Skólavarðan - 2017, Side 52
52 VOR 2017
Eitthvað sem fjölskyldan getur
sameinast um
Aðalheiður var næst spurð um það hvað
það væri sem heillaði hana svona mikið
við Suzukiaðferðina. „Ætli það sé ekki
margþætt hugmyndafræðin sem liggur
að baki. Grunnhugmynd Suzukis um að
allir geti lært, allir hafi hæfileika er mjög
mikilvæg. Hræðilegar aðstæður eftir síðari
styrjöldina þegar Japan var í sárum og
fjölskyldurnar sundraðar höfðu áhrif á
hann. Hann fann þarna að tónlistin gat
verið einhvers konar sameiningartákn og
notaði hana til að byggja upp fjölskyldur og
samfélag. Hann vissi að heilbrigð fjöl-
skylda væri grunnur sérhvers samfélags,
tónlistin er bæði tækið sem við notum og
ávöxturinn sem við njótum. Og svo eru
allir velkomnir.“
Aðalheiður leggur mikla áherslu á
einmitt þetta, að tónlistarnám sé bæði fyrir
þá sem ætla að leggja fyrir sig tónlist og
hina sem ætla ekki að gera það: „Það sem
þú lærir í gegnum tónlistina er eitthvað
sem þú tekur með þér hvert sem þú ferð.
Ég held að það hafi verið þetta sem heillaði
mig mest. Ég held líka að á Íslandi í dag sé
mjög mikilvægt að fólk finni eitthvað sem
fjölskyldan getur sameinast um.“
Gæti hugsað sér að kenna til
áttræðs
Auðvitað er Aðalheiður, eftir öll þessi ár,
farin að kenna annarri kynslóð. „Ég kenni
til dæmis dóttur fyrsta Suzukinemandans
míns, hún var ein af fyrstu Suzuki-nem-
endunum hér við skólann og auðvitað er það
góð tilfinning að fólk vilji koma aftur, mjög
góð tilfinning.“
Og Heiða er síst af öllu á þeim buxun-
um að hætta að vera fiðlukennari: „Ég gæti
alveg hugsað mér að kenna hér til áttræðs ef
það mætti,“ segir hún með sínu hlýlega og
fallega brosi.
LÍTIL SAGA AF SUZUKI
Suzuki var alltaf með gríðarlega marga
nemendur og einhvern tíma er hann
mjög hugsi frammi á gangi í tónlistar-
skólanum og samkennari hans gengur
fram á hann og spyr hann hvað hann
sér að gera, hvort hann eigi ekki að
vera að kenna. „Jú, jú, ég er bara að
koma mér á þriggja ára stigið.“
Aðalheiður ásamt nemendum sínum á Svæðistónleikum Nótunnar sem fram fóru í Grafarvogskirkju í mars síðastliðnum.