Vinnan - 01.12.1946, Síða 17
verkalýðsfélögin segi upp gildandi síldveiðisamn-
ingum með það fyrir augum, að samræma kjörin
algerlega og hækka kauptryggingu í samræmi við
það sem segir í 1. lið. Samningar um dragnót og
togbátakjör séu endurskoðaðir í því augnamiði,
að ekki verði lætgri kjör við þær veiðar en annan
titveg, og ekki lægri en 40% af brúttó afla.
6. Orlofsfé. Þingið krefst þess af Alþingi, að það
breyti orlofslögunum í það liorf, að sjómenn
njóti sama réttar um orlofsfé og aðrir launþegar.
7. Verbúðir og aðbúnaður sjómanna. Sam-
bandsþingið felur miðstjórn að beita sér fyrir því
að flutt verði á Alþingi lagafrumvarp um ver-
búðir, og kveði það svo á, að allar verbúðir verði
nægilega rúmgóðar, vel hitaðar og búnar nauð-
synlegum hreinlætis- og matreiðslutækjum. Sjó-
mannastofum sé komið á fót í öllum stærri ver-
stöðvum og þar starfræktar sjómannalesstofur.
Verkalýðsfélögin á hverjum stað hafi eftirlit með
framkvæmd væntanlegra laga.
8. Löndun aflans. Komið sé upp vélknúnum
löndunartækjum við allar síldarsöltunarstöðvar
og fiskvinnslustöðvar þar sem mögulegt er.
9. Vöruvöndun. Kappkostað verði að auka
vöruvöndun svo sem unnt er og einungis ábyggi-
legir kunnáttumenn valdir til að hafa á hendi
umsjón með verkun aflans. Matsmenn séu undan-
tekningarlaust ekki í þjónustu aflakaupenda.
10) Um tæknilegar nýjungar í þágu útvegsins.
Að ríkið heiti verðlaunum hverjum þeim, sem
leggur til tæknilegar nýjungar í þágu útvegsins,
svo sem beituskurðarvél, flökunarvél, flatnings-
vél, hausskurðarvél fyrir síld, hentug flutninga-
tæki o. fl. þ. h.
11. Innkaup á nauðsynjum útvegsins. Þingið
skorar á Alþingi að láta ríkið taka að sér innkaup
á nauðsynjum útvegsins (t. d. olíum og veiðarfær-
um) og selji þær á kostnaðarverði.
Guðmunclur Vigfússon,
erindreki Alþýðusam-
bandsins, flytur skýrslu
kjörbréfanefndar.
Með tilliti til þess að nú virðist svo horfa, að
stór skortur verði á veiðarfærum til síldveiða á
næstu síldarvertíð, vill þingið alveg sérstaklega
skora á Alþingi og ríkisstjórn að gera þegar í stað
ráðstafanir til innflutnings á þeim veiðarfærum,
þar eð skortur á slíkum nauðsynjum myndi hafa
hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir alla þjóðar-
heildina.
12. Um beitumál. Að unnið verði að því að
samræma að nokkru milli veiðistöðva beitunotk-
un og beituskurð. Ennfremur verði haft eftirlit
með því að ekki verði notað meira vatn við beitu-
frystingu en nauðsynlegt er, enda verði fullt eftir-
lit með að lögum um beitumat sé framfylgt.“
Eitt lielzta deilumál þingsins, Framsóknarmál-
ið, var aígreitt með eftirfarandi tillögu:
„Undirrituð leggja til, að 19. þing A. S. í. leysi
hina svokölluðu Framsóknardeilu á þennan hátt
að tilskildu samþykki á félagsfundum Framsókn-
ar og Frey ju:
1. Verkakvennafélagið Framsókn og Þvotta-
kvennafélagið Freyja sktdu bæði viðurkennd sem
fullgild sambandsfélög. Framsókn sem félag al-
Sigurður Guðgeirsson, forseti Iðnnemasam- bands Islands, flytur SHÍIfilllS'
þinginu kveðju. :
Hannibal Valdimarsson,
forseti Alþýðusambands ll?;.
Vestfjarða, rœðir skýrslu sambandsstjórnar. ■k Y fe^
VINNAN
323