Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 30
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Björn Leifsson, stofnandi og einn eigenda World Class, segir tekjur fé- lagsins hafa dregist saman um rúm- lega 1,2 milljarða í kórónuveiru- faraldrinum. Sú tala hækki um margar milljónir í viku hverri. Þá hafi faraldurinn sett alla upp- byggingu félagsins úr skorðum og kallað á miklar lántökur. Öllum 16 stöðv- um keðjunnar var lokað í fyrstu bylgju faraldurs- ins. Það stóð yfir í níu vikur en stöðvarnar voru síðan opnar yfir sumarið eða þar til þeim var lokað í þriðju bylgjunni í byrjun október. Hafa stöðvarn- ar því verið lokaðar í alls um fjóra mánuði í ár. Þegar faraldurinn hófst var ný viðbygging við World Class á Tjarnavöllum á lokametrunum. Jafnframt áformaði Björn að opna þrjár nýjar stöðvar á árinu; á Hellu, í Vatnsmýri og í Suður-Kringlu. Voru nýbúnir að opna Þegar þriðja bylgja faraldursins hófst í ágúst var Björn nýbúinn að opna stöðina við sundlaugina á Hellu. Stöðin í Grósku, húsi CCP í Vatnsmýri, er tilbúin og er beðið leyfis til að opna hana. Þá var áformað að opna nýja stöð í Suður-Kringlu í september en nú er miðað við janúar eða febrúar, að sögn Björns, sem bendir á tafir hjá byggingarfulltrúa og arkitektum. Samhliða verður World Class-stöð í Kringlunni 1 breytt í WorldFit stöð. Þá hugðist Björn hefja framkvæmd- ir við stækkun World Class-stöðvar við sundlaugina á Selfossi. Því var slegið á frest en hefja átti fram- kvæmdir fyrir sumarið og taka við- bygginguna í notkun í haust. World Class hafði fleiri járn í eld- inum því áformað var að opna World Class-stöð í viðbyggingu við íþrótta- miðstöðina Ásgarð í Garðabæ. Nán- ar tiltekið hjá sundlauginni. Verkefnið var sett á ís eftir að kærunefnd útboðsmála úrskurðaði að verkið skyldi boðið út að nýju á evrópska efnahagssvæðinu. Björn segir óvissu um framhaldið. Hann hafi ekki heyrt í fulltrúum Garðabæjar eftir að úrskurðurinn var felldur. Hefur tekið milljarð að láni Fram kom í ViðskiptaMogganum í maí síðastliðnum að World Class hefði tapað 600 milljónum króna í fyrsta samkomubanninu. Björn segist aðspurður hafa tekið 600 milljónir að láni sl. vor og 400 milljóna yfirdráttarlán í haust. „Við getum væntanlega haldið þetta þó nokkuð lengi út enda á fé- lagið töluverðar eignir. Við yrðum þá að ganga á eignirnar,“ segir Björn. Fyrir fyrsta samkomubannið í lok mars var World Class-keðjan komin með 50 þúsund meðlimi í fyrsta sinn í sögu félagsins, sem var stofnað á 9. áratugnum í Skeifunni, en nú eru þeir 38 þúsund. „Ef við fáum að opna aftur á næstunni reiknum við með að vera aftur komin með 50 þúsund meðlimi með vorinu,“ segir Björn. Spurður hvaða áhrif væntanlegir lokunarstyrkir hafi á rekstur World Class segir Björn þá breyta litlu fyrir afkomu félagsins á þessu ári. „Þetta er allt til bóta en gerir mjög lítið fyrir mitt fyrirtæki í hlutfalli við stærð og tekjutap. Ef allir keppi- nautar fá sambærilega upphæð tel ég það vera mismunun,“ segir Björn og vísar til mismikillar veltu fyrir- tækjanna. World Class sé lang- stærsti aðilinn á markaðnum en með allar stöðvarnar á sömu kennitölu. Ættu að fá 70% af tekjum Með þetta í huga sé eðlilegra og sanngjarnara að miða við veltu. Ekki síst í ljósi þess að greiða eigi tekju- fallsstyrki til fyrirtækja sem hafi haft 90% tekjusamdrátt frá 1. maí. „Ég er með þrjú fyrirtæki; Laug- ar, Laugar veitingar og Laugar Spa. Ekkert þeirra er innan þessara marka. Það væri sanngjarnara að ríkið greiddi fyrirtækjunum 70% af tekjum seinasta árs fyrir hvern mán- uð sem lokanirnar ná til. Okkur er gert að loka stöðvunum en þurfum að greiða laun, leigu, rafmagn, hita og skatta. Það er hvergi gefinn af- sláttur þrátt fyrir tekjufallið. Við er- um þannig með fullan rekstrar- kostnað þrátt fyrir að mega ekki vinna fyrir okkur,“ segir Björn. Að sama skapi geri hlutabótaleiðin takmarkað gagn fyrir World Class. „Hlutabótaleiðin er ætluð starfs- fólki sem er í yfir 70% starfshlutfalli. Ég myndi ætla að yfir helmingur starfsmanna okkar sé í undir 70% starfshlutfalli. Það er svo mikið um skólafólk í hlutastarfi,“ segir Björn. Hann telur, í ljósi erlendra rann- sókna, engin haldbær rök fyrir því að loka líkamsræktarstöðvum að fullu. „Við teljum því rétt að heimila að opna stöðvarnar með ákveðnum tak- mörkunum. Til dæmis þeim að gestir þurfi að mæta með grímu og svo hafi hver og einn sinn sprittbrúsa og klút,“ segir Björn. Tapa milljónum í viku hverri Eftir æfingu Heitar laugar í World Class-stöðinni í Grósku.  World Class hefur tapað 1.200 milljónum í faraldrinum  Ekki hægt að opna nýja stöð í Vatnsmýri  Meðlimum hefur fækkað um 12 þúsund  Stofnandinn kveðst bjartsýnn á að ná upp fyrri aðsókn Björn Leifsson Bíða notkunar Lóðasett í nýju stöðinni í Grósku. Félagið var í örum vexti. Morgunblaðið/Eggert Gróska World Class er á jarðhæð. 30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 Alþjóðlega upplýsingatæknifyrir- tækið Crayon Group hefur keypt Sensa af Símanum fyrir 3,25 millj- arða króna. Tveir þriðju hlutar kaup- verðs eru greiddir með reiðufé en það sem eftir stendur með hlutabréf- um í Crayon. Kaupin eru háð sam- þykki Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningu segir að Sensa hafi um árabil verið í fararbroddi ís- lenskra upplýsingatæknifyrirtækja og spannar starfsemi félagsins allt frá rekstri, hýsingu og skýjalausnum til sérfræðiþjónustu og ráðgjafar. Undanfarin ár hefur Sensa byggt markvisst upp þekkingu á hagnýt- ingu Microsoftlausna. Starfsmenn Sensa eru 115 talsins, þar af vinnur 91 við ráðgjöf og upplýsingatækni. Crayon er með höfuðstöðvar í Osló og er skráð á hlutabréfamarkað þar í borg. Hjá fyrirtækinu starfa um 1.700 manns en það er með 55 starfs- stöðvar í 35 löndum, þar á meðal á Íslandi. Í tilkynningunni segir að Crayon sé leiðandi á heimsvísu í eignastýr- ingu hugbúnaðar, skýja- og hugbún- aðarleyfissamningum og tengdri ráðgjafarþjónustu og eru mörg af stærstu fyrirtækjum heims við- skiptavinir fyrirtækisins. Torgrim Takle forstjóri Crayon sagðist á kynningarfundi í gærmorg- un vera ánægður með kaupin. Sensa væri fyrirtæki í fararbroddi í skýja- lausnum á Íslandi, fjárhagsskipan félagsins væri góð og útlitið gott til framtíðar. Á kynningunni kom fram að EBITDA-hlutfall Sensa síðustu tólf mánuðina frá júní sl. væri 24%, eða 561 milljón króna. Tekjur tímabils- ins væru rúmir fimm milljarðar. „Við hlökkum til að fá Sensa til liðs við Crayon Group vegna vaxtarmögu- leikanna sem það hefur í för með sér fyrir fyrirtækið,“ sagði Torgrim í til- kynningu Crayon. Crayon kaupir Sensa á 3,25 ma. Morgunblaðið/Eggert Kaup Valgerður Hrund Skúladóttir er framkvæmdastjóri Sensa.  Forstjórinn sér vaxtarmöguleika Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is • Olíulitir • Akrýllitir • Vatnslitir • Trélitir • Trönur • Blindrammar • Strigi • Penslar • Spreybrúsar • Teikniborð • Gjafasett • Teikniborð • Ljósaborð • Skissubækur ... og margt fleira Þess vegna leggjum við mikinn metnað í myndlistarvörurnar okkar. Listin er eilíf Þú finnur réttu jólagjöfina í myndlistarvörudeildum okkar í Fellsmúla v/Grensásveg og á Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.