Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Side 9
Á árinu 1976 þá komst skriður á þetta mál fyrir for-
göngu einstakra aðildarfélaga og þá einkum SFR. 10.
desember 1976 var undirritaður kaupsamningur, þar sem
6 félög og BSRB gerðust kaupendur að húsnæði í bygg-
ingu á horni Grettisgötu og Rauðarárstígs. Húsið er 4
hæðir og stendur á eignarlóð, sem keypt var af Agli Vil-
hjálmssyni h.f. Upphaflega voru fest kaup á 2. og 3. hær
húseignarinnar, sem eru samtals 966 ferm., eða 56.8%
alls hússins. Verð á eignarhluta þessum var 90 millj. kr
og var það tilbúið undir tréverk.
Settar voru fljótlega reglur um fyrirkomulag Félaga-
miðstöðvarinnar sem taldist eigandi hússins. Ákveðið var
að haldinn yrði sérstakur aðalfundur, sem kýs 7 stjórn-
endur, einn frá hverjum eignaraðila, og varamenn til
eins árs í senn. Hvert einstakt félag á rétt til afnota af
skrifstofuhúsnæði sem samsvarar eignarhlut félagsins. Hin
félögin eiga forleigurétt á því húsnæði, sem sameigendur
nota ekki sjálfir.
Formlegur sameignarsamningur var gerður 20. apríl
1977 og þá var einnig samið um smíði á innréttingum,
sem skyldi ljúka í lok ársins 1977. f nóvember 1977 var
hluti BSRB, sem upprunalega var aðeins 5% í húseign-
inni aukinn í Í3V2%, og þá var jafnframt keypt 4. hæð
hússins, sem er inndregin og heldur minni heldur en
hinar hæðirnar (rúmlega 200 ferm.). Og á aðalfundi
mars 1978 var svo að lokum keyptir um 100 ferm. á 1.
hæð.
í marsmánuði 1978 var flutt í nýja húsnæðið. Á 2. hæð
eru skrifstofur Starfsmannafélags ríkisstofnana og BSRB
og þar er jafnframt fundarsalur, sem tekur 80—100
manns. Á 3. hæðinni hafa hinir eigendurnir skrifstofur
sínar, en þeir eru Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar,
Samband grunnskólakennara, Landssamband fram-
haldsskólakennara, Póstmannafélag íslands og Landssam-
band lögreglumanna. 4. hæðin er alveg óinnréttuð, en á
1. hæð er eitt herbergi á vegum BSRB og auk þess eri'
þar til húsa Sjúkraliðafélag fslands og Meinatæknafélag
íslands.
Eignaskiptingin í Félagamiðstöðinni er nú þannig að
Starfsmannafélag ríkisstofnana á 32%, Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar 18%, Póstmannafélag fslands 13.5%,
BSRB 13.5%, Samband grunnskólakennara 9%, Lands-
samband framhaldsskólakennara 9%, og Landssamband
lögreglumanna 5%.
Reynslan sem þegar er fengin af notkun þessa hús-
næðis er mjög góð. Möguleikarnir til sameiginlegrar
starfsemi og alls konar þjónustu sem t. d. BSRB getur
veitt bandalagsfélögunum eru mjög miklir. í fram-
kvæmdastjórn Félagamiðstöðvarinnar eru Einar Ólafsson,
frá Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Guðni fónsson, frá
Sambandi grunnskólakennara og Ingimar Karlsson frá
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, og fjármál annast
Guðmundur Árnason hjá Landssambandi framhaldsskóla-
kennara.
Skrifstofa BSRB
Skrifstofa bandalagsins var til húsa að Laugavegi 172
allt fram til mars 1978. Húsnæðið var löngu orðið alltof
lítið fyrir þá starfsemi, sem þar var rekin, bæði hvað
snerti fundaraðstöðu og skrifstofuhúsnæði. Áþreifanleg-
ust voru þó þrengslin meðan á verkfallinu stóð í árslok
1977.
Skömmu eftir þing BSRB var gerð sú breyting, að
Guðjóni B. Baldvinssyni var falið sérstaklega að gegna
fræðslumálefnum bandalagsins, og þá voru ráðnir tveir
starfsmenn, Baldur Kristjánsson, félagsfræðingur, tók við
starfi Gunnars Eydal, sem félagsmálafulltrúi í nóvember
1976 og frá sama tíma var Jóhannes Guðfinnsson, lögfr..
ráðinn til að færa allt bókhald og er það hluti úr starfi.
Með sérstöku samkomulagi við fjármálaráðuneytið var
það ákveðið að formaður BSRB gæti á hverjum tíma orðið
fastur starfsmaður bandalagsins, og Kristján Thorlacius
hóf að gegna fullu starfi hjá bandalaginu frá 1. janúar
1978.
Guðjón B. Baldvinsson lét af störfum er hann varð
sjötugur, frá 1. september 1978. Frá sama tíma var
ákveðið að ráða 3 starfsmenn. Kristín H. Tryggvadóttir,
sem gegnt hefur störfum ritara í stjórn BSRB, var ráðin
sem fræðslufulltrúi í stað Guðjóns, Valgerður Stefáns-
dóttir var ráðin til að gegna símaþjónustu og ýmsum af-
greiðslustörfum á skrifstofunni og Björn Arnórsson var
ráðinn hagfræðingur bandalagsins.
Á skrifstofunni eru nú samtals 9 manns. Auk þeirra 6
sem hér eru taldir, þá starfa þar Haraldur Steinþórsson
framkv.stjóri, Erla Gunnarsdóttir og Rannveig Jónsdótt-
ir, sem annast spjaldskrárvinnu og vélritun.
Talsverð breyting er orðin á verkefnum skrifstofunn-
ar. Spjaldskráin sem áður var tímafrek er nú að veru-
legu leyti leyst með tölvuútskrift frá Skýrsluvélum ríkis-
ins. Skýrsluvélar annast einnig áritun á Ásgarð hjá
starfsfólki ríkisins og Reykjavíkurborgar.
í staðinn hefur stórlega aukist vinnan við fjölritun
og framleiðslu á fræðsluverkefnum og kjaramálaupplýs-
ingum.
Hefur tækjakostur skrifstofunnar verið stóraukinn. Má
þar nefna kaup á fullkomnari ljósritunarvél og nýrri
offsetprentvél. Skapar þetta möguleika til að leysa af
hendi margvísleg verkefni fyrir bandalagsfélög, bæði
þau sem hafa skrifstofu á Grettisgötu 89, og sömuleið-
is hefur skrifstofan aðstoðað önnur bandalagsfélög, sem
til hennar hafa leitað.
ASGARÐUR
9