Skólavarðan - 2018, Page 52
52 SKÓLAVARÐAN VOR 2018
Langar þig að efla þekkingu
þína og færni varðandi
náttúrufræðimenntun? Við
Menntavísindasvið HÍ verður
í haust boðið upp á fyrsta
námskeiðið í röð sex 5 eininga
námskeiða fyrir starfandi
grunnskólakennara, í náttúru
fræðimenntun. Námskeiðin
eru á meistarastigi sem stefnt
er að unnt sé að ljúka með
annað hvort 15 eða 30 eininga
viðbótardiplómu í náttúrufræðimenntun.
Möguleiki er einnig að taka einstök nám
skeið. Námskeiðin geta nýst sem valeiningar
í meistaranámi fyrir þá sem það kjósa. Nám
skeiðin verða kennd í staðnámi í Reykjavík en
kennarar af landsbyggðinni geta tekið námið
í fjarnámi.
Mikilvæg starfsþróun
Námið er hugsað fyrir alla
sem koma að eða hafa áhuga
á náttúrufræðimenntun í
grunnskóla hvort sem er á
yngsta, mið eða unglingastigi.
Leitast verður við að námið eigi
sér stað í lærdómssamfélagi
kennara á sama skólastigi.
Þátttakendur vinna verkefni
er tengjast aldurshópi að eigin
vali, og eru ýmist einstaklings,
para eða hópverkefni. Námið er skipulagt
með skýrum tengslum við daglegt starf
kennara og tengt raunverulegum viðfangsefn
um starfsins. Þannig felur námið í sér ný
og spennandi tækifæri til að vinna með
öðrum grunnskólakennurum og kennurum á
Menntavísindasviði.
Við mótun námskeiða og samsetningu
námsins var stuðst við svör kennara í
grunnskólum um á hvaða sviði náttúrufræði
menntunar þeir vildu auka þekkingu sína
og færni. Því verður fjallað um hvernig beita
megi ólíkum nálgunum og vinnubrögðum í
kennslu og þá sérstaklega verklegri kennslu
og nýtingu nánasta umhverfis í daglegu
skólastarfi. Einnig fá kennarar tækifæri til að
dýpka þekkingu sína og skilning á völdum
efnisþáttum náttúrugreina.
Markmið og hæfniviðmið
Markmið námsins er að efla starfsþróun
grunnskólakennara á sviði náttúrufræði
kennslu og styðja þá í að vera leiðandi í
náttúrufræðimenntun í sínum skóla.
Í lok námsins ættu þátttakendur að geta:
• skipulagt verkleg viðfangsefni sem hluta
Náttúrufræðimenntun – nám
fyrir grunnskólakennara
Kristín Norðdahl
dósent við Menntavís-
indasvið HÍ.