Vinnan - 01.12.1946, Page 9
/---:----------------------n
AF ALÞJÓÐAVETTVANGI
v__________________________y
Verkalýðssamband Júgóslavíu telur nú y£ir
800.000 meðlimi, og hefur meðlimatalan vaxið á
einu ári um 150.000. Þessi öri vöxtur byggist ein-
göngu á því, að verkalýðnum er ljós sá mikli þátt-
ur, er verkalýðssamtökin hafa átt í kjarabótum
fólksins, endurbyggingu atvinnulífsins og vernd-
un lýðræðisins í landinu.
Uppbygging hinna einstöku félaga er þannig,
að allir á sama vinnustað tilheyra sama félagi, og
síðan mynda öll félög í sömu starfsgrein sitt lands-
samband, sem síðan er meðiimur lieildarsamtak-
anna. Stærstu landssamböndin eru: Samband
járnbrautarverkamanna (meðl. 105.000), land-
búnaðarverkamenn (meðl. 100.000), samband
verkamenn í vefnaði (70.000) og málmiðnaði
(54.000).
Kosning í allar trúnaðarstöður innan' verka-
lýðshreyfingarinnar er fullkomlega lýðræðisleg.
Öll félög í hverri borg hafa sína samstjórn, svar-
andi til fulltrúaráðanna hér, og hvert hinna 6
sameinuðu lýðvelda hefur svo sína yfirstjórn, er
síðan lýtur yfirstjórn heildarsamtakanna. Sú
stjórn er kosin á allsherjar þingi verkalýðssam-
bandsins, er var haldið í fyrsta sinn í janúar 1945,
næsta þing er ákveðið á vori komanda.
Júgóslavneskir verkamenn geta verið hreyknir
af þátttöku sinni í frelsisbaráttu Jrjóðarinnar.
Júgóslavía er að mestu landbúnaðarland. 70%
þjóðarinnar lifir á landbúnaði, en þrátt fyrir það
var forysta frelsisbaráttunnar að mestu í höndum
verkamanna og beindist því grimmdaræði Þjóð-
verja mjög gegn þeim. í borginni Kragoevats,
þar sem aðalhergagnaframleiðsla Júgóslavíu var,
myrtu Þjóðverjarnir á einum og sama degi 7000
manns, nær eingöngu verkamenn. í borginni
Kralievo myrtu þeir 5000 verkamenn. Svipað var
það og í Preboole-námunum og í Kroatíu, Jrar
sem bæði Þjóðverjar og ítalir unnu hermdarverk-
in. I einum fangabúðum, Jasnavats, voru tugir
þúsunda kvaldir til dauða. Og þau eru ekki fá
þorpin þar, sem bókstaflega hvert einasta hús er
jafnað við jörðu, svo að allt verður að reisast frá
grunni.
Verkamönnunum er það ljóst, að þyngstu byrð-
ar endurreisnarinnar hvíla á þeim, og þeir hafa
tekið á verkefninu með ekki minni hetjuskap
en þeir sýndu í frelsisbaráttunni, með þeim ár-
angri, að framleiðsla ýmsra iðngreina hefur þegar
náð fyrirstríðsframleiðslunni.
Fyrir baráttu verkalýðssamtakanna hefur verið
samþykkt ný tryggingarlöggjöf, sem felur í sér
mjög mikilvægar umbætur.
Frh. á bls. 352
inu með erfiðleikum þeim, sem því fylgja fyrir
verkalýðinn og samtök hans.
Barizt skyldi fyrir framhaldi nýsköpunar at-
vinnuveganna eins og skilyrði til lands og sjávar
framast leyfa, en þó einkum lögð áherzla á eflingu
sjávarútvegsins, ekki aðeins til fullnægingar brýn-
ustu hagsmunum hlutasjómanna og vélbátaút-
vegsins, heldur og þjóðarbúskapsins í heild, og að
aflað verði erlendra markaða þar sem þeir fengj-
ust varanlegastir og beztir með íslenzka hagsmuni
í huga en ekkert annað.
Islenzkum Jrjóðarauði, innan lands og utan,
skyldi varið til uppbyggingar atvinnu- og menn-
ingarlífs, en ekki látinn lengur verða hrís og sverð
á land og þjóð í höndum heildsala, húsaokrara og
annars braskaralýðs.
Síðast en ekki sízt gerði 19. þingið sér þess ljósa
grein, að mál þau, er hér hafa verið talin, eru hin
örlagaríkustu fyrir land og þjóð, ekki aðeins sem
brennandi velferðarmál vinnandi fólks, lieldur
einnig og jafnframt sem meginþættir hins mikla
öndvegismáls þjóðarinnar, sjálfstæðisbaráttunnar.
Til þess að hin miklu verkefni verið giftusam-
lega af hendi leyst, verða stéttarsamtök verkalýðs-
ins á hinu byrjaða starfstímabili að efla einhug
sinn og þjóðmálaþekkingu. — Án efa þurfa þau
að beita samtakaafli sínu í ríkara mæli og márk-
vissara til áhrifa á stjórn þjóðarbúsins og beita í
því skyni fullkomnari og breytilegri baráttuað-
ferðum en hingað til. Kemur þá í góðar þarfir,
ekki aðeins samhent og raunhugul forysta, heldur
einnig gagnkvæmur skilningur og gott samstarf
sambandsfélaga og sambandsstjórnar.
VINN AN
315