Morgunblaðið - 03.12.2020, Síða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
✝ María Stein-unn Gísladótt-
ir fæddist í Skál-
eyjum á
Breiðafirði 10.
nóv. 1932. Hún
lést á heimili sínu
16. nóv. 2020. For-
eldrar hennar
voru Sigurborg
Ólafsdóttir, f. 26.
júlí 1904, d. 7.
mars 1984, og
Gísli E. Jóhannesson, f. 1.
sept. 1901, d. 27. jan. 1984.
Systkini Maríu voru: Ólína Jó-
hanna, Eysteinn Gísli, Ásta
Sigríður, Jóhannes Geir, Ólaf-
ur Aðalsteinn og Kristín Jak-
obína. Fósturbróðir þeirra er
Hilmar Jónsson.
María giftist hinn 23. júní
1957 Leifi Kr. Jóhannessyni, f.
12. nóv. 1932 á Saurum í
Helgafellssveit, foreldrar hans
voru Guðrún Hallsdóttir, f. 2.
mars 1903, d. 4. sept. 1993, og
Jóhannes Guðjónsson, f. 30.
jan. 1898, d. 31. jan. 1950.
Börn Maríu og Leifs eru: 1)
Jóhanna Rún, f. 27. jan. 1958,
maki Kristján Á. Bjartmars, f.
1954. Börn þeirra eru a)
María Kristín, f. 1984, maki
Pétur Halldórsson, og b) Guð-
mundur f. 1987, maki Bri Win-
ter, synir: Ágúst Thor og
Ragnar Björn. 2) Sigurborg, f.
við hefðbundin eyjastörf, hún
naut fræðslu í farskóla í
Breiðafirði en fór tvítug til
náms við Húsmæðraskólann á
Varmalandi. Þau Leifur hófu
búskap á Egilsstöðum árið
1956 en fluttust árið 1959 í
Stykkishólm, þegar Leifur tók
við starfi ráðunautar í þegar
Leifur tók við starfi ráðunauts
á Snæfellsnesi. Eftir að börnin
fæddust helgaði hún að mestu
þeim og heimilinu krafta sína.
Árin í Hólminum urðu alls 25
en árið 1984 fluttu þau sig í
Mosfellsbæ, þar sem þau hafa
búið síðan. Þar starfaði María
hjá Álafossi og til nokkurra
ára í þjónustuíbúðum aldraðra
á Hlaðhömrum.
María hafði ánægju af ýmiss
konar félagsstörfum, hún sat í
stjórn Kvenfélagsins Hringsins
í Stykkishólmi og í stjórn
Kvenfélagasambands Snæfells-
nes- og Hnappadalssýslu. Hún
var formaður kvennadeildar
Barðstrendingafélagsins í níu
ár eftir að hún fluttist úr
Hólminum. María tók virkan
þátt í söngstarfi síðustu ár
með félögum sínum í Vorboð-
um, kór eldri borgara í Mos-
fellsbæ, þar sem hún var einn-
ig formaður í níu ár.
Útför Maríu fer fram frá
Seljakirkju í dag, 3. desember
2020, klukkan 13, að við-
stöddum nánustu ættingjum.
Streymt verður frá athöfninni
á vef Seljakirkju,
https://www.seljakirkja.is
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á
https://www.mbl.is/andlat
23. janúar 1961,
maki Hörður
Karlsson, f. 1959.
Börn þeirra: a)
Lára María, f.
1984, maki Hauk-
ur Elvar Haf-
steinsson, börn:
Einar Kári og
Hildur Edda, b)
Anna, f. 1987,
maki Andrés
Gunnarsson, dótt-
ir: Katla María, og c) Leifur, f.
1994, maki Aldís Ásgeirs-
dóttir, sonur: Ísak Ernir. 3)
Heiðrún, f. 3. febrúar 1962,
maki Lárentsínus Ágústsson,
f. 1958. Börn Heiðrúnar: a)
Lýður, f. 1980, dætur hans eru
Heiðrún Rós, Guðrún María og
Heiðdís Diljá, b) Halla, f. 1987,
dætur: Nadía Sif og Ísabella.
4) Eysteinn, f. 7. nóv. 1969,
maki Guðleif Birna Leifs-
dóttir, f. 1974. Börn þeirra: a)
Leifur Ingi, f. 1999, maki Ólöf
Pálína Sigurðardóttir, b) Dag-
ur, f. 2003, og c) Kristín
María, f. 2007. 5) Jófríður, f.
8. nóv. 1974, maki Ingimundur
Jónsson, f. 1979. Dætur Jófríð-
ar: a) Aldís Eyja, f. 1994, maki
Einar Páll Pálsson, dóttir Al-
dísar: Edda Kristný, b) Fann-
ey Rún, f. 1998, maki Ingi
Steinn Ingvarsson.
María ólst upp í Skáleyjum
Það er kannski mótsögn í því
að segja að okkur þyki fráfall
móður okkar heldur óvænt og
ótímabært, hún hafði náð háum
aldri og sannarlega er eina viss-
an í lífinu að það tekur á ein-
hverjum tímapunkti enda. En
kannski finnst okkur öllum að
mömmur séu eilífar og þegar
gæfan gefur góða heilsu og lífs-
gleði fram á síðasta dag, þá er
þetta á einhvern hátt ótíma-
bært. Hugurinn hefur óneitan-
lega reikað vítt og breitt síðustu
vikur og falleg orð og kveðjur
sem okkur hafa borist bera
mömmu fallegt vitni, minning-
arnar eru margar og þær eru
góðar. Hún var af þeirri kyn-
slóð íslenskra kvenna sem helg-
aði sig að mestu heimilinu, allt-
af tilbúin að taka á móti gestum
sem bar að garði og gefa fólki
af tíma sínum. Hún unni land-
inu sínu og móðurmálinu og
lagði mikið upp úr því að við
töluðum rétta og fallega ís-
lensku, okkur þótti því viðeig-
andi að hún skyldi kveðja okkur
á Degi íslenskrar tungu. Heim-
taugin vestur í Breiðafjörð var
sterk og þangað leitaði hugur-
inn gjarnan, ekki síst á vorin
þegar æðarfuglinn var að setj-
ast upp og hefja varp, þá lang-
aði hana „heim í Skáleyjar“.
Hún naut þess að syngja og
fram á síðasta dag söng hún
með okkur vísurnar að vestan.
Okkur finnst við líka hafa átt
svo skemmtilega mömmu, hún
tók hlutunum mátulega alvar-
lega og bjó yfir einstökum létt-
leika og húmor, ekki síst fyrir
sjálfri sér.
Foreldrar okkar voru ein-
staklega samhent í einu og öllu
og þau hafa alla tíð leyft afkom-
endum sínum að njóta með sér
lífsins gæða. Við eigum ómet-
anlegar minningar af samveru-
stundum af ýmsum tilefnum,
þau hafa gjarnan boðað okkur
saman á tímamótum í lífi sínu
og þannig styrkt tengslin í
hópnum sínum. Áhugi mömmu
fyrir afkomendum sínum og
hvað þeir voru að fást við var
einlægur og við vitum að hún
var stolt og glöð með fólkið sitt.
Við systkinin eigum foreldr-
um okkar margt að þakka, ekki
síst samheldnina á milli okkar,
sem er ómetanleg þegar á reyn-
ir eins og síðustu vikur í veik-
indum mömmu. Samvera þeirra
spannar næstum 66 ár og að-
dragandinn að þessum aðskiln-
aði var æðrulaus og kærleiks-
ríkur. Pabba og okkar allra
bíður að feta veginn án
mömmu. Hún verður ekki
kvödd hinstu kveðju hér, hún
lifir áfram með okkur í öllu því
góða sem hún lagði okkur og
fólkinu okkar til. Hún lifir í
hnyttnum tilsvörum, handverki,
hugsunarsemi og fallegum orð-
um, sögðum og skrifuðum. Við
munum sameina hópinn hennar
þegar tilefni er til og áfram
vitna í allskonar skemmtilegt
sem mamma og amma sagði eða
gerði.
Guð blessi minningu mömmu.
Jóhanna Rún, Sigurborg,
Heiðrún, Eysteinn
og Jófríður.
María Steinunn hefur leyst
landfestar og siglt á annað til-
verustig eftir skammvinn veik-
indi, þessi glaðværa hlýja kona.
Fyrir 27 árum bættist ég við
fjölskyldu þeirra hjóna Maríu
og Leifs þegar við Eysteinn
rugluðum saman reytum. María
var ættmóðir mikil, stolt af
börnunum sínum og afkomend-
um öllum og lagði mikið upp úr
samveru með stórfjölskyldunni.
Hún fylgdist vel með hópnum
sínum, bæði börnum og barna-
börnum, en síðustu ár naut hún
ekki síst ört stækkandi hóps
barnabarnabarna. Í minning-
unni lifa ógleymanlegar ferðir
með þeim hjónum bæði innan-
lands og erlendis, oftar en ekki
tengdar veiði og hestamótum.
Þar stóð María yfirleitt í mat-
arstússi og passaði upp á að
enginn væri svangur. Margir
nutu gestrisni hennar heima og
að heiman.
Börnin okkar Eysteins hafa
notið góðs af því að alast upp í
næstu götu við þau í gegnum
árin og það ber að þakka. Þau
hafa notið ómældrar hlýju,
gestrisni og kærleika hjá ömmu
og afa.
Það er erfitt að minnast Mar-
íu nema að tala um Leif, hennar
ektamann. Þau hjónin voru alla
tíð einstaklega samrýnd og
samtaka í öllu sem þau tóku sér
fyrir hendur. Ávallt var skýr
verkaskipting þeirra á milli en
samstillt gengu þau saman í
gegnum lífið, alltaf í takt. Ást
og kærleikur sameinaði þau þar
til yfir lauk. Missir elsku Leifs
er mikill.
Breiðfirskar rætur Maríu
voru sterkar og taugin til Skál-
eyja römm. María hélt í ýmsar
matarhefðir úr eyjunum sem
skagfirska tengdadóttirin kunni
því miður ekki að meta. Söngur,
sögur og ljóð úr Breiðafirðinum
voru í hávegum höfð. Hún naut
þess að uppfræða barnabörnin
og lagði áherslu á vandað ís-
lenskt málfar, en hún var líka
glettinn húmoristi og átti auð-
velt með að koma fjölskyldu-
meðlimum til að hlæja.
Ég þakka elsku Maríu fyrir
samfylgdina þessi ár. Betri og
traustari tengdamóður er ekki
hægt að hugsa sér.
Guðleif Birna Leifsdóttir.
Nú hefur elsku amma mín
sem var mér svo kær fengið
hvíldina eftir stutt veikindi en
góða og farsæla ævi. Það er
skrýtið að hugsa til þess að
amma sé farin frá okkur, mikill
söknuður en umfram allt þakk-
læti. Hún og afi hafa alla tíð
haldið þétt utan um okkur fjöl-
skylduna og sinnt henni af mik-
illi ást og alúð. Það er erfitt að
tala um ömmu án þess að minn-
ast á afa, hjónaband þeirra og
vinátta var til mikillar fyrir-
myndar; fallegt, traust og kær-
leiksríkt.
Það eru margar minningarn-
ar sem fljúga í gegnum hugann.
Allar fjölskyldustundirnar, jóla-
boðin, afmælin og brúðkaups-
afmælin sem við barnabörnin
fengum að taka þátt í. Oftar en
ekki var brugðið á leik með
söng, leikjum og öðru sprelli
þar sem amma var miðpunkt-
urinn. Smitandi, dillandi hlát-
urinn hennar kom okkur öllum
til að hlæja.
Ég ylja mér við minningarn-
ar um morgunstundirnar í Ak-
urholtinu og seinna að Hlað-
hömrum. Það var búið að hella
upp á, oftar en ekki heitt
súkkulaði yfir vetrartímann og
alltaf séð til þess að allir færu
saddir heim. Amma átti það til
að færa veitingarnar nær disk-
unum okkar ef henni þótti við
ekki gera þeim nógu góð skil.
Það var spjallað um allt milli
himins og jarðar. Amma var
góður hlustandi og hafði mikinn
áhuga á að heyra skoðanir unga
fólksins á hlutunum, hún var
hreinskilin og lá oftast ekki á
skoðunum sínum en alltaf var
stutt í hláturinn og húmorinn.
Amma var mikil fyrirmynd á
svo margan hátt. Hún hafði
sterka nærveru, mikill húmor-
isti, nýtin, kærleiksrík, gestris-
in, umhyggjusöm og hlý. Um-
fram allt var hún einstaklega
vönduð manneskja. Ég var svo
lánsöm að fá að búa í Akurholt-
inu í nokkra mánuði í senn þeg-
ar ég var í námi. Þann stuðning
og þær minningar sem ég á
með ömmu og afa er ég ótrú-
lega þakklát fyrir.
Þegar ég bjó í Svíþjóð fékk
ég reglulega handskrifuð sendi-
bréf frá ömmu. Þau varðveiti ég
vel ásamt öllum fallegu kort-
unum og kveðjunum sem við
höfum fengið í gegnum tíðina.
Amma var stolt af rótum sín-
um í Breiðafjarðareyjum og
fannst mikilvægt að við þekkt-
um til þeirra og eins okkar
frændfólks.
Ég er þakklát fyrir að amma
gat fagnað og glaðst með okkur
Hauki á brúðkaupsdaginn í
fyrra. Það var gaman að fá
hennar innlegg í undirbúning-
inn. Við Haukur vorum tiltölu-
lega nýbúin að kynnast þegar
hún dró fram dressið sem hún
sagðist ætla að klæðast í brúð-
kaupinu okkar og gantaðist með
það að hún ætlaði ekki láta það
stoppa sig að mæta þótt við
myndum gifta okkur á Esjunni.
Við erum lánsöm og rík að
hafa átt ömmu að og fengið að
njóta allra þessara ára með
henni. Hópurinn þeirra afa er
þéttur og samheldinn, við pöss-
um vel upp á afa og hvert annað
eins og við lofuðum henni.
Minningin um ömmu lifir og
lífsgildin hennar vísa mér veg-
inn. Ég mun miðla þeim ásamt
minningunum um hana áfram
til barnanna minna.
Hvíl í friði elsku amma mín.
Lára María Harðardóttir.
Elsku amma, María Stein-
unn, hefur kvatt, við þökkum
fyrir öll árin og að geta haft
hana í næstu götu, þar sem allt-
af var tekið á móti okkur með
ástúð og hlýju. Mikið eigum við
eftir að sakna hennar.
Hér að hinstu leiðarlokum
ljúf og fögur minning skín.
Elskulega amma góða
um hin mörgu gæði þín.
Allt frá fyrstu æskudögum
áttum skjól í faðmi þér.
Hjörtun ungu ástúð vafðir
okkur gjöf sú dýrmæt er.
Hvar sem okkar leiðir liggja
lýsa göfug áhrif þín.
Eins og geisli á okkar brautum
amma góð, þótt hverfir sýn.
Athvarf hlýtt við áttum hjá þér
ástrík skildir bros og tár.
Í samleik björt, sem sólskinsdagur
samfylgd þín um horfin ár.
Fyrir allt sem okkur varstu
ástarþakkir færum þér.
Gæði og tryggð er gafstu
í verki góðri konu vitni ber.
Aðalsmerkið: elska og fórna
yfir þínum sporum skín.
Hlý og björt í hugum okkar
hjartkær lifir minning þín.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Leifur Ingi, Dagur
og Kristín María
Eysteinsbörn,
María Steinunn
Gísladóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁSKELL BJARNI FANNBERG,
Norðurbakka 7a,
Hafnarfirði,
lést á Landspítala við Hringbraut
28. nóvember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 7. desember klukkan 13.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánasta fjölskylda
og vinir viðstödd útförina. Hægt verður að nálgast streymi á
mbl.is/andlat.
Þóra Kristjana Einarsdóttir
Einar Már Áskelsson Helga Rún Gunnarsdóttir
Eyþór Ingi Áskelsson Agnieszka Kolowrocka
Unnur Björk Áskelsdóttir Matthew Peter Abrachinsky
Áslaug Dögg Martin Pétur Hreiðar Sigurjónsson
og barnabörn
PÁLL PÉTURSSON,
bóndi, fyrrverandi alþingismaður
og ráðherra,
verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju
laugardaginn 5. desember klukkan 13, að
viðstöddum nánustu aðstandendum.
Athöfninni verður streymt á slóðinni:
https://www.facebook.com/100412425265948/live/
Virkan hlekk á slóðina má nálgast á https://www.mbl.is/andlat.
Sigrún Magnúsdóttir og fjölskylda
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
BJÖRN GUNNARSSON
prentari,
lést sunnudaginn 29. nóvember.
Útförin fer fram í Ósló.
Unni Ruud
Soffía Unnur Björnsdóttir Ólafur Sigurðsson
Hlín Gunnarsdóttir Loftur Magnússon
Málfríður Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær vinur, faðir, tengdafaðir og afi,
HANS HELGI STEFÁNSSON
matreiðslumaður,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 4. desember klukkan 11 að
viðstöddum nánustu ættingjum og vinum.
Athöfninni verður streymt á Youtube-síðu Afturelding TV, https:/
/www.youtube.com/channel/UCPUOLgOBtZrf2hAyryb2Eaw.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarsjóð HERU, sérhæfð
líknarheimaþjónusta Landspítalans.
Alda Ægisdóttir
Sigríður Diljá Blöndal Þorsteinn Hallsson
Eva Rut Helgadóttir
Patrekur Helgason Unnur Ósk Burknadóttir
Viktor Elí Þorsteinsson
Hallur Frank Þorsteinsson
Yndisleg eiginkona, móðir, tengdamóðir,
dóttir, tengdadóttir, systir og mágkona,
HELGA INGÓLFSDÓTTIR
byggingariðnfræðingur
og tækniteiknari,
Strýtuseli 3, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu 14. nóvember.
Hún verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju föstudaginn 4.
desember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir en streymt verður frá athöfninni á:
https://youtu.be/5jqQfhftzMY
Virkan hlekk á streymi má einnig finna á www.mbl.is/andlat
Þeim sem vilja minnast Helgu er bent á Kraft og Ljósið.
Sérstakar þakkir fær heilbrigðisstarfsfólk fyrir einstaka umönnun
og hlýju.
Arnar Guðmundsson
Þorri Arnarsson Marín Líf Gautadóttir
Óðinn Arnarsson Hildur Helgadóttir
Guðlaug Birna Hafsteinsd. Steinn Halldórsson
Ingólfur Helgi Matthíasson Sóley Birgisdóttir
Guðmundur Jóhannesson Bergljót Helga Jósepsdóttir
Jóhanna Steinsdóttir Þorkell Guðmundsson
Halldór Steinsson Camilla Mortensen
Hafsteinn Steinsson Elín K. Linnet
Heiða Rún Steinsdóttir Hugrún Ósk Bjarnadóttir
Rut Ingólfsdóttir Gísli Már Ágústsson
Máni Ingólfsson Gerða Arndal
Hrói Ingólfsson