Skólavarðan


Skólavarðan - 2018, Blaðsíða 34

Skólavarðan - 2018, Blaðsíða 34
34 SKÓLAVARÐAN VOR 2018 Akureyrarbær þarf að greiða konu sem starfaði sem íþróttakennari við Lundarskóla skaðabætur eftir að hún varð fyrir radd­ skaða þegar hún sinnti kennslu árið 2011. Héraðsdómur Norðurlands eystra felldi dóm í málinu í byrjun apríl og er niður­ staða dómsins sú að starfsaðstæður í téðu íþróttahúsi hafi verið ófullnægjandi. Dómur­ inn viðurkennir skaðabótaskyldu bæjarins gagnvart íþróttakennaranum. Málsatvikum er þannig lýst í dómnum að íþróttakennarinn, sem er kona, hafi átt að baki 20 ára feril sem íþróttakennari en atburðir sem leiddu til raddmissis áttu sér stað 5. október árið 2011. Þann dag var konan við kennslu í íþróttahúsinu en dagana á undan hafði verið unnið að framkvæmdum í íþróttahúsinu, gólf hafi verið rifið upp og nýtt lagt. Fram kom í vitnisburði íþróttakennarans fyrir dómi að megn lyktarmengun hafi verið í húsinu og einnig mikið ryk og hávaði. Á þessum degi, segir íþróttakennarinn, rödd sína hafa brostið. Hún hafi verið að útskýra leik fyrir nemendum sínum og hafi annar íþrótta­ kennari þurft að aðstoða hana við að ljúka útskýringunni. Hún hafi reynt að hlífa röddinni og harka af sér næstu vikurnar en síðan leitað læknis í byrjun nóvember. Í dómnum kemur fram að við hafi tekið langt veikindaleyfi og hefur kennarinn ekki snúið aftur til íþróttakennslu en hafi þó sinnt ýmsum störfum innan skólans eftir þetta. Íþróttakennarinn hefur verið í radd­ meðferð síðan röddin brast en hún hefur ekki skilað viðunandi árangri, röddin er þróttlítil og hefur ekki náð fullnægjandi styrk. Í dómnum kemur fram að ekki sé um það deilt að kennsla í íþróttum reyni mjög á rödd kennara. Bæturnar til háborinnar skammar Dr. Valdís Jónsdóttir, doktor í raddmeinum, segir um tímamótadóm að ræða og að hann sé fordæmisgefandi. „Þarna er röddin loks viðurkennd sem atvinnutæki sem atvinnu­ rekandi ber fulla ábyrgð á. Bæturnar voru hins vegar til háborinnar skammar eða 160.000 kr. fyrir óafturkræfan raddskaða,“ skrifar Valdís í grein um málið sem var birt í Fréttablaðinu. Valdís segir að raddveilur eigi ekki að vera sjálfsagður hlutur. Hún segir bágborna raddheilsu kennara áhyggjuefni um allan heim. „Það er löngu kominn tími á að röddin flokkist undir lýðheilsu og raddveilur sem lýðheilsuvandamál. Nú er bara að sjá hvort fagfélög og fleiri, t.d. ráðamenn, hafi vit á að nýta sér þennan dóm. Það er ósvinna að sá sem skaðar rödd sína í starfi þurfi að sitja uppi með skaðann og rúmlega það,“ segir Valdís. Óviðunandi starfsaðstæður Akureyrarbær krafðist sýknu í málinu og byggðist vörnin einkum á því að ekki væri sannað að bærinn ætti sök á raddmissi kon­ unnar. Í því sambandi var einnig bent á að viðkomandi hefði starfað við íþróttakennslu í 20 ár og raddleysi væri „algengur fylgifisk­ ur kennslu, sérstaklega íþróttakennslu,“ eins og segir orðrétt í dómnum. Héraðsdómur féllst ekki á þetta og telur ekki vafa á að bærinn beri ábyrgð á því að aðstæður til kennslu í íþróttahúsinu hafi ekki verið viðunandi. Bænum hafi ekki tekist að sýna fram á að aðstæður til kennslu í íþróttahúsinu hafið verið samkvæmt lágmarkskröfum sem eru gerðar. Því var skaðabótaskylda Akureyrarbæjar viður­ kennd, og íþróttakennaranum dæmdar 161 þúsund krónur í skaðabætur og jafnframt var bænum gert að greiða málskostnað að upphæð 2,1 milljón króna. Röddin loks viðurkennd sem atvinnutæki Íþróttakennara hafa verið dæmdar bætur vegna raddmissis. Dómurinn markar tímamót og er fordæmisgefandi að mati dr. Valdísar Jónsdóttur, doktors í raddmeinum. Það er ósvinna að sá sem skaðar rödd sína í starfi þurfi að sitja uppi með skaðann og rúmlega það. „Þarna er röddin loks viðurkennd sem atvinnutæki sem atvinnurekandi ber fulla ábyrgð á,“ segir Dr. Valdís Jónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.