Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Side 166

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Side 166
1965 — 164 — og síðar verður frá sagt. Hann man alls ekki eftir, þegar lögreglan tók hann í fyrsta sinn þessa nótt laust eftir klukkan 3 við Útibú Lands- bankans við Laugaveg 77, en hún ók honum niður að Hreyfli við Kalk- ofnsveg, en þar sagðist hann mundu fá sér leigubíl heim til sín. Einn lögregluþjónninn segir svo frá í rannsóknarskýrslunni, að honum hafi ekki fundizt maðurinn ölvaður, en vel ferðafær. Þetta gerist eftir klukkan 3, en klukkan 4 um nóttina er I. svo tekinn uppi á Hverfisgötu eftir að hafa kveikt í 4um sinnum, svo augljóst er, að hann hefur farið beina leið frá Hreyfli og að fyrsta húsinu, sem hann kveikti í hjá Trað- arkotssundi, og er því auðvelt að rekja feril hans alla þessa umræddu nótt. Eins og áður er sagt, man I. ekki af afskiptum lögreglunnar af honum fyrir íkveikjuna, en hann telur sig hafa rankað eitthvað við sér í Skuggahverfinu og að hugmynd hafi skotið upp hjá honum að kveikja í einhverju við húshorn, man næst, að hann er kominn að kassaflekum og finnst þá, að hann sé að taka þátt í mótmælaaðgerðum verkalýðs- samtaka um að brenna niður óíbúðarhæf hús, og sagði eins og við sjálf- an sig, „nú læt ég ekki stanza mig“. Hann sá sig í anda borinn um borgina í gullstól fyrir unnin afrek. Hann telur, að þetta hafi verið við fyrsta húsið, en ef svo er, þá er eyða á milli, eða hann slengir öllu saman, því allt í einu sér hann mann, sem stóð í næstu dyrum. Honum brá mjög við og hljóp upp eitthvert sund og, að því er honum fannst, beint í flasið á lögregluþjóninum, sem handtók hann síðar. Þessi minniseyja, sem kemur þarna fram hjá I., hlýtur að hafa gerzt á Smiðjustíg 11, en þar fór S. G-son sem snöggvast út í dyrnar til að vita, hvað um væri að vera, en flýtti sér inn aftur til þess að hringja á slökkviliðið. Ég átti tal við S., og segir hann, eins og kemur fram í rannsóknarskýrslunni, að hann hafi séð mann álengdar, en ekki vissi hann, hvort þessi maður tók eftir honum, er hann kom út í dyrnar. , Hann telur þó, að vel geti svo verið. I fyrsta húsinu í Traðarkotssundi, sem I. kveikti í hjá, mun enginn hafa orðið var við hann og hann senni- lega ekki orðið var við neinn. Eins og kemur fram í rannsóknarskýrsl- unni, þá hljóp 1. alls ekki í flasið á lögregluþjóninum í þetta sinn, held- ur fór hann bak við hús að Hverfisgötu 72 og byrjaði þar að safna og kveikja í rusli. Kom lögreglan þar að honum, og flýði hann undan, klifraði yfir vegg og girðingar, en ekkert minni virðist vera til hjá I. af þessum atburðum. Við handtökuna segist 1. alveg hafa rankað við sér og man nú allt, sem skeði eftir það. I fangageymslunni hafði hann óljósa hugmynd um eina íkveikju, og er það mjög í samræmi við það, sem áður hefur verið sagt. Hann hafði það á tilfinningunni að hafa gert eitthvað hræðilegt af sér, og kom honum þá til hugar, að eina úrræðið væri að svipta sig lífi, og eru tilraunir hans til þess í rann- sóknarskýrslunum. Hér skal svo stuttlega rakinn ferill og atferli I. um- rædda nótt, frá því hann fer af Njarðargötunni um klukkan að ganga
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.