Skólavarðan - 2017, Qupperneq 47
VOR 2017 47
Kennarasambands Íslands, Heim-
ilis og skóla og Skólameistara-
félags Íslands. Þessir aðilar mynd-
uðu samstarfsteymi sem veitti
ráðuneyti og Evrópumiðstöðinni
ýmsa aðstoð við undirbúning og
framkvæmd.
Úttektin fór fram frá hausti
2015 til ársbyrjunar 2017 og snerist um
að kanna framkvæmd stefnu íslenskra
stjórnvalda á sviði menntunar án aðgrein-
ingar sem náði til leikskóla, grunnskóla
og framhaldsskóla, stofnana sem sjá um
fjárveitingar til málaflokksins og allra aðila
skólastarfs: nemenda, foreldra,
starfsfólks skóla, skóla- og
stoðþjónustu, rekstraraðila,
kennarasamtakanna, háskóla sem
mennta kennara og ráðuneyta.
Í upphafi fór fram gagnrýnið
sjálfsmat samstarfsaðila um
úttektina á stöðu menntunar án
aðgreiningar og var afrakstur þess að mótuð
voru sjö áherslusvið, og á grundvelli þeirra
voru skilgreind viðmið og vísbendingar
sem lýsa umbótamálum í skólakerfinu
sem vinna þurfi að. Gagnasöfnun Evrópu-
miðstöðvarinnar vegna úttektarinnar og
greining byggði á þessum viðmiðum og
vísbendingum, og var byggt á þríþættum
gögnum. Í fyrsta lagi upplýsingum um stöðu
innleiðingar menntastefnu um skóla án
aðgreiningar í skólakerfinu með samanburði
við önnur lönd, í öðru lagi vettvangsathug-
unum í einstökum landshlutum með rýni-
hópum, skólaheimsóknum og viðtölum og
í þriðja lagi viðhorfskönnunum sem lagðar
voru fyrir foreldra og starfsfólk skóla.
Styrkleikar og vankantar
Greining Evrópumiðstöðvar á gögnunum
leiddi í ljós ýmsa vankanta á framkvæmd
stefnu um menntun án aðgreiningar í
skólakerfinu en líka styrkleika sem mikilvægt
er að nýta í umbótaferli.
Í lokaskýrslunni eru niðurstöðurnar
settar fram í sjö meginköflum og fjallað
um hvert þeirra sjö viðmiða og flokka
vísbendinga sem lagðar voru til grundvallar
í úttektinni og sem lýsa umbótamálum í
skólakerfinu sem vinna þurfi að.
Styrkleikar koma meðal annars fram í
þeirri afstöðu að gildandi löggjöf og mennta-
stefna myndi sterkan grunn og feli í sér
stuðning við markmið og áherslur skóla-
kerfis án aðgreiningar sem séu í samræmi
við alþjóðasáttmála um réttindi barna og
ungmenna sem Ísland hefur undirgengist.
Samstaða er um þessi markmið og áherslur
meðal flestra þeirra sem sinna menntamálum
á öllum stigum skólakerfisins, og að mikil-
vægt sé að vinna að menntun án aðgreiningar
til að auka velferð í samfélaginu.
Einnig er almenn samstaða um
mikilvægi þess að skólar hafi svigrúm til að
innleiða nýjungar og þróa skólastarfið og
er fagleg starfsþróun starfsfólks skóla talin
vera mikilvægasta lyftistöngin til að auka
gæði menntunar án aðgreiningar í íslensku
skólakerfi.
Varðandi vankanta á framkvæmd
Aðalheiður
Steingrímsdóttir
varaformaður KÍ
Mikilvægt er að fylgja
niðurstöðum úttekt-
arinnar vel eftir með
víðtæku samstarfi.
Stýrihópurinn sem
menntamálaráðuneytið
hefur lagt til að koma á
fót gefur fyrirheit um það.