Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 53
VOR 2017 53
Korputorg | Blikastaðavegi 2 8 | S: 588 1000 | s: 577 6500 | www.takk.is
Takk hreinlæti er með mikið úrval áhalda
og búnaðar til hreingerninga.
Hreinlega allt fyrir þrifin
Tuskur, klútar, vagnar, moppur ofl.
Netsöfnun býður upp á hentugar og
einfaldar fjáröflunarleiðir fyrir
félagasamtök og einstaklinga. Fjölbreytt
vöruúrval og aðgengilegt viðmót.
Fjáröflun á Netsofnun.is skilar árangri
Korputorg | Blikastaðavegi 2 8 | S: 588 1000 | s: 577 6500 | www.takk.is
Takk hreinlæti er með mikið úrval áhalda
og búnaðar til hreingerninga.
Hreinlega allt fyrir þrifin
Tuskur, klútar, vagnar, moppur ofl.
Netsöfnun býður upp á hentugar og
einfaldar fjáröflunarleiðir fyrir
félagasamtök og einstaklinga. Fjölbreytt
vöruúrval og aðgengilegt viðmót.
Fjáröflun á Netsofnun.is skilar árangri
Tveir íslenskir útgefendur, ásamt útgefend-
um í Færeyjum og á Grænlandi, taka nú þátt
í tilraunaverkefni með dönsku kennslubóka-
útgáfunni Systime. Í aprílbyrjun var haldinn
kynningarfundur og námskeið um verkefnið
sem miðar að því að kanna hvernig þessi
danska útgáfuleið henti í löndunum þremur.
Yfir 50 þúsund kennarar og 450
þúsund nemendur í Danmörku nota nú
kennslubækur í gegnum kerfi Systime
sem hefur verið í þróun síðan 2008. Kerfi
þeirra er gagnagrunnur sem keyrt getur út
kennslugögn hvort heldur sem margmiðlun-
arbækur í vafra, hefðbundnar rafbækur, pdf-
skjöl eða sem prentaðar bækur. Eitt útilokar
ekki annað því efnið er sett upp með alla
möguleikana í huga. Enska heitið yfir þetta
útgáfuform er Single Source Publishing, eða
SSP.
Skólafólk í Danmörku hefur tekið þess-
um möguleika vel. Yfir 65 skólar eru í áskrift
hjá Systime og nota aðeins kennslubækur
þaðan, en fjölmargir skólar kaupa einnig
staka titla af fyrirtækinu.
Systime hefur þegar gefið út 350
kennslubækur með þessum hætti en hátt í
100 titlar til viðbótar eru í vinnslu hjá þeim.
Höfundar á þeirra vegum eru orðnir átta
hundruð.
Von er á fyrstu íslensku kennslubók-
unum sem settar eru upp í Systime-kerfinu
strax í haust hjá Forlaginu og IÐNÚ. „Ef
þessi útgáfuleið hentar íslensku skólafólki
vel gæti það leyst fjölmörg vandamál sem
blasa við kennslubókaútgáfunni á öllum
skólastigum,“ segir Laufey Leifsdóttir,
ritstjóri hjá Forlaginu, sem fylgt hefur
samstarfsverkefninu frá því það fór af stað
árið 2015. „Við erum virkilega spennt að sjá
hvernig viðtökurnar verða þegar bækurnar
fara í loftið. Þetta kerfi hefur marga kosti,
ekki síst að það verndar höfundarrétt náms-
efnisins og gerir okkur kleift að uppfæra
og endurraða efninu og sérsníða það fyrir
mismunandi notkun. En þessi leið gerir líka
meiri kröfur til bæði útgefenda og höfunda.
Það er bara ein leið til að komast að því
hvernig þetta virkar hér á landi og það er að
prófa.“
Nánari upplýsingar um kerfi Systime
má finna á https://systime.dk.
NÝ LEIð Í KENNSLU-
BóKAÚTGÁFU
Prentaðar bækur, rafbækur eða margmiðlunarbækur úr sama gagnagrunni.
Þátttakendur á
námskeiði Systime
í Norræna húsinu í
aprílbyrjun.