Morgunblaðið - 03.12.2020, Síða 54
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Hallbera Guðný Gísladóttir, lands-
liðskona Íslands í knattspyrnu, gæti
vel hugsað sér að ljúka ferlinum á
EM í Englandi 2022.
Bakvörðurinn, sem er 34 ára göm-
ul, hefur verið lykilmaður í íslenska
landsliðinu undanfarinn áratug en
hún á að baki 117 landsleiki fyrir Ís-
land og er fjórða leikjahæsta lands-
liðskona Íslands frá upphafi.
Hallbera er á leið á sitt þriðja stór-
mót með kvennalandsliðinu en hún
var lykilmaður í Svíþjóð 2013 þegar
liðið fór alla leið í átta liða úrslit og í
Hollandi 2017 þegar Ísland féll úr leik
í riðlakeppninni.
Ísland tyggði sæti sitt á EM 2022
með 1:0-sigri gegn Ungverjalandi í
lokaleik sínum í riðlakeppninni en Ís-
land endaði riðlakeppnina sem eitt
þriggja liða með bestan árangur í
öðru sæti undankeppninnar og fer því
beint á fjórða Evrópumótið í röð.
„Tilfinningin eftir leikinn gegn
Ungverjalandi var mjög skrítin því
við ætluðum okkur að vinna leikinn
með meiri mun,“ sagði Hallbera í
samtali við Morgunblaðið.
„Við gátum ekki leyft okkur að
fagna, þannig séð, en við gátum held-
ur ekki leyft okkur að vera svekktar
þar sem við náðum í þrjú stig. And-
rúmsloftið var þess vegna frekar
skrítið en að sama skapi gerðum við
okkar og þess vegna var lítið annað
að gera en að bíða eftir úrslitum úr
öðrum leikjum.
Úrslitin úr fyrsta leiknum duttu
ekki með okkur. Ég get alveg viður-
kennt að sú hugsun skaut upp koll-
inum að þetta væri ekki að fara að
detta með okkur, bara svona til þess
að toppa árið 2020 endanlega. Sem
betur fer duttu úrslitin í öðrum leikj-
um með okkur og eftir á þá var þetta
mjög gaman.
Það var svona kosningavöku-
stemning yfir þessu hjá okkur á með-
an við fylgdumst með hinum leikj-
unum. Við ákváðum hins vegar að
horfa ekki á leikina í sjónvarpinu
heldur nýttum við tímann í að vígja
nýja leikmenn inn í liðið. Við kíktum
við og við inn á úrslitasíðurnar á net-
inu og það var svo fagnað vel og inni-
lega þegar það varð ljóst að við vær-
um á leiðinni á EM.“
Mikill uppgangur
Mikill uppgangur hefur átt sér stað
í kvennaboltanum á undanförnum ár-
um og er Hallbera því afar stolt af ár-
angri íslenska liðsins.
„Það var erfiðara að komast í loka-
keppnina núna en árið 2013 sem
dæmi. Liðin eru orðin betri og Ung-
verjar eru t.d. með flott lið í dag. Lið-
in eru orðin mun taktískari og það er
erfiðara að brjóta þau á bak aftur.
Þetta rímar í raun alveg við uppgang-
inn sem hefur verið í kvennafótbolt-
anum á undanförnum árum, þetta
verður alltaf erfiðara og erfiðara, og
persónulega þá tel ég þetta vera mjög
stórt afrek hjá okkur að tryggja okk-
ur beint á EM, án þess að þurfa að
fara í umspil. Ég er þess vegna mjög
stolt af liðinu í dag.
Mér finnst í sjálfu sér ekkert óeðli-
legt að fólk taki því sem sjálfsögðum
hlut að við séum að vinna þessi minni
lið nokkuð þægilega. Undanfarin ár
höfum við verið að vinna þessar Aust-
ur-Evrópuþjóðir sem dæmi nokkuð
sannfærandi og ég held að við sjálfar
þurfum líka að gíra okkur aðeins inn
á það að þessir leikir eru orðnir erf-
iðari en þeir voru. Það sýndi sig í
þessum tveimur leikjum gegn Sló-
vakíu og Ungverjalandi að það þarf
allt að ganga upp hjá okkur ef við ætl-
um okkur sigur gegn þessum þjóðum.
Það mátti lítið út af bera hjá okkur,
í báðum leikjunum, og þetta var virki-
lega erfitt gegn Ungverjunum enda
fátt sem benti til þess að við værum
að fara að skora þarna þegar leið á
leikinn. Það var þess vegna virkilega
sætt að sjá boltann í markinu, sér-
staklega eftir á, enda markið sem
skaut okkur á EM.“
Framtíðin björt
Bakvörðurinn hefur upplifað hæðir
og lægðir á stórmótum í gegnum tíð-
ina og er reynslunni ríkari.
„Ég held að mótið á Englandi verði
toppurinn á því sem hefur verið í
gangi hingað til. Það hefur verið mik-
ill uppgangur líka í kvennaboltanum
á Englandi og ég á von á því að um-
gjörðin verði algjörlega geggjuð. Ég
held að það sé mikilvægt fyrir okkur
eldri leikmennina að vera duglegar
að miðla af okkar reynslu til yngri
leikmanna liðsins. Ég fór ansi hátt
upp þegar ég upplifði mitt fyrsta
stórmót enda umfjöllunin og um-
gjörðin í kringum mótið og liðið allt
önnur en maður var vanur.
Maður var fljótur að gleyma sér í
gleðinni á mótinu í Hollandi 2017 og
fór mjög hátt upp í aðdraganda
mótsins. Eftir mótið fór maður svo
ansi langt niður enda gengið ekki
gott og þegar maður hofir til baka
þá er maður svo sannarlega reynsl-
unni ríkari eftir þessi tvö stórmót.
Það er algjörlega einstakt að taka
þátt í svona móti og kannski ekkert
skrítið að mæta til leiks á sitt fyrsta
stórmót með stjörnur í augunum.
Ég hef hins vegar litlar áhyggjur
af þessum ungu stelpum sem hafa
verið að koma inn í hópinn að undan-
förnu enda allar mjög rútíneraðar
og taktfastar stelpur. Þetta eru ekki
sömu vitleysingarnir og ég og fleiri
vorum á þeirra aldri. Þær eru allar
með skýr markmið og miklir íþrótta-
menn þannig að framtíðin er virki-
lega björt hjá kvennalandsliðinu.“
Dýrmæt reynsla
Hallbera er á leið í meistaranám í
Svíþjóð næstu tvö árin en hún hefur
leikið með Val frá árinu 2018.
„Það er rosalega mikil reynsla í
hópnum í dag og við erum búnar að
ganga í gegnum allskonar. Við erum
búnar að ganga í gegnum dýpstu
dali en á sama tíma höfum við líka
upplifað frábæra sigra. Það er ýmis-
legt sem situr í manni og næsta tak-
mark er að sjálfsögðu að fara á EM
og reyna að gera einhverja alvöru-
hluti.
Ég ætla mér að vera áfram í fót-
boltanum og mér líður ekki eins og
ég sé 34 ára gömul þótt ég sé reglu-
lega minnt á það. Þetta er ágætis
aldur í fótboltanum en mér líður frá-
bærlega í líkamanum og mér finnst
ég eiga fullt erindi í þetta ennþá. Ég
er ekki komin með hnéhlífar á báða
fætur ennþá en á sama tíma veit
maður ekkert hvernig staðan verður
sumarið 2022.
2021 ætla ég mér að spila fótbolta
og á meðan ég er í fótbolta geri ég
það almennilega og vil halda sæti
mínu í landsliðinu. Ég viðurkenni
það samt að ég fékk sting í magann
þegar ákveðið var að fresta mótinu
um eitt ár enda getur ýmislegt
breyst á einu ári.
Á sama tíma er maður tilbúinn að
setja allt á fullt fyrir þetta og það
væri algjörlega geggjað að ljúka
ferlinum á stórmóti á Englandi,“
bætti Hallbera við í samtali við
Morgunblaðið.
Ekki sömu vitleysingarnir
og ég var á þessum aldri
Hallbera Guðný Gísladóttir setur stefnuna á sitt þriðja stórmót með Íslandi
Morgunblaðið/Eggert
Hallbera Guðný
Gísladóttir
» Fæddist 14. september
1986.
» Uppalin hjá ÍA á Akranesi og
lék sinn fyrsta meistaraflokks-
leik með liðinu árið 2002.
» Hefur leikið með ÍA, Breiða-
bliki og Val hér á landi.
» Lék með Piteå og Djurg-
årdens í Svíþjóð, sem og Tor-
res á Ítalíu á atvinnumannsferli
sínum.
» Á að baki 117 A-landsleiki og
er fjórða leikhjahæsta á eftir
Söru Björk Gunnarsdóttur,
Katrínu Jónsdóttur og Mar-
gréti Láru Viðarsdóttur.
Fjórða Hallbera Guðný
Gísladóttir lék sinn fyrsta
A-landsleik fyrir Ísland
gegn Póllandi á
Algerve-mótinu 2008.
54 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL:
Krasnodar – Rennes ................................ 1:0
H-RIÐILL:
Istanbul Basaksehir – RB Leipzig ......... 3:4
Fleiri leikir voru á dagskrá í keppninni í
gær og lauk eftir að blaðið fór í prentun.
Úrslitin er að finna í umfjöllun á mbl.is.
Noregur
Aalesund – Sandefjord ........................... 1:2
Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn
með Aalesund.
Emil Pálsson lék allan leikinn með
Sandefjord og Viðar Ari Jónsson fyrstu 90
mínúturnar.
Haugesund – Mjöndalen ......................... 1:1
Dagur Dan Þórhallsson var ekki í leik-
mannahópi Mjöndalen.
Start – Bodö/Glimt.................................. 1:1
Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í
leikmannahópi Start. Jóhannes Harðarson
þjálfar liðið.
Alfons Sampsted lék fyrstu 59 mínúturn-
ar fyrir Bodö/Glimt.
Stabæk – Vålerenga................................ 1:1
Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn
og skoraði fyrir Vålerenga. Matthías Vil-
hjálmsson spilaði fyrstu 67 mínúturnar.
Viking – Brann......................................... 2:0
Axel ÓskarAndrésson lék allan leikinn
með Viking en Samúel Kári Friðjónsson
var á varamannabekknum.
Jón Guðni Fjóluson var ekki í leik-
mannahópi Brann.
Staðan:
Molde 26 17 2 7 65:31 53
Vålerenga 27 13 9 5 44:31 48
Rosenborg 26 13 6 7 46:33 45
Kristiansund 26 11 10 5 49:36 43
Odd 25 13 3 9 45:37 42
Viking 27 12 6 9 50:45 42
Stabæk 27 8 11 8 33:38 35
Haugesund 27 10 5 12 34:44 35
Brann 27 8 7 12 36:46 31
Sandefjord 26 9 4 13 29:41 31
Sarpsborg 26 8 5 13 31:36 29
Start 27 6 8 13 32:50 26
Strømsgodset 26 5 9 12 32:49 24
Mjøndalen 27 6 3 18 22:44 21
Aalesund 27 2 5 20 29:77 11
B-deild:
Lilleström – KFUM Ósló......................... 2:0
Tryggvi Hrafn Haraldsson lék fyrstu 78
mínúturnar með Lilleström. Björn Berg-
mann Sigurðarson kom inn á eftir 78 mín-
útur en Arnór Smárason var ekki í leik-
mannahópnum.
Meistaradeild karla
B-RIÐILL:
Aalborg – Barcelona........................... 32:35
Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk
fyrir Barcelona.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Staðan: Barcelona 16 stig, Veszprém 13,
Aalborg 10, Kiel 7, Nantes 4, Motor Zapo-
rozhye 4, Celje 2, Zagreb 0.
Þýskaland
B-deild:
Bietigheim – Grosswallstadt ............. 17:28
Aron Rafn Eðvarðsson varði sjö skot í
marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson
þjálfar liðið.
Frakkland
Dunkerque – Aix ................................. 25:26
Kristján Örn Kristjánsson skoraði fimm
mörk fyrir Aix.
Start náði í stig
gegn meistur-
unum í Bodö/
Glimt í 27. um-
ferð norsku úr-
valsdeildarinnar
í knattspyrnu í
gær. Stigið kem-
ur sér vel fyrir
Start sem er rétt
fyrir ofan fall-
svæðið. Skaga-
maðurinn Jóhannes Harðarson
stýrir Start en Guðmundur Andri
Tryggvason var ekki með vegna
meiðsla. Alfons Sampsted var á sín-
um stað í byrjunarliði Bodö/Glimt
sem tryggði sér meistaratitilinn í
fyrsta skipti í sögu félagsins á dög-
unum. Start er með 26 stig í 13. sæti
af 16 liðum en Start kom upp úr
næstefstu deild í fyrra.
Viðar Örn Kjartansson var eini
Íslendingurinn sem var á skotskón-
um í Noregi í gær. Skoraði fyrir
Vålerenga þegar liðið gerði 1:1-
jafntefli við Stabæk.
Mikilvægt
stig hjá Start
Jóhannes
Harðarson
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í
handknattleik, lék vel þegar Barce-
lona lagði Aalborg að velli 35:32 í
Meistaradeildinni en leikið var í
Álaborg. Stórveldið frá Katalóníu
þurfti að hafa verulega fyrir sigr-
inum því staðan var 31:31 þegar
þrjár mínútur voru eftir. Aron lagði
sitt af mörkum og skoraði fjögur
mörk fyrir Barcelona.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálf-
ari hjá Aalborg, sem stendur sig vel
í keppninni og er í 3. sæti í B-riðl-
inum með 10 stig. Barcelona er í
efsta sæti með 16 stig. kris@mbl.is
Aron lék vel í
Álaborg
Ljósmynd/FC Barcelona
Meistaradeildin Aron er sem fyrr í
stóru hlutverki hjá Barcelona.
Kolbeinn Sigþórsson, landsliðs-
maður Íslands í knattspyrnu og
leikmaður AIK í Svíþjóð, mun yfir-
gefa félagið þegar samningur hans
rennur út eftir tímabilið. Sænska
félagið staðfesti þetta á heimasíðu
sinni í gær en Expressen hafði áður
greint frá þessu. Kolbeinn gekk til
liðs við AIK í mars 2019 og skrifaði
undir þriggja ára samning við fé-
lagið.
„Tími Kolbeins í herbúðum AIK
fór ekki eins og hann, né félagið,
ætlaði sér,“ sagði Henrik Jurelius,
yfirmaður íþróttamála hjá AIK.
Kolbeinn er á
förum frá AIK
Morgunblaðið/Eggert
Svíþjóð Kolbeinn Sigþórsson
verður samningslaus á næstunni.