Morgunblaðið - 03.12.2020, Side 55

Morgunblaðið - 03.12.2020, Side 55
ÍÞRÓTTIR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 Í blaðinu í gær reyndum við hér á Morgunblaðinu að gera lands- leiknum mikilvæga gegn Ung- verjalandi góð skil og ekki síður þeirri góðu niðurstöðu sem fylgdi í kjölfarið. Sjálfsagt hafa einhverjir les- endur blaðsins velt því fyrir sér hvers vegna ekki var leitað við- bragða Berglindar Bjargar Þor- valdsdóttur. Hún skoraði markið mikilvæga en hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu. Mér þykir því eðlilegast að upp- lýsa lesendur um að við fengum ekki að ræða við Berglindi að leiknum loknum. Við fengum þau skilaboð frá KSÍ að ekki væri í boði að ræða við Berglindi né fyrirliða liðsins, Söru Björk Gunnarsdóttur. Ástæðan var sú að þær höfðu þá farið í sjón- varpsviðtal. Tengiliður okkar bauð okkur að ræða við aðra leikmenn, og var hjálplegur við að bjarga því, en þarna virðist vera einhver dreifiregla hjá KSÍ. Leikmenn fari ekki í fleiri en eitt viðtal eftir landsleiki. Mun það einnig hafa verið gert eftir umspilsleikinn hjá körlunum í Búdapest. Við gátum verið með viðbrögð frá Söru á mbl.is og í Morgun- blaðinu vegna þess að komið var á blaðamannafundi með henni þegar fyrir lá að sæti á EM væri í höfn. Dreifireglu sem þessa hef ég ekki rekið mig á áður og botna lítið í henni. Í starfinu er ég í samskiptum við fleira íþrótta- fólk, og fleiri landslið, en knatt- spyrnufólkið. Hjá bæði HSÍ og KKÍ mætir manni það viðmót að starfsmenn reyna að bjarga flestum ef ekki öllum þeim við- tölum sem við óskum eftir. Hvort sem við höfum haft efni á því að fara utan á viðburðinn eða sitj- um heima. Senda jafnvel sjálf viðtöl heim til að auka umfjöllun. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Knattspyrnukonan Clara Sigurðar- dóttir hefur skrifað undir samning við uppeldisfélag sitt ÍBV sem gild- ir út næsta tímabil. Clara, sem er miðjumaður og uppalin í Vest- mannaeyjum, lék með Selfossi á síð- ustu leiktíð en hefur nú snúið aftur heim. Þrátt fyrir að Clara sé aðeins 18 ára hefur hún leikið 65 leiki í efstu deild og skorað í þeim sjö mörk. Þá hefur Clara leikið 35 landsleiki með yngri landsliðum og skorað í þeim sjö mörk. Hún lék alla 16 leiki Selfyssinga í Pepsi Max- deildinni á síðustu leiktíð. Snýr aftur til Vestmannaeyja Skapti Hallgrímsson Eyjar Clara er komin aftur heim til ÍBV eftir stutt stopp á Selfossi. Handknattleikskonurnar Elín Rósa Magnúsdóttir og Þórey Anna Ás- geirsdóttir hafa framlengt samning sinn við Val út tímabilið 2024. Þór- ey gekk til liðs við Val frá Stjörn- unni fyrir þetta tímabil en hún hef- ur verið einn besti leikmaður úrvalsdeildarinnar, Olísdeildar- innar, undanfarin ár. Elín er fædd árið 2002 og var hún í lykilhlut- verki með 3. flokki Vals á síðustu leiktíð. „Frábærar fréttir fyrir fé- lagið og verður gaman að fylgjast með þeim þegar boltinn fer aftur af stað!“ segir í tilkynningu Vals. Morgunblaðið/Eggert Hlíðarendi Þórey Anna verður í herbúðum Vals næstu fjögur árin. Framlengdu á Hlíðarenda FÓTBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Aron Jó- hannsson hefur átt góðu gengi að fagna með sænska liðinu Hammarby undanfarnar vikur og skorað tólf mörk í síðustu fimmtán leikjum í sænsku úrvalsdeildinni. Er hann bú- inn að skora alls tólf mörk í 22 leikj- um á tímabilinu en hann hefur fimm- tán sinnum verið í byrjunarliði á leiktíðinni. „Síðustu mánuðir hafa verið mjög góðir,“ sagði Aron við Morgun- blaðið. „Ég byrjaði árið þokkalega þegar við fórum að keppa í bik- arnum, þá skoraði ég þrjú mörk í þremur leikjum eftir gott undirbún- ingstímabil og var klár í tímabilið en svo fæ ég Covid 2-3 vikum fyrir fyrsta leik hjá okkur. Ég var farinn að vonast til að geta byrjað tímabilið almennilega og byrja þetta strax, en svo fékk ég Covid og það rann úr mér öll orka,“ sagði Aron sem var kominn á völlinn fljótlega eftir að hann jafnaði sig á veikindunum og var í byrjunarliðnu gegn Elfsborg í 2. umferð. Framherjinn fór af velli í hálfleik. Of hratt af stað eftir Covid „Þegar tímabilið byrjaði var ég settur í byrjunarliðið strax í öðrum leiknum sem ég var greinilega ekki tilbúinn í út af Covid. Í kjölfarið lenti ég í meiðslum á fæti eftir að ég var tæklaður, ég fékk takka í ristina. Það hélt mér frá í 2-3 vikur og á 2-3 vikum spilaði liðið 6-7 leiki því það var spilað mjög þétt í byrjun. Það var svo erfitt að koma sér aftur í gang því þetta voru meiðsli á fæti og ég meiddist aftur fljótlega eftir að ég var kominn af stað aftur. Þá missti ég aftur af nokkrum leikjum svo það má segja að ég byrjaði ekki tímabilið almennilega fyrr en í tólfta leik, eitt- hvað svoleiðis. Þá var ég að komast í gang og var að komast í gott leik- form og um leið og ég fór að spila 90 mínútur leik eftir leik þá small þetta allt saman,“ sagði hann. Aron viðurkennir að það hafi verið erfitt að meiðast en hann spilaði afar lítið frá 2015 til 2018 vegna þrálátra meiðsla. „Ég hafði ekki beint áhyggjur af að tímabilið myndi fara í vaskinn en ég viðurkenni að það komu upp hugsanir; á maður að nenna að standa í þessu? Að meiðast alltaf aftur og aftur? Innst inni í hausnum á mér vissi ég samt að ég þurfti bara tvo, þrjá eða fjóra leiki, 90 mínútur, til að komast í alvöru- leikform og þá myndi allt smella og sú varð raunin. Ég hef aldrei efast um getuna hjá mér. Ég hef bara ver- ið óheppinn með meiðslin síðustu ár en alltaf þegar ég er heill hef ég staðið mig vel.“ Sem betur fer gekk þetta upp Eftir gríðarlega erfiða tíma er Ar- on hæstánægður með að vera kom- inn á fulla ferð á ný, spila leiki og skora mörk. Á tímabili íhugaði hann að leggja skóna á hilluna vegna meiðslanna. „Það er erfitt að koma þessu í orð en best af öllu fannst mér bara að geta spilað. Ég er að spila 90 mínútur nánast í hverjum leik. Viku eftir viku og leik eftir leik er ég alltaf klár. Sú tilfinning er æðisleg. Ég hugsaði áður en ég kom til Svíþjóðar hvort ég myndi einhvern tímann ná þessu aftur og fór að efast um að þetta væri möguleiki. Ég hugsaði um að hætta og einbeita mér að ein- hverju öðru eftir gríðarlega erfið ár, en sem betur fer gekk þetta upp sem er frábært og eiginlega bara ólýsan- legt.“ Þrátt fyrir gott gengi Arons fyrir framan mark andstæðinganna hefur tímabilið hjá Hammarby ekki gengið sem skyldi. Liðið er í sjöunda sæti, 16 stigum á eftir Malmö sem hefur þegar tryggt sér sænska meistara- titilinn. „Það hafa verið mikil von- brigði. Við lögðum upp fyrir tímabil- ið að berjast á toppnum. Við áttum von á að Malmö myndi vera þarna og kannski Djurgården og síðan við sem myndum berjast um efstu sæt- in. Núna erum við í sjöunda sæti og ekki lengur möguleiki að komast í Evrópusæti. Það er í rauninni lítið hægt að bæta við það, þetta eru búin að vera vonbrigði.“ Ætlar í sterkari deild Aron mun róa á önnur mið eftir tímabilið og semja við annað félag í janúar. Ekki er komið í ljós hvert framherjinn fer, en hann hefur verið orðaður við félög bæði í Þýskalandi og í Bandaríkjunum. Hann lék áður með Werder Bremen í þýsku 1. deildinni og þekkir það því vel að spila í sterkari deild en þeirri sænsku. „Ég veit ekki hvert ég mun fara en staðan er orðin þannig að ég mun fara í janúar og róa á ný mið. Ég fer inn í gluggann og bíð eftir einhverju spennandi,“ sagði Aron. Hann viðurkennir að draumurinn hafi verið að stoppa stutt við í Sví- þjóð og fara síðan í stærri deild. „Það var kannski ekki planið en það var draumurinn; að taka eitt skref til baka til að taka tvö áfram. Ég var í þriðju sterkustu deild í heimi og ég veit að ég get spilað í sterkustu deildunum. Ég hef sannað það og ég hef líka sannað að ég get komið mér í leikform aftur og ég er búinn að spila fullt af leikjum, skora mörk og standa mig vel. Þetta eru spennandi tímar og ég hlakka til að sjá hvað gerist núna.“ Í myndinni hjá Bandaríkjunum Aron kaus á sínum tíma að leika með bandaríska landsliðinu frekar en því íslenska. Hann er fæddur í Alabama í Bandaríkjunum en fékk sitt knattspyrnuuppeldi fyrst og fremst með Fjölni og lék með liðinu áður en hann hélt út til Árósa og samdi við AGF. Eftir gott gengi, fyrst með AGF og síðan AZ Alk- maar í Hollandi, var hann kallaður upp í bandaríska landsliðið og lék með því á HM í Brasilíu 2014. Alls hefur hann leikið 19 landsleiki fyrir Bandaríkin og skorað í þeim fjögur mörk. Síðasti landsleikurinn var árið 2015, en Aron er kominn aftur í myndina hjá bandaríska liðinu og landsliðsþjálfaranum Gregg Ber- halter. „Ég talaði við þjálfarann fyrir um það bil mánuði. Við áttum gott spjall um framtíðina og hvað er að gerast. Hann var ánægður með að ég væri kominn í gott leikform aftur. Hann veit hvað ég get og hann var spennt- ur fyrir mér. Hann talaði vel til mín og gaf það í skyn að ég fengi að sýna aftur hvað í mér býr með landslið- inu. Það var ánægjulegt fyrir mig að heyra að hann hefði áhuga á að hafa mig í hópnum,“ sagði Aron. Íhugaði að hætta eftir gríðarlega erfið ár Ljósmynd/Hammarby Mörk Framherjinn Aron Jóhannsson er byrjaður að skora á nýjan leik eftir að þrálát meiðsli ógnuðu ferli hans.  Aron hefur spilað vel í Svíþjóð  Fékk kórónuveiruna  Ætlar að færa sig í janúar Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, við- urkennir í viðtali sem birtist á heimasíðu Burn- ley að síðustu mánuðir hafi ver- ið erfiðir. Jóhann hefur verið mikið frá vegna meiðsla síðasta eina og hálfa árið. „Þetta hefur verið afskaplega erf- itt. Ekki síst þegar þú ert að glíma við þessi litlu atriði sem halda aftur af þér. Það er erfitt að meiðast aftur þegar þú ert nýbúinn að jafna þig. Það hefur verið sagan hjá mér, en ég verð að sætta mig við það, leggja mikið á mig í ræktinni og á vellinum og vera í eins góðu standi og ég get,“ sagði Jóhann. Burnley hefur farið afar illa af stað í ensku úrvalsdeildinni á leiktíð- inni og er í nítjánda og næstneðsta sæti með fimm stig og einn sigur. „Byrjunin hefur ekki verið góð og við vitum það, en við vitum líka hvað þarf til að halda okkur uppi,“ sagði Jóhann Berg. Kantmaðurinn hefur leikið 100 úr- valsdeildarleiki með Burnley en á þessari leiktíð og þeirri síðustu hef- ur hann aðeins náð 16 leikjum enn sem komið er. sport@mbl.is Jóhann Berg í mótvindi í Burnley Jóhann Berg Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.