Skólavarðan - 2017, Síða 55
Nú berast enn á ný fréttir af
hagræðingu og sparnaði innan
framhaldsskólans. Enn er sungið
gamla stefið um sparnað og aðhald
og þannig hoggið í grunnstoðir
samfélagsins. Framhaldsskólinn
hefur búið við viðvarandi fjársvelti
í gegnum góðæri og kreppur. Það
virðist sama hvað fiskast í íslensku
hagkerfi, menntun þjóðarinnar
má alltaf sitja á hakanum. Rörsýn
þeirra sem fara fyrir menntamálunum virðist
vera að hugsa í kjörtímabilum og aldrei fram
yfir næstu kosningar.
Íslendingar verja minna fé en flestar
OECD-þjóðir til framhaldsskólans og þrátt
fyrir það þótti rétt að herða sultarólina enn
frekar á síðasta kjörtímabili með skerðingum
á innihaldi náms innan framhaldsskólanna
og styttingu námstíma til stúd-
entsprófs úr fjórum árum í þrjú.
Sú stytting fól í sér skerðingu sem
auðvitað skilar sér í því að íslensk-
ir stúdentar eru verr undirbúnir
en áður fyrir lífið og fyrir frekara
nám.
Samhliða skerðingunni var
ákveðið að úthýsa nemendum
yfir 25 ára aldri, nemendum sem
margir hverjir standa höllum fæti
félagslega, og eru með brotið bakland og
aðrar aðstæður sem gerðu það að verkum að
þeim tókst ekki að ljúka námi í framhalds-
skóla á settum tíma. Nú getur þessi hópur
ekki gengið lengur að námi í framhaldsskóla
sem vísu og hans bíða einungis fáein og mun
dýrari úrræði vilji hann ganga menntaveginn.
Fögur fyrirheit um baráttu gegn
brottfalli eru ekki pappírsins virði ef engir
fjármunir fylgja þeim. Langflestir sem falla
frá námi í framhaldsskóla glíma við mis-
alvarleg félagsleg vandamál eða búa við
sértæka námsörðugleika. Stuðningur við
þessa nemendur kallar auðvitað á frekari
sérfræðiþjónustu innan framhaldsskólans en
þar þarf að fjölga í þeim teymum sem halda
utan um aðra þætti en námið sjálft.
Og nú þegar ný ríkisstjórn leggur fram
stefnumótun sína fyrir núverandi kjörtímabil
er nákvæmlega ekkert á dagskrá annað en
frekara aðhald og sparnaður.
Hverju mun slíkt skila?
Menntun er nefnilega fjárfesting.
Fjárfesting þjóðar til framtíðar. Bóndinn sem
étur útsæðið sitt verður saddur um stund –
en svangur þegar engin verður uppskeran.
Að PISSA Í SKóINN SINN
Guðríður
Arnardóttir
formaður Félags
framhaldsskóla-
kennara
SORPA býður fræðslu- og vettvangsferðir fyrir nem endur
á öllum aldri. Fræðslan tekur mið af þörfum hópsins og
er boðið upp á mismunandi leiðir.
• Fyrirlestur og vettvangsferðir nemenda í
móttökustöð SORPU í Gufunesi.
• Vettvangsferðir nemenda á endurvinnslustöð.
• Ráðgjöf og fræðsla í skólann fyrir nemendur og
starfsfólk.
Í fræðslunni er lögð áhersla á um hverfis ávinninginn
sem felst í því að draga úr úrgangi og flokka og skila til
endurnýtingar. Hinir ýmsu hlutir geta öðlast framhaldslíf,
í höndum nýrra eigenda eða sem nýjar vörur, ef við
flokkum rétt.
Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is
Nánari upplýsingar um fræðsluna og pantanir, er að finna á sorpa.is
NOTAÐ FÆR NÝTT HLUTVERK
FRÆÐSLA HJÁ SORPU