Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Síða 171
— 169 —
1965
um það helming hennar heima hjá sér um kvöldið á ca. 2 tímum. Hann
var þá einn. Að því búnu hélt hann niður í bæ, en þar sem búið var að
loka skemmtistöðum, fór hann heim til eins kunningja síns, sem hann
hitti í bænum, og mun hann hafa verið þar ásamt fleira fólki þar til
kl. að ganga þrjú um nóttina. Þar var haft áfengi um hönd, en hann
segist hafa drukkið mjög lítið. Hann telur ekki, að hann hafi verið
mikið drukkinn, og man vel allt, sem þar fór fram. Hann man, þegar
hann kvaddi húsráðendur og hélt niður stigann, en síðan er allt, sem
gerðist, þurrkað út úr minni hans, og segist hann segja frá, eins og
honum hefur verið sagt. Lögreglan stöðvaði hann við Landsbanka-
útibúið á Laugavegi, víst helzt vegna þess, að henni sýndist hann vera
að fela sig. Síðan ók lögr. með hann niður í miðbæ, en sleppti honum út
við Kalkofnsveg, eftir eigin ósk, þar sem hann vildi taka leigubíl heim
til sín. En í stað þess að fara heim fer hann nú að gera tilraunir til að
kveikja í húsum þarna í nágrenninu. Hann segist svo fyrst muna aðeins
eftir sér, er hann var að hlaða upp kössum fyrir utan húsdyr í Skugga-
sundinu. En hugsun hans var þá víðs fjarri raunveruleikanum. Honum
fannst hann vera að taka þátt í eins konar verkalýðsuppþoti og það
væri kappsmál að brenna niður kofana þarna í hverfinu. Hann upp-
lifði sjálfan sig sem forsprakka og hetju og var að keppa að því að
hljóta aðdáun og virðingu og vera „borinn á gullstóli í mannfjöldanum.“
Hliðstæða atburði þessu telur hann ekki hafa gerzt áður, og hann
kannast heldur ekki við að hafa áður verið gripinn minnisleysi undir
áhrifum áfengis. Hann hefur aldrei heldur fundið til neinnar löngunar
að kveikja í. Ekki segist hann heldur hafa áhuga á stjórnmálum. Hann
er fjarri því að vera róttækur og hefur enga sérstaka samúð með
verkalýðshreyfingunni. Einu sinni áður hefur hann þó gerzt brot-
legur undir áhrifum áfengis, en það var fyrir einu ári, er hann tók
bíl í leyfisleysi og ók honum. Lögreglan tók hann, þegar hann var að
fara út úr bílnum. Ekkert kom fyrir.
Hann minnist þess, að eitt sinn, er hann hafði drukkið eitt glas af
áfengi seint um kvöld og farið síðan heim að sofa, vaknaði hann upp
um nóttina með miklum hita, sem þó var horfinn aftur um morguninn.
f síðasta viðtalinu bætti hann svo við þeirri upplýsingu, að þegar hann
var í sumar á skipaferðalagi í sumarleyfinu, las hann einhvern morð-
reyfara. Þessi saga hafði þau áhrif á hann, að hann var um tíma hrædd-
ur um, að í skipinu væri glæpamaður, sem sæti um líf sitt. Hann trúði
þessari ímyndun sinni og hóf leit í skipinu.
Sj. telur megin ástæðuna fyrir vandræðum sínum vera slys, sem
hann varð fyrir 12 ára gamall. Hann var í sveitadvöl, datt af hest-
baki og rotaðist. Lá í coma í 36 stundir, að hann heldur. Eftir þetta
breyttist hann allmikið. Hann varð allur slappari, fitnaði mikið og
hefur allt til þessa átt vanda fyrir slæmum höfuðverk. Ekki telur hann
þó, að slysið hafi haft nein áhrif að ráði á námsgáfur.