Skólavarðan


Skólavarðan - 2017, Page 28

Skólavarðan - 2017, Page 28
FINNSKA LEIðIN KOMIN ÚT Á ÍSLENSKU Bók dr. Pasi Sahlberg um leiðina hefur vakið athygli um heim allan. Félag grunnskólakennara hefur látið þýða og gefa út bókina „Finnska leiðin 2.0. Hvað getur umheimurinn lært af breytingum í finnska skólakerfinu?“ eftir finnska fræðimannin dr. Pasi Sahlberg. „Hvarvetna í heiminum er mönnum orðið ljóst að skólarnir, eins og þeir eru nú á dögum, munu ekki geta veitt nemendum tækifæri til að læra það sem verður nauðsynlegt að kunna í framtíðinni. Alls staðar í heiminum ríkir þörf fyrir betri kennslu og nám og skilvirkari menntun á jafnréttisgrundvelli,“ skrifar Pasi Sahlberg í inngangi Finnsku leiðarinnar. Það má segja að megininn- tak Finnsku leiðarinnar sé að umbætur á skólakerfum snúist um að skapa ungmennum góðar aðstæður til að verða áhugasamir námsmenn, ánægðir einstaklingar og hugmyndaríkir borgarar. „Talsmenn alþjóðlegu umbótastefnunnar í menntun (sem Sahlberg hefur gefið hið ágæta nafn GERM, eða sýkill) gætu fullyrt að markmið þeirra væri einmitt þetta en starfshætt- ir sem þeir hafa innleitt í skólana hafa að mestu leyti haft öfug áhrif. Í hverju landinu á fætur öðru hefur stöðlunarstefnan þrengt námskrárnar, dregið úr vinnugleði, minnkað metnað, aukið kvíða og hamlað árangri jafnt nemenda sem kennara,“ segir Ken Robinson í eftirmála bókarinnar. Félögum í KÍ býðst að kaupa bókina á sérstökum kjör- um í gegnum Mínar síðar. Bókin fæst líka í bókabúðum. Finnska leiðin hefur verið þýdd á fjölda tungumála og gefin út víða um heim. Íslenska þýðingu annaðist Sigrún Á. Eiríksdóttir. Varmás - Skólavörur Markholt 2, Mosfellsbæ sími 566-8144 Nýtt á Íslandi Perlur sem ekki þarf að strauja, einungis sprauta vatni yfir og perlurnar límast saman.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.