Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Qupperneq 13
Á sameiginlegum fundi stjórnar og samninganefndar
BSRB 21. sept. 1977 var samþykkt eftirfarandi ályktun
með 64 samhljóða atkvæðum.
„Sameiginlegur fundur stjórnar og samninganefndar
BSRB telur, að tillaga sáttanefndar sé óviðunandi og
hvetur félagsmenn í bandalaginu að fjölmenna á kjör-
stað í allsherjaratkvæðagreiðslunni 2. og 3. október n.k.
og fella sáttatillöguna."
Sáttatillagan var birt í heild í 3. tölublaði Ásgarðs
1977. Síðar í skýrslunni mun verða gerð grein fyrir helstu
atriðum, sem náðust í samninga umfram það, er sátta-
tillagan gerði ráð fyrir.
Sáttatillagan gerði ekki ráð fyrir neinni breytingu á
tilboði ríkisins um laun í fjórum neðstu flokkunum og
sáralitlum hækkunum frá tilboðinu í 5., 6. og 7. launa
flokki. í þessum flokkum voru um 20% félagsmanna
BSRB. Auk þess var gengið alltof skammt í sáttatillög-
unni til leiðréttingar á launastiganum fyrir fjölmennustu
starfshópana. Þriðja veigamikla atriðið, sem gerði það
tvímælalaust að verkum, að sáttatillagan var felld, ásamt
þeim tveimur fyrrnefndu, var að ekki var þar gengið
til móts við kröfu samtakanna um rétt til endurskoð-
unar kaupliða á samningstímabilinu með verkfallsrétti.
Fyrir utan þessi atriði voru mörg atriði almenns eðlis
og vegna ýmissa starfshópa, sem sáttanefndin tók ekki
til greina.
Fundir og allsherjaralkvæðagreiðsla
BSRB og bandalagsfélögin héldu fundi um allt land
um sáttatillöguna. Munu 3—4 þúsund manns hafa sótt
fundina. Fulltrúar úr samninganefnd BSRB kynntu sátta-
tillöguna og skýrðu einstaka þætti málsins.
Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslunnar um sáttatillög-
una urðu sem hér segir:
Ríkisstarfsmenn
Atkvæði greiddu 7875 eða 90%. Nei sögðu 7063 eða
90.8% gildra atkvæða. Já sögðu 716 eða 9.2% gildra
atkvæða.
Bœjarstarfsmenn
Á kjörskrá félaga BSRB, sem starfa hjá bæjar- og
sveitarfélögum voru 4013 og greiddu 3521 atkvæði. Nei
sögðu 3109 eða 89.7%, já sögðu 356 eða 10.3%.
Viðræður - verkfail
Þar sem sáttatillagan var þannig felld, hófst verkfall
11. október. Frá sjálfu verkfallinu er sagt í öðrum
kafla skýrslunnar, en það stóð í hálfan mánuð.
Eftir að tillaga sáttanefndar var felld, hófust samninga-
viðræður að nýju 7. okt. 1977 í húsakynnum Háskóla
Islands.
Þær kröfur, sem samninganefnd lagði megináherslu
á voru:
1. hækkun lægstu launa,
2. frekari leiðréttingar til fjölmennustu starfshópanna,
3. endurskoðunarréttur á samningstíma til jafns við
aðra.
Á viðræðufundum 8. og 9. október lagði ríkið fram
tvö tilboð um launastiga. Voru bæði þessi tilboð nær
óbreytt frá því sem sáttatillagan fól í sér.
Til þess að reyna að komast hjá verkfalli gerði BSRB
tilboð 9. október 1977, þar sem slegið var verulega af
launakröfum eða um 10—12%.
Daginn eftir, þ. e. 10. okt. lagði ríkið fram launatilboð,
þar sem breytingar voru enn óverulegar frá sáttatillögu.
í þessu tilboði fólst launahækkun 0,25% til 1.5% miðað
við ár. Öllum leiðréttingum var hafnað.
Á fundi þennan dag var samþykkt í samninganefm'
BSRB með 49 samhljóða atkvæðum að beina því til
sáttasemjara að hann beiti sér fyrir því, að fulltrúar
ríkisins tækju upp viðræður strax um kjarakröfur banda-
lagsins í heild.
Verkfall hófst 11. okt. hjá öllum ríkisstarfsmanna-
félögunum og flestum bæjarstarfsmannafélögunum, og
féllu þá viðræður niður í bili.
BSRB hélt fjölmennan útifund á Lækjartorgi til þess
að kynna stöðuna í samningunum.
Dagana 17. til 25. október voru síðan nær stöðugir
sáttafundir í kjaradeilunni, og tókust samningar að
morgni 25. október. Þá var verkfalli frestað fram yfir
atkvæðagreiðslu félagsmanna.
Fundahöld - kynning á samningi
Kjarasamningurinn fyrir ríkisstarfsmenn, sem undir-
ritaður var 25. okt. 1977, var birtur í heild í 4. tölu-
blaði Ásgarðs 1977.
Þá var efnt til víðtækra fundahalda um land allt til
þess að kynna samninginn og ræða hann.
í Reykjavík og nágrenni voru fundirnir á vegum að-
ildarfélaganna, en úti um land voru 19 almennir fundir
haldnir á vegum BSRB fyrir félagsmenn í öllum að-
ildarfélögunum.
Auk félagsfunda í Reykjavík og nágrenni héldu sum
félögin marga vinnustaðafundi.
Allsherjarafkvæöagreiðslan
Samkvæmt lögum BSRB ber samninganefnd banda-
lagsins að undirrita samninga með fyrirvara um end-
anlegt samþykki að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.
13