Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Page 11
Kjaradeiíunni vísað tií sáffasemjara
Eftir að kröfugerð var lögð fram fyrir 1. apríl 1977
var ekki haldinn viðræðufundur samningsaðila fyrr en
22. apríl s. á. Á þessum fundi kom ekkert gagntilboð
fram frá ríkinu og samninganefnd ríkisins tók ekki af-
stöðu til einstakra liða í kröfugerð BSRB.
Báðir aðilar urðu sammála um að vísa deilunni þá
þegar til sáttasemjara, sem samkvæmt lögum bar þá að
kveðja tvo menn með sér í sáttanefnd. Kvaddi hann til
þeirra starfa Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóra Sam-
bands almennra lífeyrissjóða og Jón Erling Þorláksson,
tryggingarfræðing. Sáttasemjari ríkisins, Torfi Hjartar-
son, var formaður sáttanefndarinnar, og í fjarveru hans
um skeið gegndi Logi Einarsson, hæstaréttardómari, því
starfi.
Viðræður ASÍ, FFSÍ og BSRB við
ríkissfjórnina
Sameiginlegar viðræður Alþýðusambands íslands, Far-
manna- og fiskimannasambands íslands og BSRB annars
vegar og fulltrúa ríkisstjórnarinnar hins vegar fóru fram
um skattamál, húsnæðismál, verðlagsmál, vaxtakjör og
dagvistunarmál. BSRB tilnefndi eftirtalda fulltrúa í þessu
skyni: Albert Kristinsson, í húsnæðismálanefnd, Harald
Steinþórsson í skattanefnd, Elínu Ólafsdóttur í dagvist-
unarnefnd, Örlyg Geirsson í vaxtanefnd og Einar Ólafs-
son í verðlagsmálanefnd.
Yiðræðum fresfað
Á fundi samningsaðila með sáttasemjara 2. júní 1977
varð samkomulag um að fresta samningaviðræðum fram
í ágústmánuð. Var tillaga um frestun borin fram af
samninganefnd ríkisins og samþykkt af BSRB, enda varð
jafnframt samkomulag um:
1. að tíminn yrði notaður til þess að vinna sameigin-
lega að samanburði á kjörum ríkisstarfsmanna og til-
tekinna starfshópa, jafnhliða því sem Hagstofan
starfaði að þeim þætti samanburðar kjara, sem hún
hafði tekið að sér.
2. Væntanlegir kjarasamningar giltu frá 1. júlí 1977.
Viðræður hefjasf á ný
Fyrstu tillögur fulltrúa fjármálaráðherra og gagnkröfur
voru lagðar fram á fundi með sáttanefnd 23. ágúst 1977.
Næstu tvær vikur voru stöðugir fundir undir forustu
sáttanefndar, þar sem farið var yfir einstaka liði í kröfu-
gerð BSRB. Af hálfu samninganefndar BSRB var lögð
áhersla á að skýra sem ítarlegast fyrir sáttanefnd og samn-
inganefnd ríkisins alia þætti kröfugerðarinnar.
Samninganefnd BSRB lagði í þetta mikið starf. Þar sem
ekki komu fram ný gagntilboð frá ríkinu, var lögð áhersla
á að kynna sáttanefnd kröfurnar sem best, þar sem henni
var skylt að leggja fram sáttatillögu, ef til boðunar verk-
falls kæmi:
Samanburður launakjara
Sameiginleg undirnefnd BSRB og fjármálaráðuneytis-
ins höfðu í þrjá mánuði unnið að gagnasöfnun um
launakjör. Beitt var þeirri einföldu en öruggu aðferð að
styðjast eingöngu við þær upplýsingar, sem ríkið sjálft
hafði í fórum sínum sem launagreiðandi, en það borgar
kaup eftir fjölmörgum kjarasamningum verkalýðsfélaga
innan ASÍ.
Einungis voru valdir hópar, sem ætla mætti að væru
marktækir — en sleppt einstaklingum og ýmsum afbrigð-
um, sem ekki var talið að gæfu raunsanna mynd.
Hjá ríkinu voru tiltækar upplýsingar um 1246 starfs-
menn, sem fengu í jan.—júní 1977 laun skv. samningum
Sóknar, Framsóknar, Dagsbrúnar og línumanna. Meðal-
laun alls voru 81 þúsund.
Laun skv. 2. og 3. launafl. BSRB voru á sama tíma
71—81 þúsund.
í 1.—3. launafl. í ríkisverksmiðjunum voru 127 starfs-
menn og meðalkaup þeirra 88—96 þús. kr.
Meðalkaup í dagvinnu (tímakaup) skv. fréttabréfi
Kjararannsóknarnefndar á 1. ársfjórðungi 1977 var hjá
verkakonum 79 þús. og verkamönnum 93 þúsund.
Skv. upplýsingum um 208 iðnaðarmenn hjá ríkinu í
iðnaðarmannafélögum voru meðaltekjur þeirra í janúar—
júní 116 þúsund.
36 iðnaðarmenn í ríkisverksmiðjunum höfðu þá 129
þúsund að meðaltali.
Fréttabréf kjararannsóknarnefndar taldi dagvinnutekjur
iðnaðarmanna á 1. ársfjórðungi vera 124 þús.
Iðnaðarmenn voru skv. kjarasamningi (dómi) í 9.
launafl. hjá SFR og var kaup þeirra á sama tíma 92—102
þúsund.
Meðalkaup 53ja verkstjóra hjá ríkinu í verkstjóra-
félögum reyndist vera 136 þús. kr.
13 verkstjórar hjá ríkisverksmiðjum höfðu að meðaltali
157—162 þús. kr.
Verkstjórar iðnaðarmanna voru í 11. launaflokki hjá
SFR og laun þar voru 99—109 þúsund.
Kennarar í iðnskólum (og menntaskólum) sem voru í
B-15 til B-17, fengu þá í kaup 112—134 þúsund.
Innan BSRB eru fjölmennir starfshópar, sem ekki
höfðu beina viðmiðun við hliðstæða hópa, sem vinna
eftir kjarasamningum annarra stéttarfélaga.
Teknir voru til samanburðar ýmsir hópar í BSRB til
að færa sönnur á mismunun ríkisins í launagreiðslum,
eftir því í hvaða stéttarfélögum menn voru.
ASGARÐUR
n