Vinnan - 01.12.1946, Side 13
rikis og bœja. Ný hraðfrystihús, niðursuðurverk-
smiðjur, fiskimjölsverksmiðjur og lýsisbræðslur
séu reistar en núverandi fiskvinnuslustöðvar jafn-
framt endurbættar og búnar nýtízku vinnutækj-
um.
2. Áfram verði lialdið að kaupa ný fiskiskip eft-
ir þvi sem þörf krefur, og þess sérstaklega gætt að
þau séu útbúin nýjustu og beztu tækjum. Rann-
sakað verði til hlítar hvaða tegund og stærðir
fiskiskipa hæfi bezt framtíðarskipastól íslendinga.
3. Bygging fiskihafna með vönduðum verbúð-
um sé liraðaÍS, svo fiskveiðiflotinn fái sem bezta
aðstöðu til veiða á aðalfiskimiðum landsins og
fiskimönnum séu búin góð og hagkvænr vinnu-
skilyrði.
Þingið leggur ríka áherzlu á að ríkið hefji þeg-
ar byggingu verbúða í aðal-viðleguhöfnum þar
sem aðstaða sjómanna í þessu efni er algjörlega
óviðunandi.
Jafnframt byggi ríkið nauðsynlegar íbúðir fyrir
aðflutt verkafólk við störf í síldarverksmiðjum
og við síldarsöltun í aðal-síldveiðistöðum lands-
ins.
4. Ríkið byggi stórvirka síldarsöltunarstöð
búna fullkomnustu vélum og vinnutækjum. Sölt-
unarstöð þessi verði jafnframt tilrauna og for-
göngu-stofnun, sem geri tilraunir nteð verkunar-
aðferðir og vinni að alhliða framförum í saltsíld-
ariðnaðinum.
Jafnframt verði lagt kapp á að koma upp góð-
um síldarsöltunarstöðvum í öllum fiskiþorpum,
sem vel liggja við síldarmiðum.
5. Allar síldarverksmiðjur landsins verði ríkis-
eða bœjareign og reknar af hinu opinbera. Jafn-
framt sé skipulega unnið að því, að allur meiri-
háttar fiskiðnaður í landinu verði ríkis- eða bæj-
ar-rekinn, eða beint í höndum samvinnusamtaka
sjómanna og útvegsmanna.
6. Byggð verði hið allra fyrsta a. m. k. ein af-
kastamikil nýtízku síldarverksmiðja á Austur- eða
Norðvesturlandi og verði sá staður fyrir valinu,
sem að undangenginni rannsókn telst heppileg-
astur.
7. Byggðar verði tunnuverksmiðjur svo afkasta-
miklar að fullnægi innanlands þörfinni.
8. Landlielgin verði stœkkuð og stefnt að því að
fá viðurkenndan óskoraðan rétt íslendinga yfir
öllu landgrunninu.
Á þingfundi
VINNAN
319