Skólavarðan


Skólavarðan - 2018, Blaðsíða 40

Skólavarðan - 2018, Blaðsíða 40
40 SKÓLAVARÐAN VOR 2018 Eins og margar aðrar þjóðir hafa Danir upplifað stríð. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Hæst ber tvær heimsstyrjaldir, 1864 stríðið, Kalda stríðið, stríð við Svía og Englendinga og fleira mætti nefna. Orðið sjálft fól í sér ákveðinn óhugnað en notkunin hefur breyst í þessum heimshluta. Á síðari tímum eru það einkum þeir sem selja vöru og þjónustu sem nota þetta orð til að koma sínum boðskap á framfæri: verðstríð. Þess konar stríð er, ef marka má auglýsingar, eilíf barátta þar sem kúnninn á alltaf sigurinn vísan. Sigurinn felst í því, svo dæmi sé tekið, að krækja í ódýrasta farsímann þegar verðstríðið geisar, þrjú smjörstykki á verði tveggja o.s.frv. Í dönskum fjölmiðlum hefur undan­ farin ár mikið verið fjallað um það sem kallað er kjötbollustríðið. Þótt kjötbollur séu stundum kallaðar handsprengjur á þetta stríð ekkert skylt við eiginlegt vopnaskak. Það hefur hins vegar orðið að samheiti yfir langar, og á stundum tilfinn­ ingaþrungnar, deilur um hvaða mat eigi að bera á borð fyrir börn í dönskum leikskól­ um. Kjötbollustríðið snýst um svínakjöt. Undirstöðufæða um aldaraðir Ef spurt er í könnunum hvað fólki detti í hug þegar minnst er á danskan mat nefna flestir purusteik, pylsur, kjötbollur, lifrarkæfu og svo kannski „smørrebrød“ og rauðsprettu. Það er ekki tilviljun að í fjórum efstu sætunum eru réttir sem að mestu eða öllu leyti samanstanda af svínakjöti. Engin þjóð í Evrópu hesthúsar jafnmikið svína­ kjöt og Danir og það er ekki nýtilkomið. Sagnfræðingurinn Else Marie­Boyhus, sem er einn helsti fræðimaður Dana hvað varðar sögu danskra matarsiða og fæðuvals, segir í bók sinni „Grisen – en køkkenhistorie“ að svínakjötið sé eins konar þjóðartákn Dana. Svínin hafi öldum saman verið undirstöðufæða dönsku þjóðarinnar og séu það enn. Fyrir svo sem tvö hundruð árum hafi nánast á hverjum einasta bóndabæ í landinu verið alin svín og kjötið haft til heimilisnota og sölu í nágrenninu. 14 milljónir á fæti Samkvæmt tölum frá danska landbún­ aðarráðuneytinu eru nú um það bil 14 milljónir grísa í landinu, en árið 1950 voru danskir grísir um það bil 4 milljónir. Til samanburðar má nefna að í Svíþjóð, sem er langtum fjölmennara land, eru tæplega 2 milljónir grísa á fæti. Þrátt fyrir að Danir borði mikið svínakjöt fer stór hluti kjötsins til annarra landa og útflutningurinn skiptir miklu máli í dönskum þjóðarbúskap. Þótt samkeppni við svínakjötið hafi aukist til muna á síðustu áratugum (ekki síst kjúklingakjöt) heldur svínakjötið alltaf sínum hlut, enda hafa samtök svínabænda áratugum saman auglýst mikið. Árið 1957 hófu þeir mikla auglýsingaherferð „Gris på gaflen“ sem varð til þess að salan jókst til muna og síðan hafa þeir reglulega minnt á sig, gefið út matreiðslubækur, auglýst í blöðum o.s.frv. Mikil fjölgun múslima Árið 1980 voru tæplega 30 þúsund múslimar í Danmörku. Í dag eru þeir um það bil 270 þúsund. Þetta er mikil fjölgun og þýðir að múslimar eru um það bil 4.7 prósent íbúa landsins. Margir Danir standa (samkvæmt könnunum) í þeirri meiningu að múslimarnir séu miklu fleiri en raunin er, en það stafar líklega af því umræðan um þá hefur verið fyrirferðarmikil um árabil. Kjötbollustríð geisar í dönsku skólakerfi Á að bjóða upp á svínakjöt í skólum? Þessi spurning hefur mikið verið rædd í Dan- mörku og vegast á tvö sjónarmið; tillitsemi við múslima og gyðinga sem ekki borða svínakjöt og svo sú staðreynd að svínakjöt hefur um aldir verið einn þjóðarétta Dana og jafnvel talið eins konar þjóðartákn. Borgþór Arngrímsson kynnti sér málið. Í júlí árið 2013 greindu danskir fjölmiðlar frá því að í leikskólum í sveitarfélaginu Ishøj, fyrir vestan Kaupmannahöfn, yrði framvegis ekki boðið upp á rétti sem innihéldu svínakjöt. Þessar fréttir vöktu mikla athygli og í kjölfarið hófust miklar umræður og deilur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.