Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Síða 8
5. Bœjarstarfsmannaráðstefnan
3. janúar 1979
í tengslum við fund samninganefndar BSRB þá var
boðað til bæjarstarfsmannaráðstefnu 3. janúar 1979.
Vegna samgönguerfiðleika þá voru færri mættir en til
stóð eða 14 fulltrúar frá 7 aðildarfélögum. Rætt var um
hugmynd sem sett hafði verið fram á samninganefndar-
fundi, hvort ekki væri tímabært að bæjarstarfsmanna-
félögin stofnuðu með sér einhvers konar samband. Einn-
ig var rætt um viðhorfin í samningsréttarmáli bandalags-
ins og hvernig aðstaða bæjarstarfsmanna væri sérstaklega
varðandi þau tilboð er komið hefðu frá fjármálaráðherra.
Allmiklar umræður urðu um bæði þessi mál, en vegna
fámennis var ákveðið að efna til nýs fundar að loknum
samninganefndarfundi í trausti þess, að þá hefðu ein-
hverjir bæst við.
Framhaldsfundur var svo haldinn 5. janúar 1979 og
sátu hann 18 fulltrúar frá 10 bæjarstarfsmannafélögum.
Fram kom tillaga um að eftirtalin 7 bæjarstarfsmannafélög
tilnefni í undirbúningsnefnd fyrir samráð bæjarstarfs-
manna þ. e.: Akureyri, Akranes, Hafnarfjörður, Kópa-
vogur, Reykjavík, Seltjarnarnes, og Hjúkrunarfélag ís-
lands. Samþykkt var svohljóða að nefndin væri skipuð
á þennan hátt og að Albert Kristinsson skyldi kalla hana
saman.
Erlenf samstarf
1. Bœjarstarfsmenn
BSRB er þátttakandi í samtökum norrænna bæjar-
starfsmanna. Þar eru haldnir formannafundir árlega og
fulltrúafundur annað hvort ár. Þórhallur Halldórsson,
formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, er í
stjórn norrænna bæjarstarfsmannasambandsins og sótti
formannafundi þar í október 1976, í Svíþjóð í desembr'
1977 í Kaupmannahöfn og í nóvember 1978 í Finnlandi.
Þá sótti hann jafnframt afmæli finnskra bæjarstarfs-
m annasambandsins.
Þing norrænna bæjarstarfsmanna var haldið í maí
1978 og það sóttu 4 fulltrúar, Hersir Oddsson, Þórhall-
ur Halldórsson, Ingimar Karlsson og Haukur Hannesson
frá Kópavogi.
I júlí 1977 var haldin ráðstefna í Finnlandi og hana
sóttu Eyþór Fannberg og Birna Stefánsdóttir.
2. Ríkisstarfsmenn
NOSS, samband ríkisstarfsmanna á Norðurlöndum var
lagt niður í september 1978. Var boðaður sérstakur fund-
ur í Stokkhólmi, þar sem mættir voru Kristján Thorlacius
og Haraldur Steinþórsson og varð það að samkomulagi
að leggja niður þetta samstarf, sem BSRB hefur tekið
þátt í frá 1966. Eins og er þá er ekki um að ræða neitt
sérstakt samband ríkisstarfsmanna á Norðurlöndum.
3. Alþjóðasamband frjálsra verka-
lýðsfélaga
Samþykkt var á síðasta þingi BSRB að sækja um aðild
að Alþjóðasambandi frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU).
Aðildarumsókn BSRB var tekin til greina og hefur banda-
lagið greitt iðgjöld til alþjóðasambandsins síðan, en hins
vegar ekki sótt þar neina fundi.
Innan Alþjóðasambandsins er síðan starfandi sérstakt
samband verkalýðsfélaganna í Evrópu og sótti BSRB um
inngöngu í það. Þar hefur ekki verið haldið þing ennþá,
en það mun verða haldið núna alveg á næstunni og þá
afgreidd inntökubeiðni bandalagsins þar.
Skilyrði fyrir því að verða síðan tekinn sem gildur
aðili í sambandi norrænna verkalýðsfélaga, NFS, er að
hafa fyrst hlotið aðild að Evrópusambandinu. BSRB hef-
ur haft nokkurt samband við ráðamenn í NFS, og er þess
að vænta að gengið verði frá umsóknaraðild BSRB sem
yrði þannig annar þátttakandinn frá íslandi ásamt Al-
þýðusambandi fslands. f norræna sambandinu eru tvö
sambönd frá Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og eitt frá
Noregi. Er þar alls staðar um að ræða annars vegar al-
þýðusamband viðkomandi lands og hins vegar samband
opinberra starfsmanna.
4. Aðrir aðilar
BSRB fékk boð til að senda þátttakendur í Folkbild-
ungskonferens, sem haldinn var í Svíþjóð í maí 1978 og
þangað fóru Guðjón B. Baldvinsson og Þórir Marons-
son.
Þá var BSRB boðið sumarið 1977 að senda öðru sinni
þátttakanda á sumarskóla, sem haldinn var á vegum
ensks sambands opinberra starfsmanna NALGO á sumr-
inu 1977, mætti Haraldur Steinþórsson fyrir bandalagið
(frásögn í 1. tbl. Ásg. ’78).
Sigurveig Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur, sem sæti
á í stjórn BSRB sótti ásamt fulltrúa frá ASÍ námskeið
Norrænna verkalýðsháskólans, sem fram fór í Svíþjóð.
Sviss og Frakklandi og stóð í 7 vikur (27.5—8.7 ’78.)
Var þar sérstaklega kynnt starf Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar í Genf. (Sjá Ásgarð 6. tbl. 1978).
Félagamiðsföðin
Hugmyndin um sameiginlegt félagsheimili fyrir BSRB
og bandalagsfélögin er gömul. Á 25 ára afmæli BSRB
1967 lét borgarstjórinn í Reykjavík í té loforð um
lóð í nýja miðbænum. Um svipað leyti var byrjað að
leggja í húsbyggingasjóð BSRB.
8
ASGARÐUR