Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Síða 10
2. KAFLI
KJARASAMNINGAR OPIN-
BERRA STARFSMANNA 1977
Á sameiginlegum fundi stjórnar og samninganefndar
BSRB 15. mars 1977 var samþykkt að segja upp þágild-
andi kjarasamningi við ríkið frá 1. júlí 1977 að telja.
Áður hafði samninganefnd BSRB hafið störf að undir-
búningi kröfugerðar í væntanlegum samningaviðræðum.
Samninganefndin kom saman á fyrsta fund sinn 7.
febrúar 1977. Á þeim fundi var Kristján Thorlacius kos-
inn formaður hennar og Haraldur Steinþórsson, vara-
formaður. Ritarar voru kjörnir Valgerður Jónsdóttir frá
Hjúkrunarfélagi fslands og Ari Jóhannesson frá Póst-
mannafélagi íslands.
Á öðrum fundi 10. febrúar var ákveðið að skipta samn-
inganefndinni í 8 undirnefndir, sem hver um sig fjallaði
um tiltekin atriði í væntanlegri kröfugerð.
Sfefna þings BSRB 1976
Á 30. þingi BSRB 11.—14. okt. 1976 voru samþykktar
ályktanir um kjaramál, þar sem meginstefna var mörk-
uð:
1. Að bætt verði að fullu kjaraskerðing undanfarinna ára
og tryggður kaupmáttur, sem sé hvergi lakari en sam-
kvæmt kjarasamningi BSRB í des. 1973 í endanlegri
mynd hans.
2. Að samið verði um verulegar kjara- og launabætur
sem lyfti launakjörum upp af láglaunastigi.
3. Að full verðtrygging verði tekin upp á laun sam-
kvæmt óskertri framfærsluvísitölu.
4. Að leiðrétt verði launamisræmi, sem orsakast af því,
að opinberir aðilar neituðu starfshópum innan BSRB
um sambærileg kjör og ríkið samdi við hliðstæða
starfshópa utan samtaka opinberra starfsmanna.
f ályktun 30. þings BSRB segir ennfremur:
„Við kröfugerð verði tekið mið af meginkröfum BSRB
í ágúst 1975. Þingið minnir sérstaklega á eftirtalin atriði:
1. Sett verði tryggileg ákvæði í heildarkjarasamninginn
um rétt BSRB til uppsagnar og verkfallsheimildar á
samningstímabilinu, ef veigamiklum forsendum. hans
yrði breytt og kaupmætti umsaminna launa raskað.
2. Byrjunarlaun verði hækkuð. Aldurshækkanir ásamt
bili milli launaflokka alls staðar sett jafnt að krónu-
tölu.
3. Staðfest verði 5 daga vinnuvika og dagvinna á tíma-
bilinu kl. 08—17 frá mánudegi til föstudags.
4. Vikulegur vinnutími vaktavinnufólks verði skemmri
en dagvinnumanna og núverandi reglur samræmdar.
Vinnuskylda geti styttst í áföngum eftir 55 ára ald-
ur, sé þess óskað af hálfu starfsmanns.
5. Starfsmanni skal heimilt að halda störfum að hluta
eftir tilskilin aldursmörk.
6. Greiða skal álag á áhættusama, óþrifalega og óholla
vinnu.
7. Bætt verði kjara- og félagsleg aðstaða þeirra, er verða
að vinna fjarri heimilum sínum.
8. Laugardagar teljist ekki til orlofsdaga og orlofsleng-
ing fáist fyrr en nú er. Lágmarkstrygging orlofsfram-
lags hækki verulega og fylgi almennum launahækk-
unum. Orlof lengist oftar miðað við starfsaldur.
9. Yfirvinnutímakaup hækki í 100% miðað við dag-
vinnu og vaktaálag hækki frá því sem nú er.
10. Mötuneyti verði tekið upp á vinnustöðum, en þar
sem því verður ekki við komið greiðist fæðispening-
ar.
11. Opinberum starfsmönnum verði tryggð endurhæfing
og starfsmenntun og skal námstími teljast til vinnu-
tíma.
12. f heildarkjarasamning verði tekin upp kjaraatriði
úr sérsamningum eftir óskum viðkomandi bandalags-
félaga.
BSRB afli með tilstyrk bandalagsfélaga gagna um raun-
veruleg launakjör annarra og taki saman greinargerð um
þróun kjaramála að undanförnu fyrir samninganefnd
bandalagsins til að styðjast við varðandi mótun kröfu-
gerðarinnar."
Undirnefndirnar, sem skipaðar voru á fundi samninga-
nefndar 10. febrúar 1977, unnu mikið starf við frágang
einstakra þátta kröfugerðarinnar, sem var í heild af-
greidd í samninganefnd 23. mars 1977. Kröfugerðin var
birt í 2. tölublaði Ásgarðs 1977.
Kröfugerðin kynn) og rædd
Dagana 25. apríl til 17. maí 1977 voru haldnir fundir
aðildarfélaga BSRB, auk vinnustaðafunda og 20 almennra
funda á vegum bandalagsins víðsvegar um land. Á þess-
um fundum var kröfugerðin kynnt og rædd.
í auglýsingum um þessa fundi var lögð sérstök áhersla
á að hvetja félagsmenn í BSRB til að mæta á þessum
fundum og kynna sér kröfugerðina og ræða hana. Það
væri höfuðnauðsyn, því nú færi framvegis fram alls-
herjaratkvæðagreiðsla um væntanlega kjarasamninga.
Yrðu menn því að þekkja sem best til málavaxta.
Samtals munu hafa mætt á þriðja þúsund manns á
fundum þessum.
10
ASGARÐU R