösp Ásgeirsdóttir
Verð kr. 8.500
Jólaskeiðin &
jólabjallan
2020
Frí heim-
sending
Til hamingju Lóa!
Bráðfalleg bók í alla staði, fyndin, innileg
og einlæg
- Lestrarklefinn
www.salka.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vinnustaður Heimastarf er ögrun. Gott verður að komast í gamla gírinn
Vandasöm vinna
Að vinna heima er er vandi og krefst aga. Einseta tek-
ur á, spjall við vinnufélaga sem bæði gefur og gleður
er ekki til staðar og sitthvað getur truflað heima, þó
ekki sé nema að hundurinn kalli á athygli. Reynslan
sé fín, en gott verður að komast aftur á vinnustað og í
hefðbundinn takt. Þetta segja viðmælendur sem
sendu okkur myndir af sér á heimaskrifstofunni.
„Vinnuaðstaðan hér heima er góð, en fundasetur við
tölvuskjáinn allan daginn eru lýjandi. Við verðum flest
sjálfsagt fegin því þegar mannamót verða aftur heimil.
Tæknilega eru fjarfundir hins vegar ekkert mál,“ segir
Jón Steindór Valdimarsson, alþingismaður Viðreisnar.
Síðan í mars sl. hafa fundir í fastanefndum Alþingis
nánast alfarið verið á netinu og svipaða sögu er að segja
um starf þingflokka. Mæting í þinghúsið er fyrst og
fremst vegna atkvæðagreiðslna. „Að halda fundi yfir
netið hefur marga kosti. Umræður eru hnitmiðaðar og
fólk kemur sér beint að kjarna málsins. Þetta er ágætt
en óneitanlega er missir að spjalli við kaffivélina; samtöl
sem oft brjóta ísinn í samskiptum,“ segir þingmaðurinn.
Jón Steindór segir að oft taki á líkama og einbeit-
inguna að vera heimavinnandi. Því sé pása eða göngutúr
nauðsynlegt. „Konan mín er framhaldsskólakennari og
vinnur líka heima. Við erum bæði sammála um að núver-
andi ástand sé ekki framtíðin. Ég veit að í mörgum fyrir-
tækjum sjá stjórnendur að hægt sé að fækka fundum og
ferðalögum og spara þannig bæði tíma og peninga. Í
stjórnmálunum geta þingmenn úr landsbyggðar-
kjördæmunum svo líka væntanlega í einhverjum mæli
ræktað tengslin með fundum yfir netið. Einnig er mikið
rætt um störf án staðsetningar. Nú sjáum við að slíkt er
vandkvæðalítið, en mikilvægi þess að fólk hittist og eigi
samskipti í raunheimum má þó ekki vanmeta.“
Alþingi Mikilvægi þess að fólk hittist og eigi samskipti í
raunheimum má þó ekki vanmeta, segir Jón Steindór.
Missir að spjalli
við kaffivélina
„Fjarvinna hefur haldið atvinnulífinu og ég vil segja
samfélaginu gangandi. En þetta ástand er lýjandi og ég
hlakka innilega til þess að komast aftur á vinnustað eftir
tæplega tveggja mánaða fjarveru,“ segir Heiður Hjalta-
dóttir, fjármálastjóri hjá Arkþing Nordic í Reykjavík.
Þar vinna 17 manns, tæpur helmingur að heiman.
„Liði var skipt, eftir að þríeykið gaf út boðorð um að
tíu manns hið mesta mættu vera á hverjum stað. Þau
okkar á arkitektastofunni sem sögðust geta eða vilja
vinna heima fóru þangað, þar á meðal ég. Mér hefur hef-
ur fallið þetta ágætlega. Engin truflun, utan hvað hund-
urinn þarf sína athygli reglulega. Hér við stofuborðið er
ágæt aðstaða og nettengingin hraðvirk. Ég get nálgast
yfir netið öll gögn í vinnunni sem þarf, svo sem tíma-
skráningu starfsmanna og slíkt, útbúið reikninga og
greitt. Þá erum við framkvæmdastjórinn í góðu sam-
bandi í síma og á spjallrás svo þetta virkar allt,“ segir
Heiður sem telur að sá möguleiki að fólk sinni vinnu að
heiman verði talsvert nýttur í framtíðinni. Síðustu mán-
uðir hafi fært samfélaginu alveg nýja þekkingu og tæki-
færi.
„Nei, það þarf ekki endilega að formbinda heimavinnu
í starfslýsingu eða samninga. Þetta byggist allt á því að
traust sé til staðar. Þegar vinnuveitandi sér að starfs-
maður sem er heima skilar sínu 100% er svigrúm beggja
hagur. Fólk verður ánægt og allt gengur vel.“
Fjármálastjórinn Engin truflun, utan hvað hundurinn
þarf sína athygli reglulega, segir Heiður Hjaltadóttir.
Heimavinnan
byggist á trausti
„Starfshættir síðustu mánaða munu væntanlega leiða til
varanlegra breytinga í atvinnulífinu,“ segir Jón Ólafur
Halldórsson, forstjóri Olís. „Mér finnst líklegt að fólk
geti sinnt hluta starf síns heima, til dæmis ákveðna daga
vikunnar. Fyrirtækin komist því af með minna húsnæði
og geti hagrætt samkvæmt því.“
Hjá Olís gildir að starfsfólk á aðalskrifstofu er tvo
daga þar í senn og svo aðra tvo heima. Fyrirkomulagið
venst ágætlega, segir forstjórinn. „Þó ég sé við vinnu
heima í Kópavogi er dagskrá mín sú sama og venjulega.
Munurinn er helstur sá að nú ræðist fólk við í Teams,
Zoom eða með öðrum forritum sem kipptu okkur inn í
nútímann á ljóshraða, þegar kófið krafðist þess. Dag-
urinn byrjar alltaf á fundi stjórnenda hjá Olís og þar eru
áherslur mótaðar. Svo koma aðrir fundir en auðvitað
kemur ekkert í staðinn fyrir að fólk hittist.“
Þegar fólk vinnur hvert í sínu horni eru alltaf líkur á
því að liðsandi innan fyrirtækja verði ekki samur og þeg-
ar starfsmenn eru á sama stað; geta borið saman bækur
sínar á göngunum, yfir kaffivélinni eða tekið skyndifundi
um aðkallandi mál. „Við höldum tengslunum virkum yfir
netið, þar sem einnig hefur verið haldin fyrir starfs-
menn, spurningakeppni og fleira skemmtilegt. Sömuleið-
is reynum við að halda uppi góðum samskiptum við okk-
ar helstu viðskiptavini þó með öðrum hætti sé en
vanalega,“ segir Jón Ólafur Halldórsson.
Forstjóri Fólk geti sinnt hluta starfs síns heima, til
dæmis ákveðna daga vikunnar, segir Jón Ólafur í Olís.
Starfshættir var-
anlega breyttir
„Samskiptin í dag eru formlegri en áður, fundir eru
styttri og skilvirkni meiri. Slíkt er kostur. Gallinn er hins
vegar sá að það dregur úr hugmyndaflæði þegar ekki
næst þetta stutta spjall við vinnufélaga,“ segir Ásta Dís
Óladóttir, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Ís-
lands. Hún sinnir stærstum hluta starfs síns í fjarvinnu
og er í góðu sambandi við nemendur yfir netið. „Ég er
með nemendur í þekkingarstjórnun sem er áhugavert
námskeið á tímum Covid. Þar er meðal annars rætt um
samskipti, tækninýjungar, þekkingarmiðlun og fjar-
vinnu. Skipulagið er þannig að ég er búin að taka upp
fyrirlesturinn og svo hittumst við tvisvar í viku í einn og
hálfan til tvo tíma í senn og ræðum saman. Umræðurnar
í þeim hópi eru mjög líflegar og það eru allir að taka þátt,
jafnvel meira en er í hefðbundinni kennslustofu, en
dýnamíkin er samt önnur en ef fólk væri saman í rými,“
segir Ásta og bætir við:
„Í núverandi ástandi skiptir miklu fyrir stjórnendur
fyrirtækja að vera á tánum, að kanna hvernig fólki líður,
hafa samband, teygja sig til starfsmanna, hvetja þá
áfram og finna upp á skemmtilegum hlutum sem starfs-
fólk getur gert saman, meðal annars í gegnum fjar-
fundabúnað. Margir tala annars um að skilin milli vinnu
og einkalífs séu horfin, allt renni saman í eitt þegar fólk
er heima hjá sér alla daga allan daginn. Þetta eru undar-
legir tímar.“
Háskólinn Margir tala annars um að skilin milli vinnu
og einkalífs séu horfin, segir Ásta Dís Óladóttir dósent.
Stjórnendurnir
hvetji og kanni