Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.05.1979, Síða 15
Á sjö fyrstnefndu stöðunum mun ekki hafa komið til
verkfalls. Af hálfu viðsemjenda var stofnuð sameiginleg
samninganefnd fimm sveitarfélaga á Reykjanesi. Hún
náði fyrst samkomulagi við Starfsmannafélag Kópavogs
9. sept. um öll atriði aðalkjarasamnings önnur en launa-
stiga og launabætur. Var sams konar samkomulag einnig
gert við Seltjarnarnes, Keflavík, Mosfellssveit og Garða-
bæ. Starfsmannafélögin aflýstu samt ekki verkfallsboðun
sinni og átti Kópavogsfélagið m. a. allra félaga iengst í
verkfalli. Segir frá samkomulagi þessu í Huga 10. tbl.
2. árg.
Þá var fyrri aðalkjarasamningur samninganefndnr
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við borgina felld-
ur á fundi 10. október. Bæði á Akureyri og Hafnarfi'-öi
voru upphaflega felldir á félagsfundum aðalkjarasamn-
ingar sem þessi félög höfðu gert.
Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvernig hagað var vsrk-
föllum bæjarstarfsmanna á einstökum stöðum, en þau
voru afar mismunandi eins og fyrr segir.
Sérkjarasamningar bæjarstarfsmanna-
félaga
Félagsmálaráðuneytið veitti, umbeðið, bæjarstarfs-
mannafélögunum frest til að ljúka sérkjarasamningum
við viðsemjendur sína, til 1. febrúar 1978, en þeim á
skv. reglugerð að vera lokið 45 dögum eftir undirritun
aðalkjarasamnings, ella fari þeir fyrir Kjaranefnd. Að-
eins eitt félag þurfti ekki á frestun að halda, Starfsmanna-
félag Akureyrar, en það undirritaði samning við bæjar-
stjórn 17. des. 1977. Ellefu bæjarstarfsmannafélög til við-
bótar náðu samningum. Siglufjörður 31. jan. 1978, Vest-
mannaeyjar 8. febr. 1978, Reykjavík 9. mars 1978, Hafn-
arfjörður 21. mars 1978, Seltjarnarnes 23. mars 1978,
Sauðárkrókur 31. mars 1978, Neskaupstaður 20. apríl
1978 og Akranes 21. maí 1978. Þá náðist og samkomulag
í Garðabæ og FOSS náði samkomulagi við sveitarstjórn-
ir í Árnessýslu.
Á fimm stöðum náðist ekki samkomulag. ísafirði, Húsa-
vík, Mosfellshreppi, Keflavík og Kópavogi. Kjaranefnd
úrskurðaði um samninga þessara félaga og birti úrskurð
sinn 24. apríl 1978.
Samningar félaganna og dómar eru birtir í 4. og 5.
tölublaði Ásgarðs 1978.
Sérkjarasamningar ríkisslarfsmanna
Kjaranefnd fékk til afgreiðslu alla sérkjarasamninga
ríkisstarfsmannafélaganna 15, nema hvað LSFK tókst að
semja fyrir þann hluta félagsmanna sinna, sem kenna í
framhaldsskólum. Úrskurðir Kjaranefndar bárust í
lok febrúar og eru birtir í 3. tbl. Ásgarðs 1978.
BSRB semur fyrir einsfaklinga
Samkvæmt reglugerð um kjarasamninga sveitarfélaga
þá annast BSRB alla samninga fyrir einstaklingsaðila, sem
ekki eru í bæjarstarfsmannafélögum.
Stjórn BSRB gerði um þetta samhljóða eftirfarandi
samþykkt 24. apríl 1978:
„Stjórn BSRB samþykkir að fela fyrir sína hönd for-
manni eða framkvæmdastjóra bandalagsins að staðfesta
aðalkjarasamninga eða sérkjarasamninga, sem gerðir eru
skv. 4. gr. rgl.g. nr. 236/1976 um fyrirsvar BSRB fyrir
einstaklingsaðila.
Verði áður leitáð samþykkis þeirra einstaklinga, sem
aðild eiga að hverjum samningi, og skal fara fram leyni-
leg atkvæðagreiðsla meðal þeirra, ef ósk kemur fram um
slíkt.
Röðunarmálum einstaklinga skal vísa til Kjaranefnd-
ar, ef ekki næst samkomulag aðila um sérkjarasamning,
eða ef aðilar eru sammála um að vísa ágreiningi varð-
andi einstakling til kjaranefndar.
Einfaldur meirihluti þeirra sem kjósa, ræður í atkvæðn-
greiðslu um afstöðu starfsmannahóps þess, sem samn-
ingur nær til.
Sérstakur fulltrúi á skrifstofunni (Baldur Kristjánsson)
hafi verkefni þessi sérstaklega með höndum og haldi sam-
an öllum gögnum varðandi einstaklingsaðila."
3. KAFLI
FRAMKVÆMD VERKFALLS
í OKTÓBER 1977
Verhfallsboðun
Á sameiginlegum fundi stjórnar BSRB og samninga-
nefndar bandalagsins, sem haldinn var mánudaginn 5.
september var samþykkt með 59 samhljóða atkvæðum
tillaga um verkfallsboðun. Tillagan er birt í heild í
2. kafla hér að framan.
í kjölfarið fylgdi síðan verkfallsboðun bæjarstarfs-
mannafélaga. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar sam-
þykkti verkfallsboðun 6. sept. með 49 samhljóða atkvæð-
um og önnur bæjarstarfsmannafélög höfðu öll boðað
verkföll 10. september. Þó að verkfall væri boðað að
ASGARÐUR
15