Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
mánudaga - sunnudaga 12-18
UMAGE EOS SKERMUR Svartur.
Ø45 cm. 24.995 kr.NÚ 12.498 kr.
Ath. perustæði selt sér.
VENICE GÓLFLAMPImeð hvítum skerm.
H162 cm. 29.900 kr. NÚ 22.425 kr.
RHEA BORÐLAMPI
Glært gler, gylltur.
12.995 kr. NÚ 9.746 kr.
VENUS LOFTLJÓS Svart. Ø30 cm.
12.995 kr. NÚ 9.746 kr.
SPAraðu 7.475
Nú22.425
SPAraðu 12.497
Nú12.498
25-40%
Sparadu-
af öllum ljósum
3.-21. desember
25% af perum
Sparadu-
20% af kertum
Sparadu-
30% af jólavörum
Sparadu-
SPAraðu 3.249
Nú9.746
SPAraðu 3.249
Nú9.746
3.-6. DESEMBER
Íslenski dansflokkurinn hefur verið tilnefndur til
norsku menningarverðlaunanna Subjektprisen fyrir ár-
ið 2020. Subjektprisen er ein virtasta hátíð menningar-
ársins í Noregi og gefst almenningi kostur á að velja
þau verk sem þykja skara fram úr á árinu. DuEls, sam-
starfsverkefni Íslenska dansflokksins og norska dans-
flokksins Nagelhus Schia Productions, er tilnefnt sem
sviðslistaverk ársins eða Stage Production of the Year
eins og það heitir á ensku. DuEls er eftir Ernu Ómars-
dóttur og Damien Jalet og var frumsýnt á hinu sögu-
fræga Vigeland-safni Óslóar í febrúar 2020.
Íslenski dansflokkurinn tilnefndur
til sviðslistaverðlauna í Noregi
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 338. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson hefur verið
sjóðheitur síðustu vikur með Hammarby í Svíþjóð og
skorað 12 mörk í síðustu 15 leikjum. Er hann kominn
almennilega af stað á nýjan leik eftir þrálát og erfið
meiðsli sem ógnuðu ferli hans. Tímabilið byrjaði hins
vegar ekki vel því að Aron fékk kórónuveiruna og
meiddist enn og aftur í kjölfarið. Aron ætlar að róa á
önnur mið í janúar og hefur verið orðaður við félög í
Þýskalandi og Bandaríkjunum. Þá er hann aftur kominn
inn í myndina hjá bandaríska landsliðinu. »55
Aron íhugaði að hætta í knatt-
spyrnu eftir þrálát og erfið meiðsli
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókin Hetjur norðurslóða, sögur
grænlenskra veiðimanna af hundum
sínum, sem Ragnar Axelsson ljós-
myndari hefur unnið að í máli og
myndum í yfir 30 ár og af miklum
þunga undanfarin fjögur ár, er kom-
in út hjá Qerndu-forlaginu. Þýska út-
gáfufyrirtækið Kehrer gefur bókina
út um allan heim á ensku undir heit-
inu Artic Heroes og er hún farin í
dreifingu í Evrópu en er væntanleg í
Bandaríkjunum í janúar.
Grænlenskt samfélag hefur tekið
miklum breytingum undanfarna
rúma þrjá áratugi og Ragnar eða
RAX eins og hann er kallaður hefur
ekki aðeins fylgst náið með straum-
hvörfunum heldur skrásett söguna.
„Hetjudáðir grænlensku sleða-
hundanna eru með þeim stórkostleg-
ustu sem þekkjast,“ segir hann og
vísar til þess að þeir hafi barist í
ótrúlegasta veðri um aldir og á ögur-
stundu komið húsbændum sínum í
öruggt skjól, þegar öll sund virtust
vera lokuð. Saga þeirra og veiði-
mannanna sé merkileg heimild um líf
sem sé á hverfanda hveli, hafi verið á
undanhaldi undanfarna áratugi og
ljóst sé að líf grænlenskra veiði-
manna muni breytast enn frekar í
náinni framtíð. „Fyrir áratug voru
um 30.000 sleðahundar á Grænlandi
en nú eru þeir um 12.000. Með bók-
inni sýni ég raunverulegt líf, eins og
það er á litlum hluta jarðarinnar, lítið
púsl í stórri mynd.“
Mikilvægar heimildir
RAX leggur áherslu á að það sé
vísindamanna að útskýra loftslags-
breytingar. Jöklarnir hafi minnkað
og stækkað áður en hann hafi gengið
á umræddum bráðnandi blaðsíðum.
„Fólk þarf að upplifa hlutina til þess
að skilja þá og þetta er mín upp-
lifun.“
Bókin er prentuð á Ítalíu. Hún er
tæplega 300 blaðsíður í stóru broti
með um 140 stórum ljósmyndum.
Einar Geir Ingvarsson hannaði verk-
ið. RAX segir að hönnunin sé eins og
kvikmynd og lesandinn sé hluti
ferðalagsins sem hún sýnir. Samfara
því að hafísinn bráðni og jöklarnir
hopi fækki veiðimönnum og hundum
og með bókinni sé hann í raun að
bjarga verðmætum heimildum fyrir
nútíðina og ókomnar kynslóðir
heimsins. „Ég hef fylgst með þessu
lífi við erfiðustu aðstæður sem hægt
er að hugsa sér og kem því áfram
vegna þess að það er svo mikilvægt
að heimildirnar glatist ekki, að þetta
fallega líf, þó erfitt sé, gleymist ekki.
Vonin verður alltaf að lifa. Ég tel
reyndar óhjákvæmilegt að öll spjót
muni beinast að norðurslóðum, þar
með talið Íslandi, á komandi árum.“
Kynningarmyndband var birt á
samfélagsmiðlum og segir RAX að í
kjölfarið hafi bókin vakið mjög mikla
athygli erlendis og stærstu blöð og
tímrit heims hafi óskað eftir köflum
til birtingar. „Ég hef líka fengið
mjög hlýjar kveðjur héðan frá Ís-
landi og mér þykir mjög vænt um
þær, en áhuginn erlendis er miklu
meiri en ég gerði mér vonir um og
hann á eftir að aukast. Það sýnir best
hve mikilvægt er að skrásetja sög-
una með myndum og sú staðreynd
verður aldrei of oft áréttuð.“
Hetjudáðir hunda og
fólks á norðurslóðum
Ljósmynd/RAX
Hetjur norðurslóða Sleðahundar á Grænlandi elta spor ísbjarna.
Áratugavinna Ragnars Axelssonar ljósmyndara í bók
Stoltir Einar Geir Ingvarsson með bókina og Ragnar Axelsson – RAX.