Vinnan - 01.12.1946, Page 18
mennra verkakvenna, en Freyja sem félag þvotta-
kvenna í Reykjavík. Hvort félagið um sig hefur
samninga við atvinnurekendur í sinni grein, og
skulu félögin í samræmi við það afhenda þá samn-
inga, er þau kunna að hafa fyrir hinn aðilann,
og ef það er nauðsynlegt, segja upp samningum
við atvinnurekendur, til þess að svo megi verða,
þó aðeins eftir því sem uppsagnarákvæði gildandi
samninga heimila.
2. Þær verkakonur, sem í Freyju eru, en vinna
í starfsgreinum Framsóknar, mega vera áfram í
Freyju, og gildir hið sama um þvottakonur þær,
sem í Framsókn eru, en skyldar eru konurnar í
báðurn þesstim félögum að hlíta samþykktum og
samningum varðandi starfsgreinirnar, eins og
þær eru á hverjum tíma í hvoru félaginu um sig
varðandi þær starfsigreinir, er undir hvort félagið
heyra — þó þannig að ekki komi í bága við ofan-
ritað. — Konur, sem hér eftir bætast við í starfs-
greinir umræddra félaga, skulu fara í Freyju, ef
þær stunda vinnu þvottakvenna, en aðrar verka-
konur skulu fara í Framsókn.
3. Félögin hlíti lögum sambandsins.
4. Að uppfylltum framangreindum atriðum
samþykkir þingið að veita Verkakvennafélaginu
Framsókn full réttindi í Alþýðusambandi íslands
og sé deilan milli Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar og Þvottakvennafélagsins Freyju þar með
úr sögunni.
Jón Rafnsson Hannibal Valdimarsson
Gunnar Jóhannsson Elísabet Eiríksdóttir
Sigurrós Sveinsdóttir RagnarGuðleifsson."
— Fleiri ályktanir og tillögur voru samþykktar
og verða hinar helztu þeirra birtar seinna í Vinn-
unni.
Alþýðusambandsþingið lauk störfum sínum
þann 16. nóv. og fór þá fram kosning forseta og
sambandsstj órnar.
Hermann Guðmundsson var endurkjörinn for-
seti sambandsins, Stefán Ögmundsson endurkjör-
inn varaforseti og Björn Bjarnason endurkjörinn
ritari.
Meðstjórnendur úr Reykjavík voru kosnir Jón
Rafnsson, Guðgeir Jónsson, Sigurður Guðnason
qg Kristinn Ág. Eiríksson.
Meðstjórnendur utan af landi voru allir sjálf-
kjörnir og eru Jrað þessir:
Úr Hafnarfirði: Bjarni Erlendsson og Borgþór
Sigfússon.
Úr Austfirðingafjúrðungi: Bjarni Þórðarson og
Inga Jóhannesdóttir.
Úr Norðlendingaffórðungi: Gunnar Jóhanns-
son qg Tryggvi Helgason.
Úr Vestfirðingafjórðungi: Jón Tímóteusson og
Markús Thoroddsen.
Af Suður- og Suðvesturlandi: Sigurður Stefáns-
son og Jóhann Sigmundsson.
Varamenn voru kosnir samhljóða
Norðurland: Páll Kristjánsson, Jóhann Eiríks-
son.
Austfirðir: Jóhannes Stefánsson, Sigurgeir
Stefánsson.
Vesturland: Ingimar Júlíusson, Jóhannes Gísla-
son.
Suð-suðvesturland: Björgvin Þorsteinsson, Páll
Ó. Pálsson.
Því næst flutti Alfred Skar, fulltrúi norska
Verkalýðssambandsins, kveðju fyrir hönd erlendu
fulltrúanna og óskaði Alþýðusambandinu og ís-
lenzkum verkalýð allra heilla í framtíðinni.
Þá tók til máls forseti |)ingsins, Þóroddur Guð-
mundsson, og þakkaði fulltrúum vel unnin störf.
Hinn endurkjörni forseti Alþýðusambandsins
Hermann Guðmundsson, sleit þinginu með ræðu.
Kvað hann meginstefnu sambandsins næsta kjör-
tímabil að bæta kjör hinna vinnandi stétta og efla
einingu þeirra. Flutti liann Norðurlandafulltrú-
unum stutt ávarp qg færði þeim að gjöf frá sam-
bandinu útskorna aska.
Því næst hófst kaffisamsæti og stjórnaði Krist-
inn Ág. Eiríksson því, en áður höfðu þingfull-
trúar setið boð forseta íslands að Bessastöðum og
boð atvinnumálaráðherra, Áka Jakobssonar, að
Hótel Borg.
Ekkert þing Alþýðusambands íslands hefur far-
ið fram með jafnmiklum glæsibrag og Jietta 19.
þing qg má telja gerðir þess hinar lieillavænleg-
ustu.
-K-K-K-K-k-K-K-K-k-K-K-X-K-K-^-K-K-K-K-K
Hagsýn móðir
Ólöf frœnka er í heimsókn og situr með
Sissu litlu í kjöltunni og er að rabba við
hana.
— Ég tek inn lýsi á hverjum degi, seg-
ir Sissa. — Og i hvert skipti, sem ég tek
inn skeið, leggur mamma tíu aura i
sparibaukinn minn.
— En hvað gerir pú svo við alla tíeyr-
ingana? spyrfrœnkan.
— Mamma kaupir lýsi fyrir þá.
324
VINNAN